Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2018, Blaðsíða 29

Skinfaxi - 01.01.2018, Blaðsíða 29
 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 29 Nær ekkert var fjallað um konur í Skinfaxa á árunum 1961–1970. Kvenréttindabaráttan endur- speglaðist ekki á síðum blaðsins. S érstök áhersla var lögð á það innan ungmennafélagshreyf- ingarinnar á þessum tíma að menn væru ákveðnir, djarfir og óhræddir við að hafa eigin sjálfstæðu skoðun og setja hana fram. Þess vegna er eðlilegt að áhrifamenn innan sam- félagsins, sem voru áður í ungmennafélögum, hafi mótað samfélagið út frá sömu hugmyndum og þekktust innan ungmenna- félaganna. Þetta skrifar Tómas Ingi Shelton í B.A.-ritgerð sinni í sagn- fræði við Háskóla Íslands. Í ritgerðinni fjallar hann um karlmennsku- hugmyndir í Skinfaxa á árunum 1961–1970. Fram kemur í ritgerðinni að á þessum tíma hafi samfélagsbreyt- ingarnar, sem urðu á sjöunda áratug síðustu aldar, eins og aukið vægi kvenréttindabaráttunnar, ekki endurspeglast í Skinfaxa á tíma- bilinu sem er til umfjöllunar. Í ritgerðinni segir að ekkert hafi verið talað um rétt kvenna og engin aukning orðið á fjölda kvenna í blaðinu eftir því sem leið á sjö- unda áratuginn. Konur voru kynntar í Skinfaxa sem hópur en ekki sem einstaklingar. Einungis karlmenn fengu umfjöllun af því tagi. Skinfaxi var á árunum 1961–1970 mjög karlmannamiðað tímarit. Það fjallaði nær eingöngu um karlmenn og í því birtust aðeins greinar eftir karla. Engin grein eftir konu er sjáanleg þar á þessum árum að því er fram kemur í ritgerð Tómasar. Þær karl- mennskuhugmyndir sem upp úr stóðu voru hugmyndir um mikil- vægi þess að ala unga karlmenn upp og gera þá að fullgildum ein - staklingum sem tilbúnir væru til að taka virkan þátt í samfélaginu. Karlmenn einráðir í Skinfaxa Hægt er að nálgast ritgerðina alla í Skemm- unni, www.skemman.is og skrifa heiti ritgerðar- innar í leitarglugga. Ritgerðin heitir Karlmennsku- hugmyndir í tímaritinu Skinfaxa 1961–1970. Mikilvægustu einkenni karla, sem nefnd voru í Skinfaxa á árunum 1961–1970, voru sjálfstæði, styrkur (bæði líkamlegur og andlegur), dirfska, dugnaður og sjálfsstjórn. Ekki er hægt að segja að karlmennskuhug- myndir í Skinfaxa séu nýjar eða brautryðjandi á nokkurn hátt. Blaðið þótti einkennilega karl- mannamiðað. Karlmaðurinn var í fyrirrúmi og nær allt efni blaðsins fjallaði um hann á einn eða annan hátt. Þrátt fyrir að oft væri verið að tala til allrar æsku landsins, þar á meðal stúlkna, var alltaf karlmannabragur á öllu efni og greinilegt að karlmennskan var æðri og meira áberandi en kvenleikinn. Vissir þú … ... að sambandsaðilar UMFÍ eru 29 talsins. Formenn skiptast í 20 karla og 9 konur ... ... að 12 sambandsaðilar eru með framkvæmdastjóra. Þeir skiptast í 6 karla og 11 konur ...

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.