Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2018, Blaðsíða 18

Skinfaxi - 01.01.2018, Blaðsíða 18
18 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands „Við höfum komist að ýmsu. Við vitum um hlutfall kynja í fjölmiðlaumfjöllun, að þjálfar- ar stúlknaliða í fótbolta eru minna mennt- aðir en þeir sem þjálfa karlaliðin, við vitum að laun þjálfara kvennaliða eru lægri en í þjálf- un karla í meistaraflokki og við vitum að kon- ur eru færri í stjórnum íþróttafélaga,“ segir sálfræðingurinn og handboltakonan Hafrún Kristjánsdóttir, sviðsstjóri íþróttasviðs Háskólans í Reykjavík. Fyrir tveimur árum hóf Hafrún að rann- saka kynjahlutföll í íþróttum ásamt Bjarna Má Magnússyni, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, og Margréti Lilju Guðmunds- dóttur, aðjúnkt á íþróttasviði við tækni- og verkfræðideild sama skóla. Í grein sem þau Hafrún og Bjarni fengu birta í Fréttablaðinu á sínum tíma benda þau á að íslenska ríkið hafi skuldbundið sig á alþjóðavettvangi til að tryggja kynjajafnrétti á sviði íþróttamála. Þau Bjarni hafa síðan þetta var skoðað kynjamál í íþróttum frá ýmsum hliðum og stóðu m.a. fyrir ráðstefnu um lagalegt umhverfi íþrótta á Íslandi með hliðsjón af kynjajafnréttissjónarmiðum. Íþróttafélög þurfa að standa sig betur Hafrún segir að í ljósi alþjóðlegra skuldbind- inga íslenska ríkisins megi ætla að ríkinu beri skylda til að sjá til þess að skoða betur fjár- útlát til íþróttafélaga og stöðva eða hægja á fjárveitingum til þeirra félaga sem standa sig ekki í jafnréttismálum. Þetta varð óvænt að veruleika í tengslum við #MeToo-byltinguna þegar stjórn Sam- bands íslenskra sveitarfélaga hvatti sveitar- félög til að skilyrða fjárveitingar til íþrótta- félaga og annarra félaga sem bjóða upp á tómstundaiðkun fyrir börn og unglinga, því að félögin setji sér siðareglur, viðbragðs- áætlanir og fræði sitt fólk um ofbeldi, kyn- ferðislega áreitni og kynferðislegt ofbeldi. Í kjölfarið verði félögin að sýna fram á að farið sé eftir jafnréttisáætlunum og jafn- réttislögum í starfi sínu. En hvernig hafa undirtektirnar verið? „Undirtektirnar hafa verið mjög góðar. Stundum getur verið erfitt að frá svör frá íþróttafélögunum. En það skýrist auðvitað af álagi á flestum félögum. Þau hafa nóg annað að gera en að leita upplýsinga fyrir okkur,“ segir Hafrún og bendir á að enn eigi mikið eftir að koma út í tengslum við rannsóknina á kynjajafnrétti í íþróttum. „Við ætlum að skrifa nokkrar greinar og erum komin langt með gagnasöfnun. Ein grein er í ritrýni og kemur vonandi út í lok sumars í tengslum við alþjóðlega íþrótta- ráðstefnu sem verður í Háskólanum í Reykjavík í ágúst,” segir Hafrún. Ráðstefnan verður dagana 15.–17. ágúst og er þetta ellefta ráðstefnan sem haldin er um stöðu jafnréttismála í íþróttum. Skoðar íþróttir með jafnréttis- gleraugum Hafrún Kristjánsdóttir segir margt hafa komið í ljós í rannsókn sinni á jafnrétti í íþróttum. Á döfinni sé stór alþjóðleg ráðstefna í lok sumars. „Eng an kyn bund inn grein ar mun á heim ild um eða skyldum hvað varðar íþrótt ir er að finna í gild andi lög gjöf. Ekki er held ur fjallað um jafn rétt is mál, eða stöðu kynj anna, með sér stök um hætti í lög gjöf inni. Þannig er ekki gerður laga leg ur grein ar- mun ur á íþróttaiðkun kynj anna, fjár mun um sem skuli leggja til íþróttaiðkun ar eða annarra sjón ar miða sem eiga ræt ur í jafn rétti kynj anna í gild andi íþrótta lög um.“ María Rún Bjarnadóttir, lögfræðingur og doktorsnemi við Sus sex-há skóla, sagði þetta í erindi sem hún flutti á ráð- stefnu um kynjajafnrétti í íþróttum í febrúar. María kynnti niðurstöður hluta rannsóknar um hlutverk ríkisvaldsins við að tryggja kynjajafnrétti í íþróttum. Á ráðstefnunni kom fram að í gild andi íþrótta lög um frá 1998 er ekk ert fjallað um kynja sjón ar mið þó svo að legið hafi fyr ir bæði þings álykt un frá 1992 og til lög ur sér stakr ar nefnd ar sem skipuð var 1996 til þess að auka hlut kvenna í íþrótt um.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.