Skinfaxi - 01.01.2018, Qupperneq 8
8 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Skýru verklagi er ábótavant
hjá íþróttafélögum. Þetta
skilar sér í verri nýtingu á
tíma, orku og vinnuframlagi
félagsmanna, starfsmanna
og sjálfboðaliða, að mati
Davíðs Svanssonar.
„Það geta allir unnið stefnumótun. Vandinn
er hins vegar að vinna eftir henni. Það kom
okkur reyndar á óvart hversu lítið var um
skýra stefnumótun hjá íþróttafélögum yfir-
leitt,“ segir Davíð Svansson.
Davíð er fyrrverandi markvörður í meist-
araflokki karla í handbolta í liði Afturelding-
ar. Hann skilaði í fyrrasumar lokaverkefni í
tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykja-
vík. Meðhöfundur hans var Þrándur Gíslason
Roth, fyrrverandi fyrirliði og línumaður Aftur -
eldingar. Ætla mætti að heimatökin hefðu
verið hæg því að viðfangsefnið var stefnu-
mótun Aftureldingar.
„Við höfðum verið lengi hjá félaginu og
verið með mikil tengsl inn í það. Okkur fannst
þess vegna tilvalið að skoða Aftur eldingu.
Ætlunin var að búa til stefnumótun fyrir félag-
ið. En það hafði verið gert árið 2009. Þótt hún
hefði verið gerð til aðeins 3–4 ára breyttum
við um stefnu, unnum út frá henni, tókum
stöðugreiningu, mátum Aftureldingu og
rýndum í það hvernig unnið væri eftir stefn-
unni og hvað mætti gera betur. En Afturelding
er stór klúbbur og því gerðum við lítið annað
í tvo mánuði en að ræða við stjórnarmenn
Aftureldingar og formenn,“ segir Davíð.
Davíð og Þrándur komust svo nærri félag -
inu að ritgerðin er lokuð almenningi til 2020.
Íþróttafélög þurfa sterka aðalstjórn
Í grófum dráttum leiddu niðurstöðurnar í
ljós að skortur á formfestu og skýrleika í verk-
lagi Aftureldingar og boðleiðum og samskipt -
um innan félagsins virðist hefta öra framþró-
un félagsins. Áherslur, stefna og verklag virð-
ast haldast í hendur við stefnu og sýn þeirra
sem sitja við stjórnvölinn hverju sinni. Þetta
Svona var stöðugreiningin unnin
Við stöðugreiningu Davíðs og Þrándar var unnið út frá hug-
myndum og áliti forsvarsmanna deilda Aftureldingar, for-
manns félagsins og framkvæmdastjóra. Notast var bæði
við megindlegar og eigindlegar aðferðir við gagnasöfnun
frá formönnum, yfirþjálfurum og öðrum stjórnarmönnum
innan hverrar deildar. Sendur var út spurningalisti og hon-
um fylgt eftir með viðtölum. Þá fóru fram eigindleg viðtöl
við framkvæmdastjóra, formann UMFA og við bæjarstjóra
sveitarfélagsins.
leiðir af sér að tími, orka og vinnuframlag
félagsmanna, sjálfboðaliða og starfsmanna
nýtist ekki sem skyldi sökum illa skilgreindra
hlutverka þeirra, ábyrgðar og boðleiða til
annarra þátta starfsins.
Stefnumótun ekki skýr
Þótt mikið efni sé til um stefnumótun fyrir-
tækja er minna um slíkt þegar kemur að fél ög-
um, allra síst íþróttafélögum. Þeir Davíð og
Þrándur skoðuðu hvernig stefnumótun
félaga er birt á heimasíðum þeirra og kynnt
starfsfólki og félagsmönnum. Þeir unnu hins
vegar ekki mikið með önnur félög en Aftur-
eldingu.
Hvernig er staðan?
„Það kom okkur á óvart hversu lítið er um
skýra stefnumótun almennt hjá félögum.
Við ræddum ekki mikið við önnur félög en
skoðuðum heimasíður þeirra. Mörg félög
birta upplýsingar um gildi sín en fá birta
stefnumótunina. Þegar við fórum að skoða
þetta hélt ég að það væri algengara en
raunin er,” segir Davíð.
