Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2018, Blaðsíða 33

Skinfaxi - 01.01.2018, Blaðsíða 33
 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 33 „Mér finnst mikilvægt að koma máli um lýð- háskóla UMFÍ á Laugarvatni að á Alþingi. Við náum vonandi að mæla fyrir málinu fyrir þinglok og munum svo leggja það fram aftur í upphafi þings í haust þar sem óvíst er að það nái lengra á yfirstandandi þingi,“ segir alþingismaðurinn Willum Þór Þórsson. Willum Þór og fjórir aðrir þingmenn Framsóknarflokksins leggja til að Alþingi feli Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningar- málaráðherra, að skipa starfshóp sem skipu- leggi stofnun lýðháskóla UMFÍ á Laugar- vatni. Gert er ráð fyrir því að í starfshópnum sitji a.m.k. einn fulltrúi frá UMFÍ og einn frá Bláskógabyggð. Í greinargerð með tillög- unni er tekið fram að engin lög eru til um lýðháskóla hér á landi. UMFÍ hafi reglulega viðrað áhuga á að stofna lýðháskóla en ætíð vilja gera það þegar lagaumgjörðin væri til staðar. Á því hefur málið strandað. Þá kemur fram í tillögunni að unnið sé að frumvarpi til laga um lýðháskóla í mennta- og menning- armálaráðuneytinu um þessar mundir. Sam- kvæmt tillögunni á starfshópurinn að skila niðurstöðum sínum fyrir árslok 2018. Willum segir tillöguna gera ráð fyrir því að starfshópur um stofnun lýðháskóla UMFÍ geti unnið samhliða því sem vinna við frum- varpið fer fram í ráðuneytinu. Samkvæmt tillögunni mun starfshópur- inn um stofnun lýðháskóla taka mið af yfir- standandi vinnu við lagafrumvarp um lýð- háskóla, nýtingu mannvirkja og skólans á Laugarvatni, rannsóknum Námsmatsstofn- unar og fleiri aðila á brotthvarfi nemenda úr framhaldsskólum og reynslu af stofnun og rekstri annarra lýðháskóla hér á landi, einkum á Flateyri og Seyðisfirði. Hvað er lýðháskóli? Þegar ákveðið var að flytja íþrótta- kennaranám Háskóla Íslands frá Laugarvatni til Reykjavíkur hóf UMFÍ að skoða stofnun lýðháskóla á Laugarvatni með aðkomu yfir- valda menntamála og Bláskóga- byggðar. Tækifærin fólust í því að nýta húsnæðið á Laugarvatni fyrir lýðháskóla. Lýðháskólar finnast víða á Norður- löndunum og eru einskonar lífs- leikniskólar þar sem nemendur geta valið sér skóla út frá sínu áhugasviði. Margir fara í lýð- háskóla til þess að taka sér hlé á milli menntaskóla og háskóla- náms og vilja nýta þann tíma í eitthvað spennandi, uppbyggj- andi og skemmtilegt. Þingmenn ýta lýðháskólum úr vör Willum Þór Þórsson. Nýtt fólk í brúnni Nokkrar mannabreytingar hafa verið hjá sambandsaðilum UMFÍ síðustu misserin. Ásdís Sigurðardóttir tók við starfi framkvæmdastjóra UMSE í nóvember á síðasta ári af Þorsteini Marinóssyni en hann fluttist til Húsavíkur og tók þar við stöðu framkvæmdastjóra Völsungs. Þá tók Gunnhildur Hinriksdóttir við starfi framkvæmdastjóra HSÞ af Evu Sól Pétursdóttur um áramótin. Í byrjun ársins urðu mannaskipti hjá Borgfirðingum en í janúar tók Sigurður Guðmundsson, fyrrverandi starfsmaður UMFÍ, við sem framkvæmdastjóri þegar Pálmi Blængsson lét af störfum. Æði margar mannabreytingar voru líka í mars. Í þeim mán- uði tók Jónas Egilsson við af Anitu Karin Guttesen sem formað- ur HSÞ. Til viðbótar við þetta tók Ingibjörg Klara Helgadóttir við sem formaður UMSS og Sigurður Eiríksson tók við formanns- stólnum af Bjarnveigu Ingvadóttur hjá UMSE. Gunnar Gunnars- son tók líka við starfi Esterar S. Sigurðardóttur sem framkvæm- dastjóri UÍA. Framkvæmdastjóraskipti urðu líka hjá UDN í Dalabyggð en þar tók Dalamaðurinn Jón Egill Jónsson við starfinu af Svönu Hrönn Jóhannsdóttur. „Þetta leggst afar vel í mig enda er starfið fjölbreytt,“ segir Jón Egill. Ásdís Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri UMSE, ásamt Sigurði Eiríkssyni, formanni UMSE. Gunnhildur Hinriksdóttir, fram- kvæmdastjóri HSÞ. Sigurður Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri UMSB. Jón Egill Jónsson, framkv.stjóri UDN. Gunnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri UÍA. Jónas Egilsson, nýr formaður HSÞ, ásamt Anitu Guttesen, fráfarandi formanni.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.