Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2018, Blaðsíða 20

Skinfaxi - 01.01.2018, Blaðsíða 20
20 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands E r gerðar eru kröfur til íþróttamannvirkja og aðstöðu til íþróttamannvirkja þarf að taka mið af mörgum þáttum þegar horft er til framtíðar, ekki síst breyttum þörfum og kröfum notenda. Fólk lifir almennt lengur en áður, það hreyfir sig meira, almenningur stundar alls konar íþróttir sér til heilsubótar og hópurinn er orðinn fjölbreyttari. Þetta er ástæðan fyrir því að hönnuðir íþróttamannvirkja þurfa að taka tillit til fleiri þátta í húsagerðinni en áður að mati Alþjóða- samtaka um íþrótta- og tómstundamannvirki (e. The International Association for Sports and Leisure Facilities, skammstafað IAKS). Samtökin hafa tekið saman nokkur atriði sem þau telja að skipti máli fyrir íþróttamannvirki framtíðarinnar. Sumt þekkja Íslendingar vel enda er fyrir löngu búið að innleiða sumt af því hér á landi sem ekki þekkist í öðrum löndum. 1. Fjölnota íþróttahús og tengingar við aðra starfsemi. Samnýting og samlegðaráhrif séu höfð að leiðarljósi við mannvirkjagerðina. Skipuleggja þarf allt rými fyrir mismunandi greinar og fjölþætta starfsemi. 2. Sjá þarf til þess að umhverfið hvetji til hreyfingar í stað þess að letja til hreyfingar. Aðstaðan þarf að vera slík að hægt sé að bjóða upp á ýmsa heilsueflandi viðburði. 3. Íþróttamannvirki þurfa að vera hönnuð jafnt fyrir alla, fatlaða sem ófatlaða, börn, full- orðna og eldri borgara sem eiga erfitt með að komast á milli staða. Aðgengi verður því að vera gott og almennt. 4. Skipulag og hönnun íþróttamannvirkja er samvinnuverkefni því að rýmið á að þjóna samfélaginu. Við þarfagreiningu í aðdraganda framkvæmda þarf að hlusta á raddir kennara, þjálfara, iðkenda, íbúa í nágrenninu og ann- arra sem geta notað húsið á einn eða annan hátt. Mikilvægt er að húsið geti þjónað sem flestum. 5. Talsverður munur er á íþróttaaðstöðu og viðburðum í eigu félagasamtaka og einka- aðila. Svæði í eigu þeirra síðarnefndu hafa til- hneigingu til að einskorðast við tiltekna hreyf- ingu eða greinar. Líkamsræktarstöðvar og knattspyrnuvellir félagsliða eru dæmi um íþróttaaðstöðu fyrir tiltekinn hóp fólks. Dæm- in sanna að félagasamtök hafa úr minni fjár- munum að ráða en einkaaðilar til uppbygg- ingar svæða sinna og til uppbyggingar greina. 6. Við þéttingu byggðar þarf að tryggja til- vist opinna og grænna svæða svo að fólk geti komið þar saman og stundað þá heilsuefl- ingu sem það vill. Græn svæði geta verið hjarta samfélaga. Leikvellir barna eru nefndir sérstaklega sem slík svæði. 7. Við hönnun íþróttamannvirkja verður að fara eftir byggingarstöðlum hverju sinni og tryggja öryggi þeirra sem nota aðstöðuna. 8. Við hönnun mannvirkja nú þarf að huga að sjálfbærni og umhverfisþáttum. Tryggja þarf að notuð séu vottuð og viðurkennd byggingarefni og að leitað sé eftir því að draga úr orkunotkun. 9. Nútímafólk krefst upplýsinga um landsins gagn og nauðsynjar. Við hönnun íþrótta- mannvirkja og íþróttaaðstöðu þarf að huga að þróun í tækni. Fólk er með snjallúr sem segir til um hjartslátt og árangur þess. En auk þess er hægt að nýta farsíma notenda til að kalla fram upplýsingar og deila með öðrum á sameiginlegum sjónvarpsskjá. Þar fyrir utan hafa leikjaframleiðendur tekið íþróttir upp á arma sína. Hlutur íþrótta mun aukast í sýndar- veruleika (VR). Greinilegustu merki um heilsu- eflingu með hjálp tækni og leikja eru Pokémon Go og ýmsir hreyfileikir í Wii-tölvuna. 10. Fólk gerir almennt kröfur um að fá bestu íþróttaaðstöðu sem kostur er á. Mikilvægt er að aðstaðan verði góð víðast hvar. Hönn-uðir íþróttamannvirkja, sveitarstjórnarfólk og aðrir sem koma að uppbyggingu íþróttasvæða verða að fylgjast með helstu straumum og stefnum og uppfylla alþjóðlegar kröfur. Umfjöllun IAKS um strauma og stefnur má nálgast á: https://www.iaks. org/sites/default/ files/iaks_2020_ flyer_en_0.pdf Höfuðstöðvar DGI í Álaborg á Jótlandi eru dæmigerðar fyrir hús sem þjónar mörgum í senn. Í húsinu eru skrifstofur DGI, samkomusalir, veitingasala og æfingasalir á mörgum hæðum. Dalskóli í Úlfarsárdal er dæmi um hús sem sameinar marg- þætta en tengda starfsemi. Þar er samþættur leik- og grunn- skóli auk frístundaheimilis. Í húsinu verða einnig menningar- miðstöð, almenningsbókasafn og inni- og útisundlaug ásamt íþróttahúsi. Áætlað er að framkvæmdum við menningarhús og innisundlaug verði lokið 2021 og að útisundlaug og heitir pottar komi árið 2022. Til er ætlast að almenningsrými nýtist annarri starfsemi og að innkomuleið verði í skólann og íþróttahúsið. Íþróttaaðstaðan er fyrir alla Mikilvægt er að byggja íþróttahús sem eru örugg og þjóna sem flestum. Þetta er mat Alþjóðasamtaka um íþrótta- og tómstundamannvirki.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.