Skinfaxi - 01.01.2018, Qupperneq 6
6 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Skinfaxi 1. tbl. 2018
Skinfaxi er tímarit Ungmennafélags Íslands.
Það hefur komið út samfleytt síðan árið 1909.
Blaðið kemur út ársfjórðungslega. Tímaritið
dregur nafn sitt af hestinum fljúgandi sem
dró vagn goðsagnaverunnar Dags er ók um
himinhvolfin í norrænum sagnaheimi.
Ritstjóri: Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
Ábyrgðarmaður: Haukur Valtýsson,
formaður UMFÍ
Ljósmyndir: Jón Aðalsteinn Bergsveinsson,
Örn Guðnason, Gunnar Gunnarsson, Ívar
Sæland o.fl.
Umbrot og hönnun: Indígó
Prófarkalestur: Helgi Magnússon
Auglýsingar: Miðlun ehf. o.fl.
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja
Kápa Skinfaxa er prentuð á 150 gr Munken
pappír sem er innfluttur frá Svíþjóð. Innsíður
eru prentaðar á 65 gr pappír.
Ritnefnd:
Gunnar Gunnarsson formaður, Örn Guðnason,
Eiður Andri Guðlaugsson, Elísabet Ásdís
Kristjánsdóttir og Guðmunda Ólafsdóttir.
Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFÍ, Sigtúni 42,
105 Reykjavík, sími: 568-2929
umfi@umfi.is – www.umfi.is
Starfsfólk UMFÍ:
Auður Inga Þorsteinsdóttir,
framkvæmdastjóri
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson,
kynningarfulltrúi og ritstjóri Skinfaxa
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi
og framkvæmdastjóri Landsmóta
(með aðsetur á Sauðárkróki)
Sabína Steinunn Halldórsdóttir,
landsfulltrúi og verkefnastjóri
Ragnheiður Sigurðardóttir,
landsfulltrúi og verkefnastjóri
Guðbirna Kristín Þórðardóttir, ritari
Stjórn UMFÍ:
Haukur Valtýsson, formaður
Örn Guðnason, varaformaður
Hrönn Jónsdóttir, ritari
Guðmundur Sigurbergsson, gjaldkeri
Ragnheiður Högnadóttir, meðstjórnandi
Gunnar Gunnarsson, meðstjórnandi
Jóhann Steinar Ingimundarson,
meðstjórnandi
Varastjórn UMFÍ:
Sigurður Óskar Jónsson,
Gunnar Þór Gestsson,
Lárus B. Lárusson og
Helga Jóhannesdóttir.
Forsíðumynd:
Forsíðumyndina tók ljósmyndarinn Ívar Sæland
af kátu Ungmennaráði UMFÍ á ráðstefnunni
Ungt fólk og lýðræði sem fram fór á Hotel Borealis
að Efri-Brú í Grímsnesi dagana 21.–23. mars 2018.
Ungmennafélag Íslands, skammstafað UMFÍ,
er landssamband ungmennafélaga á Íslandi.
UMFÍ var stofnað á Þingvöllum 2. ágúst 1907.
Sambandsaðilar UMFÍ eru 29 talsins.
Í hreyfingunni eru í dag um 160.000 félagar í
rúmlega 300 ungmenna- og íþróttafélögum
um land allt.
„Það er mikilvægt að hafa starfsmann í fullu
starfi. En það er erfitt fyrir félagið á staðnum.
Þess vegna skiptir miklu máli að taka upp við-
ræður við sveitarfélög eða aðra, svo sem fyrir-
tæki á staðnum, um að taka á sig launakostn-
að íþrótta- og tómstundafulltrúa í stað héraðs-
og ungmennasambandsins. Það er allra hag-
ur,“ segir Iða Marsibil Jónsdóttir, formaður
Héraðssambandsins Hrafna-Flóka í Vestur-
byggð.
Á 50. sambandsþingi UMFÍ á Hallormsstað
í fyrrahaust var m.a. rætt um að auka þyrfti
fjármagn til rekstrar héraðs- og ungmenna-
sambanda. Rætt var um að stjórnvöld eða
sveitarfélög leggðu sitt af mörkum með sama
hætti og þegar þrýst var á stjórnvöld um að
leggja fram aukið fjármagn til rekstrar sér-
sambanda Íþrótta- og ólympíusambands
Íslands (ÍSÍ).
Héraðssambandið Hrafna-Flóki er í sömu
eða svipaðri stöðu og mörg önnur sambönd
á landinu. Það greiðir allan launakostnað
framkvæmdastjóra sambandsins. Hjá öðrum
samböndum er framkvæmdastjóri ýmist í
hálfri stöðu eða öðru hlutfalli með öðrum
störfum. Þetta fyrirkomulag getur slitið í
sundur samfelluna sem ætti að vera í starf-
semi viðkomandi félags og dregur úr starfs-
öryggi starfsmanns.
Framkvæmdastjóri Héraðssambandsins
Hrafna-Flóka er jafnframt íþrótta- og tóm-
stundafulltrúi sveitarfélagsins. Fyrir þremur
Betra að launakostn-
aðurinn dreifist
Taki sveitarfélög á sig launakostnað íþrótta- og
tómstundafulltrúa af héraðssambandi getur starfið
batnað til muna.
árum fór héraðssambandið í samstarf með
Vesturbyggð, Tálknafjarðarhreppi og nokkr-
um stórum fyrirtækjum á svæðinu sem styrktu
starfið. Starfið er að stórum hluta bundið
íþróttaskóla héraðssambandsins, sem starfar
í þremur bæjarfélögum alla virka daga á
skólaárinu og framkvæmdastjórinn sinnir
sem íþróttafulltrúi. Starfsfólki hefur líka fjölg-
að í kringum íþróttaskólann. Allur þessi rekst-
ur eykur baggann á héraðssambandinu og
og getur orðið þungur í skauti.
„Það er hagur sveitarfélaganna að þau taki
á sig launakostnað íþrótta- og tómstunda-
fulltrúa. Það ætti að efla héraðs- og ung-
mennasambönd landsins,“ segir Iða Marsibil.
Nemendur Grunnskólans á Bíldudal skemmtu sér á kósýdegi í íþróttaskólanum ásamt íþrótta- og tómstundafulltrúan-
um Páli Vilhjálmssyni sem jafnframt er framkvæmdastjóri Héraðssambandsins Hrafna-Flóka.
Iða Marsibil Jónsdóttir, formaður Héraðssambandsins Hrafna-Flóka.