„Tilfinning mín er sú að í þeim tilvikum þar
sem stefnumótun er lokið þurfi að vera skýr-
ara hvernig á að vinna eftir henni og eftir
hvaða leiðum skuli vinna. Þótt aðalstjórn og
starfsfólk geri það flest eru margir sjálfboða-
liðar hjá ungmennafélögum. Lítil tengsl geta
því verið á milli stefnumótunar félaga, aðal -
stjórnar og svo sjálfboðaliðanna sem koma
með sínar eigin skoðanir að starfinu. Íþrótta -
félög þurfa að vera með mjög sterka aðal-
stjórn sem getur stýrt öllum í sömu átt. En
það er erfitt,“ segir Davíð og bætir við að
forvitnilegt sé að skoða stöðuna hjá öðrum
félögum og hvernig þessum málum sé
háttað í öðrum löndum.
Margrét Lilja Guðmundsdóttir, að-
júnkt á íþróttafræðasviði við tækni-
og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík,
var leiðbeinandi þeirra Davíðs og Þrándar í
lokaverkefninu ásamt Willum Þór Þórssyni,
þingmanni, viðskiptafræðingi og fyrrver-
andi handknattleiks- og knattspyrnu-
þjálfara.
Spurð að því hvernig staðan sé hjá
félögum yfirleitt þegar kemur að verk-
lagi svarar hún: „Það fer eftir því hversu
fastmótaðir innviðir félaganna eru, hvað
verklagið er skýrt og hversu stór starfs-
mannahópurinn er. Það er ljóst að starfið
ræðst að stórum hluta af því hverjir eru
við stjórn viðkomandi félags, hversu gott
baklandið er og hversu mikið fjármagn
félagið hefur til umráða.“
Margrét segir að hún hafi ekki skoðað
öll íþróttafélög og ungmennafélög í land-
inu og geti auðvitað ekki annað en talað
um stöðuna á almennum nótum.
Ríkið getur gert meiri kröfur
Margrét bendir á að íþróttafélögin gegna
veigamiklu hlutverki í íslensku samfélagi.
Um 90% af hverjum árgangi barna fari ein-
hvern tíma í gegnum starf íþróttafélags. Þá
hafi rannsóknir sýnt að skipulagt íþróttastarf
sé einn af lykilþáttum hér á landi þegar kem-
ur að forvörnum gegn vímuefnaneyslu
ungmenna.
„Það er að mínu mati mjög mikilvægt að
íþróttafélögin séu viðurkennd sem mikil-
vægar stofnanir og fái fjármagn í takt við
það. Um leið gætu sveitarfélög og ríki
gert meiri kröfur um skipulagða stefnu
og rekstur. Rekstur íþróttafélaga er flókið
samspil fyrirtækjareksturs og sjálfboða-
liðastarfs. Það vantar víða upp á stefnu-
mótun og skýra verkferla eins og þeir
Davíð og Þrándur fjölluðu um í lokarit-
gerð sinni. Skýrt verklag, fordæmi og
eftirfylgni mætti vel hugsa að kæmu frá
sérsamböndum og ÍSÍ sem ÍSÍ vissulega
gerir með t.a.m. Fyrirmyndarfélagi ÍSÍ.“
Hvað ráð ert þú með handa íþrótta-
félögum í þessum málum?
„Mikilvægt er að marka stefnu, hafa verk-
lag skýrt og boðleiðir ljósar. Þá skiptir
miklu máli að þekking sé skráð og sitji
eftir í félaginu því mannabreytingar eru
oft örar þar sem fjöldi sjálfboðaliða fer í
gegn. Með skýrri og einfaldri stefnumót-
un eru meiri líkur á að tími, orka og vinnu-
framlag félagsmanna, sjálfboðaliða og
starfsmanna nýtist í kjarnastarfsemi hvers
félags,“ segir Margrét Lilja Guðmundsdóttir.
Íþróttafélög þurfa viðurkenningu sem mikilvægar stofnanir
Davíð Svansson.
Margrét Lilja
Guðmunds-
dóttir.