Skinfaxi - 01.01.2018, Síða 26
26 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Hreyfivika UMFÍ
verður haldin í sjöunda sinn dagana
28. maí til 3. júní nk. Þátttakendum fjölgar
með hverju árinu. Það er allt að þakka
kraftmiklum boðberum hreyfingar.
Bjarney Guðrún Jónsdóttir á Vopnafirði
hefur staðið fyrir fjölmörgum viðburðum
í gegnum árin. Við spurðum hana að því
hvaða ráð hún eigi fyrir þá sem vilja gleðja
aðra og gerast boðberar hreyfingar.
Nú hefur þú verið boðberi hreyfingar í Hreyfi-
viku UMFÍ undanfarin ár – hvernig hefur það
verið að taka þátt í þessu verkefni?
„Mér hefur alltaf þótt gaman að taka þátt og
bjóða upp á einhverja tilbreytingu í samfélagi
mínu sem hvetur til hreyfingar.“
Hvað gefur það þér að taka þátt í svona
verkefni?
„Það gefur mér mikið. Ég hef gaman af því að
koma nýjum hugmyndum á framfæri og ein-
hvern veginn er ég alltaf tilbúin að vinna við
hreyfitengd verkefni þar sem hreyfing og lýð-
heilsa eru áhugamál mín.“
Finnst þér lýðheilsuverkefni sem þetta skipta
máli fyrir sveitarfélagið/samfélagið?
„Það skiptir sannarlega máli. Hvatning er
mikilvæg og svona hvetjandi verkefni koma
oft og tíðum einhverjum af stað, sumir taka
þátt í átakinu en hætta svo en aðrir halda
áfram reglubundinni hreyfingu og þótt það
sé bara einn þá finnst mér það mikill sigur og
verkefnið hefur áhrif.“
Ertu með góð ráð handa öðrum boðberum –
eða verðandi boðberum – í Hreyfivikunni í ár?
„Að taka endilega þátt og muna að allar hug-
myndir eiga rétt á sér og það þarf ekki að vera
Gott að brjóta vinnudaginn
upp með hreyfingu
flókið skipulag eða full dagskrá alla daga, allt
hefur áhrif. Stundum er það einfalda bara
betra.“
Hvernig geta fyrirtæki tekið þátt?
„Fyrirtæki geta tekið þátt með því að bjóða
upp á einhvers konar uppbrot tengt hreyf-
ingu á sínum vinnustað. Ef um stór fyrirtæki
er að ræða geta þau haft mikil áhrif á starfs-
Þú getur gerst boðberi í Hreyfiviku UMFÍ
með því að fara inn á: www.hreyfivika.is
UMFÍ hefur frá árinu 2012 tekið þátt í evrópsku lýðheilsu-
herferðinni Now We Move sem hér á landi heitir Hreyfi-
vika UMFÍ. Markmið verkefnisins er að fjölga þeim sem
hreyfi sig reglulega í Evrópu um 100 milljónir á árunum
2012 til 2020. Ástæðan fyrir því er sú að rannsóknir sýna
að einungis þriðjungur íbúa Evrópu hreyfir sig reglulega.
UMFÍ hvetur alla til að finna uppáhaldshreyfingu sína í
Hreyfivikunni og stunda hana reglulega eða að minnsta
kosti í 30 mínútur á hverjum degi.
Það er mjög einfalt að taka þátt í Hreyfiviku UMFÍ.
Það er hægt með því að gerast boðberi hreyfingar.
Hlutverk boðbera er að virkja fólkið í kringum sig, vekja
athygli á því sem er í boði tengt lýðheilsu og íþróttum
í nærsamfélaginu og standa fyrir viðburðum af ýmsum
stærðum og gerðum.
Viðburðir í Hreyfivikunni geta verið af ýmsum toga.
Þeir geta falist í opinni æfingu fyrir alla, göngutúrum,
ókeypis í sund eða harmonikkuballi.
Bjarney Guðrún Jónsdóttir, íþróttafræðingur með diplómu í sérkennslufræðum og verkefnisstjóri fram-
haldsdeildar Framhaldsskólans á Laugum.
fólk sitt með því að bjóða upp á reglubundna
hreyfingu og taka þátt í Hreyfivikunni með
því að setja upp einhvern skemmtilegan við-
burð í sveitarfélagi sínu.“
Hver er uppáhaldshreyfing þín og á fjölskylda
þín sameiginleg áhugamál?
„Uppáhaldshreyfing mín er útivera, blak og
svo hef ég mjög gaman af lyftingum.“