Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2018, Blaðsíða 14

Skinfaxi - 01.01.2018, Blaðsíða 14
14 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands L andsmótið verður haldið á Sauðárkróki dagana 12.–15. júlí nk. Mótið er opið öllum frá 18 ára aldri. Áhugasamir þurfa hvorki að vera skráðir í ungmennafélag né annað íþróttafélag. Það eina sem þarf er áhugi á að njóta þess að hreyfa sig og njóta samveru með öðrum. Á Landsmótinu verða næstum fjörutíu íþróttagreinar í boði. Dags- kránni er skipt í fjóra flokka; kepptu, láttu vaða, leiktu þér og skemmtu þér. Það er einmitt láttu vaða sem er ein af nýju áherslunum en þar geta þátttakendur Landsmótsins fengið tækifæri til að prófa fjölda íþróttagreina eða fá kennslu og kynningu í þeim. Mótsgestir geta valið hverju þeir taka þátt í og sett sitt eigið mót saman. Eitt verð gildir fyrir allt mótið, hvort heldur fólk tekur þátt í einni grein eða mörgum. Flestir viðburðirnir, sem boðið er upp á í tengslum við Lands- mótið, eru fríir og fá þátttakendur afslátt á ýmsa aðra viðburði. Á mótinu verður, til viðbótar við íþróttirnar, fjöldi viðburða, fyrir- lestrar um heilsu, heilbrigði og vellíðan, markaðir og uppákomur alls konar. Samhliða Landsmótinu fer fram Landsmót UMFÍ 50+. Þetta verður stærsta landsmótið fyrir fimmtíu ára og eldri sem haldið hefur verið. Miklu meira verður um að vera á mótinu á Sauðárkróki enda geta þátttakendur tekið þátt í ýmsum viðburðum tengdum Landsmótinu, ráðstefnum og kynningum, að ógleymdu matar- og skemmtikvöldi þar sem Geirmundur Valtýsson mun stýra skagfirskri sveiflu eins og honum er einum lagið. Búðu til þitt eigið Landsmót

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.