Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2018, Blaðsíða 12

Skinfaxi - 01.01.2018, Blaðsíða 12
12 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands K olbrún Lára Kjartansdóttir tók við sem formaður Ungmennaráðs UMFÍ í byrjun árs. Hún er tæplega 23 ára háskólanemi frá Hvammstanga, á öðru ári í leikskólakenn- aranámi við Háskóla Íslands. Hvernig stóð á því að hún fór í ungmennaráð? „Það er mömmu að þakka. Hún sá auglýs- ingu um ráðstefnuna Ungt fólk og lýðræði sem halda átti í Hveragerði árið 2011. Þá var ég 16 ára og bjó á Hvammstanga. Við kom- umst að því að ég gæti komist á ráðstefnuna í gegnum ungmennafélagið eða ungmenna- ráð. Á þessum tíma var ekki búið að stofna ungmennaráð á Hvammstanga og ég komst ekki. Mamma hafði þá samband við UMFÍ og spurði hvernig ætti að stofna ungmennaráð,“ segir Kolbrún þegar hún lýsir því hvernig þetta gekk til . „Ári seinna bjó ég hjá ömmu og afa í Reykjavík og var í Kvennaskólanum í Reykjavík. Ég heyrði af því að fulltrúa vantaði frá Norðurlandi í Ungmennaráð UMFÍ. Mig langaði að fara í það því að ég hef alltaf haft skoðanir á hinu og þessu og mig hefur dreymt um að láta heyra í mér og segja skoðun mína. En ég var alltaf svo feimin og þorði það aldrei. Í raun kunni ég það ekki, hvorki í grunnskóla og menntaskóla. Ég þorði heldur ekki að fara í nefndir eða verða fulltrúi nemenda í hópi kennara þótt mig langaði til þess. Þegar full- trúa vantaði í Ungmennaráð UMFÍ langaði mig að fara í ráðið – og ég lét verða af því. Formaður Ungmennafélags Vestur-Húnvetn- inga (USVH) tilnefndi okkur Eygló Hrund Guðmundsdóttur í ráðið og við komumst inn,“ segir Kolbrún en fyrsta ungmennaráð- stefna hennar var haldin á Hvolsvelli, sama ár og hún tók sæti í Ungmennaráði UMFÍ árið 2012. Þá var hún 17 ára. Lærir mikið í ungmennaráði Kolbrún segir setu sína í ungmennaráði UMFÍ hafa gert mikið fyrir sig og hún lítur á hana sem óformlegt gagnlegt nám. „Það er heilmikil upplifun að vera í ung- mennaráðinu og ég fékk mikla reynslu. Þar hef ég líka fengið ómetanleg tól fyrir lífstíð og mér hefur verið kennt að nota þau. Ég hef lært margt um nefndir og fundarsköp og er orðin fagmannlegri en áður. Þess vegna hef ég til dæmis aldrei þurft að fara á ræðu- námskeið og hef lært að koma skoðunum mínum á framfæri. Ég lærði það í vinnunni í ungmennaráðinu. Það er út af því sem ég fékk kjark til að fara í stjórnmálastarf í Háskólanum og bjóða mig fram í nafni Vöku,“ segir Kolbrún sem bætir við að þar fyrir utan hafi hún nokkrum sinnum farið ein og með öðrum á fundi og ráðstefnur á vegum ungmenna ráðsins á hinum Norðurlöndunum. Ótrúleg reynsla Kolbrún segir mestu reynsluna fást með því að skipuleggja ráðstefnur á borð við Ungt fólk og lýðræði. „Það er ótrúleg reynsla sem fæst með því að standa að svona ráðstefnu. Ég hef lært ótrúlega mikið af því og hef þrosk - ast sem manneskja. Ég mæli algjörlega með því að ungmenni kynni sér ungmennaráð UMFÍ og önnur ráð ungs fólks,“ segir Kolbrún. Kolbrún Lára: Lærði að tjá skoðanir sínar í Ungmennaráði UMFÍ Kolbrún Lára er nemandi á menntavísindasviði Háskóla Íslands og ætlar að verða leikskólakennari. Stórviðburður fyrir ungt fólk Í ungmennaráði UMFÍ sitja tíu ungmenni á aldrinum 16–25 ára. Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði hefur verið haldin árlega frá árinu 2009. Hún er ætluð jafnöldrum fólksins í ráðinu. Ungmennaráðstefnan hefur fest sig í sessi á meðal mikilvægustu viðburða fyrir ungt fólk á Íslandi. Á öllum ráð- stefnum eru vinnustofur í framkomu, fundarsköpum og ráð- stefnugestum er kennt að nýta sér ýmis tól í daglegu lífi.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.