Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2018, Blaðsíða 11

Skinfaxi - 01.01.2018, Blaðsíða 11
 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 11 T ími lifandi lukkudýra er sennilega lið - inn. Jóhann Waage segir góð lukkudýr, sem tengjast merkjum ungmenna- félaga, geti gert mikið gagn. Bæði er hægt að nota þau í fjáröflunarskyni og einnig láta þau hvetja til íþróttaiðkunar barna. For - maður Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands segir lukkudýr sambandsins hafa reynst sameiningartákn þótt fáir vilji fara í bún inginn. Lukkudýr geta skapað skemmtilega stemn- ingu á íþróttaleikjum og viðburðum. Þau geta glatt yngstu iðkendurna og þá eldri líka og sameinað alla með hressilegum hætti. En hver er hugmyndin á bak við lukkudýr félags? Koma þau að gagni? Hvernig eru þau gagn- leg? Grafíski hönnuðurinn og markaðsfræðing- urinn Jóhann Waage hefur hannað flest lukkudýr og merki ungmenna- og íþrótta- félaga landsins. Hann er bjó meðal annars til lukkudýr fyrir Skallagrím í Borgarnesi, Breiðablik, Kela fyrir Keflavík, íþrótta- og ung- mennafélag, Tindastól og fleiri. Síðasti lukkudýrabúningurinn, sem hann skóp, var Sprettur sporlangi, lukkudýr UÍA. Jóhann segir gott lifandi lukkudýr geta gert góða hluti fyrir viðkomandi félag, jafn vel hvatt börn til íþróttaiðkana. „Lukkudýr eru skemmtileg og geta búið til góða stemn ingu á íþróttaviðburðum. Þegar ég fór með krakkana mína á leiki með Skallagrími í Borgarnesi biðu þau eftir lukkudýrinu og vildu láta taka mynd af sér með því. Góð lukkudýr geta líka haft hvetjandi áhrif. Þau ná til stuðningsmanna og barna sem hafa í sjálfu sér lítinn áhuga á íþróttum en vilja leika sér. Þegar fígúra eins og lukkudýr tengist leiknum fá þau áhuga. Ég hef alltaf viljað sjá félögin gera krakkana spennta fyrir því að fara á íþrótta- leiki. Ef þau verða ekki íþróttamenn sjálf eru samt líkur á að þau vinni síðar fyrir félagið, sem stjórnarmenn, sjálfboðaliðar eða for- eldrar barna sem stunda íþróttir.“ Dýrt að búa til lifandi lukkudýr Jóhann segir minna um það nú en áður að íþróttafélög láti búa til lifandi lukkudýr fyrir sig. „Vinnan kostar sitt og búningurinn er ekki ókeypis. Hann getur farið í nokkuð hundruð þúsund krónur. Þótt lifandi lukkudýr geri mik- ið gagn held ég að tími þeirra sé liðinn. Félög- in gera það nú í meira mæli að búa til lógó með lukkudýrum í og setja þau á miða, boli, Telur lukkudýrin gera mikið gagn Á meðal verka Jóhanns eru bolabítur Skallagríms sem enn er notaður, Keli Keflvíkingur, bangsi Fjölnis, krókódíll Tindastóls, hvítabjörninn fyrir KFÍ, nú körfuknattleiksdeild Vestra á Ísafirði, lukkudýr Fylkis, rauða ljón KR, Hauka og mörg, mörg fleiri. Bæði er um að ræða lifandi lukkudýr, búning sem manneskja klæðist, eða lógó félags með teiknuðu lukkudýri á sem prýðir boli og búninga liðsmanna. búninga og varning. Lógóið og lukkudýrið eru andlit félagsins. Eftir þessu er tekið. Félög- in hafa líka notað lukkudýr í vörumerkjum til fjáröflunar. Það þarf ekki að vera dýrt og getur skilað miklu fyrir félagið til lengri tíma,“ segir Jóhann og rifjar upp að hann hafi séð mikið af vörum merktum með bolabít. Þótt tími lifandi lukkudýra sé að mestu lið- inn hér á landi segir Jóhann öðru máli gegna um stöðu þeirra utan landsteinanna. „Lukku- dýr hafa lifað góðu lífi í Bandaríkjunum í ára- raðir og eru mjög tengd við körfubolta þar. Japanir eru líka allir í fígúrum og líka Kóreu- menn og ýmsir aðrir Asíubúar. Þá eru lukku- dýr að verða vinsæl á meginlandi Evrópu,“ segir hann. Veist þú þetta um UMFÍ? • UMFÍ var stofnað á Þingvöllum föstudaginn 2. ágúst 1907. • Tímaritið Skinfaxi kom fyrst út í október árið 1909. • Nafnið Skinfaxi er dregið af hinum fljúgandi hesti sem dró vagn goðsagnaverunnar Dags. • Fáni UMFÍ heitir Hvítbláinn og var Einar Benediktsson skáld frum- kvöðull hvítbláa fánans. • Ungmennafélag Hrunamanna er eitt af afkastamestu ungmenna- félögunum á sviði leiklistar. Á 92 árum félagsins á 20. öld hafa verið tekin til sýninga hvorki meira né minna en 105 leikrit. • Logaland í Reykholtsdal er upphaflega fyrsta samkomuhús ungmennafélaga á Íslandi, en það var byggt árið 1909. • Bítillinn Ringo Starr tróð upp á útihátíð í Atlavík árið 1984 en útihátíðin var haldin af UÍA. • Fyrsta Landsmót UMFÍ var haldið á Akureyri 17. júní 1909. • 26. Landsmót UMFÍ var haldið á Akureyri 9.–12. júlí 2009, 100 árum síðar. • UMFÍ eignaðist fyrstu tölvuna árið 1986 og var hún af Macintosh-gerð. • Á 25. Landsmóti UMFÍ í Kópavogi árið 2007 var slegið heimsmet í vatns- byssuslag. Um það bil 2000 byssumenn tóku þátt í þessum risastóra vatns- byssuslag. Alfreð Gíslason tendrar landsmótseldinn á Landsmótinu á Akureyri 2009. LU K K U D Ý R

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.