Skinfaxi - 01.01.2018, Qupperneq 4
4 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Góð heilsa felst í líkamlegu og andlegu
jafnvægi en hver og einn þarf að bera
ábyrgð á eigin heilsu. Markmið Ung-
mennafélags Íslands er Ræktun lýðs og lands.
Til að ná því markmiði vinnur hreyfingin að
líkamlegum og andlegum þroska félags-
manna sinna með því að gefa sem flestum
kost á að taka þátt í heilbrigðu félagsstarfi.
Landsmótið á Sauðárkróki
Fyrir nokkru kom út auglýsingabækl-
ingur fyrir Landsmótið sem haldið
verður á Sauðárkróki dagana 12. til
15. júlí nk. Það hefur verið einkar
fróðlegt að fylgjast með skipulagi
þessa mikla verkefnis sem hefur
skipað stóran sess í starfi ung-
mennafélagshreyf ingar-
innar áratugum saman.
Krafturinn og hug-
myndaauðgin, sem
landsmótsnefnd hefur
sýnt, eru eftirtektarverð og ber dagskráin þess
augljós merki. Á vettvangi Landsmótsins get-
ur hver sem er tekið þátt á eigin forsendum;
sumir keppa, aðrir leika sér eða láta bara vaða
en fyrir öllu er að allir skemmti sér. Þar verður
unnt að taka þátt í hefðbundnum greinum
ásamt því að ýmislegt nýtt er kynnt til sög-
unnar - eða hefur þú einhvern tíma heyrt
minnst á Krolf, Metabolic eða Patenque?
Að hitta fólk á förnum vegi sem rifjar
upp ógleymanlega skemmtilegar
minningar frá þátttöku á fyrri Lands-
mótum er mjög gefandi og sýnir
hversu mikilvægt starfið hefur verið
í tímans rás og er enn enda alltaf
mikilvægt að skapa góðar minning-
ar í góðra vina hópi. Í
bæklingnum er einnig
að finna hugaverða
grein um Unglinga-
landsmótið sem
haldið verður í
Góð heilsa – heilbrigt félagsstarf
Þorlákshöfn dagana 2. til 5. ágúst ásamt fróð-
legri umfjöllun um ráðstefnuna Ungt fólk og
lýðræði og Hreyfivikuna sem verður í maí
auk fjölda annarra áhugaverðra málefna.
Taktu þátt
Ljóst er að fram undan eru mörg áhugaverð
verkefni á vettvangi ungmennafélagshreyf-
ingarinnar sem vert er að gefa gaum enda
er fátt skemmtilegra en að taka þátt í öflugu
félagsstarfi og kynnast því fjölmarga fólki
sem að hreyfingunni kemur. Ég vil nota tæki-
færið og þakka öllu þessu öfluga og kraft-
mikla fólki, sjálfboðaliðum, starfsmönnum
og öllum þátttakendum kærlega fyrir ómetan-
legt framlag þeirra og góða viðkynningu
enda er hvaða þátttaka sem er í starfi ung-
mennafélaganna gefandi fyrir líkama og sál
og stuðlar þar með að góðri heilsu.
Jóhann Steinar Ingimundarson,
stjórnarmaður UMFÍ
Leiðari Skinfaxa:
Efnisyfirlit
Umf. Selfoss:
Verkefni
til fyrirmyndar 3
Sema Erla:
Viðbragðsáætlun
fyrir iðkendur 30
Ungmennaráðstefnan:
Ungt fólk
og lýðræði 38
Kolbún Lára:
Lærði að tjá
skoðanir sínar 12
6 Betra að launakostnaðurinn
dreifist
8 Íþróttafélög þurfa sterka
aðalstjórn
10 Lukkudýr geta gert mikið gagn
16 Fjölnir vill auka þjónustu við
deildirnar
18 Skoðar íþróttir með jafnréttis-
gleraugum
19 Metaðsókn í UTB að Laugum
20 Íþróttaaðstaðan er fyrir alla
22 Leitað til leikfélagsins í kreppunni
24 Niðurstöður könnunar vegna
#MeToo
26 Hreyfivika UMFÍ
28 Hestamannafélagið Borgfirðingur
29 Karlmenn einráðir í Skinfaxa
31 Formaður NSU vill efla sambandið
við Ísland
32 Ný persónuverndarlög
34 Passað upp á söguna
35 Sjálfboðaliðastarf opnaði dyr út í
heim
36 Grafið undan árangri áfengisvarna
42 Nýtt fólk í brúnni
43 Blakið á fleygiferð á Húsavík
Sauðárkrókur 12.–15. júlí 2018:
Búðu til þitt
eigið Landsmót 14–16
Lisbeth Trinskjær:
Skyldur þjálfara
þurfa að vera skýrari 24–25
www.pei.is
Borgaðu eftir 14 daga
eða dreifðu kaupunum
á allt að 36 mánuði
Kíktu á pei.is/heimild
og skoðaðu þína heimild!
Einföld og örugg
leið til að versla á netinu