Skinfaxi - 01.01.2018, Blaðsíða 15
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 15
„Við erum bæði skráð í skotfimi á 22 kali-
bera riffla. En svo kom sveitamaðurinn
upp í okkur og við skráðum okkur líka
í stígvélakastið,“ segir Aðalheiður Lára
Guðmundsdóttir sem varð 43 ára í byrj-
un árs. Hún hefur æft skotfimi í fjögur
ár og hefur unnið mikið með Skotfélagi
Snæfellsness þótt hún hafi nýverið flutt
úr Grundarfirði í Voga á Vatnsleysu-
strönd.
Aðalheiður segir Pétur Má Ólafsson,
eiginmann sinn, hafa farið með byssu
frá unga aldri enda er hann alinn upp í
sveit en æfir með Skotfélagi Keflavíkur.
„Þetta er fjölskyldusportið,“ segir Aðal-
heiður en bætir við að hún hafi aðeins
keppt í skotfimi, aldrei farið á veiðar.
„Ég hef aðeins keppt innan félags
míns og keppt innanhúss í Borgarnesi.
Það er alltaf gaman að fara út úr bænum
og hitta nýtt fólk, eins og á Sauðárkróki.
Þegar við komum þangað ætlum við að
prófa ýmislegt,“ segir hún og ætlar að
ýta á strákana í skotfélaginu fyrir vestan
að skella sér norður á Landsmótið á
Sauðárkróki í sumar.
Björg Inga Erlendsdóttir keppti í glímu
á Unglingalandsmóti UMFÍ í Vík fyrir 13
árum. Nú snýr hún aftur á mót UMFÍ til
að keppa í brennibolta.
Brennibolti er þegar orðinn með vin-
sælustu greinunum á Landsmótinu og
fjöldi fólks þegar búinn að skrá sig í hann.
Björg Inga Erlendsdóttir, sem verður 27
ára á þessu ári, er þar á meðal. Hún hefur
æft brennibolta tvisvar í viku í Kórnum í
Kópavogi síðastliðin tvö ár.
Hún var ekki að leita að þessari grein
þegar hún rak augun í auglýsingu um
æfingar í brennibolta í Kórnum á Face-
book en mundi samstundis eftir því hvað
íþróttin var skemmtileg í grunnskóla og
skellti sér á æfingu. Með henni keppa
Pétur Már og Aðalheiður fagna fyrstu sætum hvort í sínum flokki í skotfimi.
Vill fá
strákana
norður í
skotfimi
konur á öllum aldri. „Ég veit ekki hvað við er-
um margar í brenniboltanum. En þetta er
góður hópur, 4–5 í liði, og kannski fimm lið,“
segir hún og telur að flestar, sem hún æfir
með, ætli að skrá sig í greinina á Landsmót-
inu auk karlaliðs. Þetta verður fyrsta keppni
hópsins utan keppni innbyrðis.
Björg þekkir til móta UMFÍ. Hún æfði glímu
með Val á Reyðarfirði á yngri árum og keppti
undir merki UÍA á Unglingalandsmótinu í Vík
í Mýrdal um verslunarmannahelgina 2005.
Hún segist nú hafa lagt glímubeltið á hilluna.
„Brennó er ferlega skemmtileg íþrótt. Hún
er erfið, eiginlega hörkupúl,“ segir Björg Inga
og bætir við að óráðið sé hvort hún keppi í
fleiri greinum. „Við fjölskyldan förum norður
og skoðum hvað er í boði,“ segir hún.
Brenniboltinn slær í gegn
Aðalheiður Lára og eigin-
maður hennar hafa bæði
skráð sig í skotfimi og
stígvélakast. Þau ætla líka
að prófa ýmislegt fleira.
Aðalheiður einbeitir sér að því að skjóta í mark.