Skinfaxi - 01.01.2018, Page 19
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 19
„Það er búið að vera nóg að gera hjá
okkur í vetur. Við höfum ekkert aug-
lýst og því er það sem ræður þessu
orðsporið sem fer af okkur sem berst
á milli fólks, það er gott,”
segir Anna Margrét Tómasdóttir, forstöðu-
kona Ungmenna- og tómstundabúða UMFÍ
á Laugum í Sælingsdal.
100% fjölgun
Ungmennabúðirnar eru fyrir börn í 9. bekk
grunnskóla sem koma þangað frá skólum úti
um allt land og dvelja þar fimm daga í senn.
Anna Margrét er búin að bóka 1.700 krakka
fyrir næsta vetur. Á sama tíma í fyrra var búið
að bóka pláss fyrir 800 börn. Fjölgunin á milli
ára er því rúm 100%. Til marks um annasamt
líf á Laugum er að 1.100 krakkar hafa verið
þar frá áramótum.
Anna segir fjölgunina skýrast að hluta af
því að skólastjórnendur hafi í meira mæli en
áður pantað dvöl fyrir nemendur sína. Ákvarð-
anir voru oft áður í höndum foreldrafélaga.
Ljóst er að erfitt verði að fá pláss og komast
þá færri að en áður í Ungmennabúðirnar,
segir Anna Margrét.
„Orðspor Ungmenna- og tóm-
stundabúðanna er mjög gott og æ
fleiri skólastjórnendur og foreldrar
eru meðvituð um hvað það gerir
börnum gott að breyta um umhverfi,
fá frí frá daglegu amstri, fjölskyldu og
aðstæðunum sem þau eru alltaf í.
Krakkarnir fá líka skýran ramma hjá okkur.
Þeir fá ekki að nota snjallsíma og tölvur hér
á Laugum og þurfa að gegna ákveðnum
skyldum. Hér hafa gjörðir afleiðingar. Það
er staðreynd að sumir nemendur vaka lengi
fram eftir heima fyrir, til dæmis við að spila
tölvuleiki, og mæta því þreytt í skólann. Hjá
okkur hvílast þau betur og vakna hress og
hafa næga starfsorku allan daginn. En þetta
er líka hvíld fyrir mörg börn sem koma úr
erfiðum aðstæðum,“ segir Anna Margrét.
Litlu sigrarnir skipta máli
„Börnin þrífast mjög vel innan þess ramma
sem við bjóðum upp á í Ungmenna- og tóm-
stundabúðunum. Við tökum á öllum málum
sem skólarnir ná oft ekki að gera. Ef nemandi
sýnir neikvæða hegðun verður strax afleið-
ing af henni. En við tökum á öllum málum í
samvinnu við kennara sem koma með nem-
endum sínum. Börnin fá ekki að hanga í sím-
um og tölvum en við reynum að veita öll-
um umhyggju, nóg að borða og sköpum
aðstæður fyrir reglulegan svefn og sum börn
standa utan við hópinn. Í vikulokin eru allir
endurnærðir á líkama og sál og glaðir saman.
Það gleður mitt hjarta mest, það eru þessi
litlu sigrar,“ segir Anna Margrét.
METAÐSÓKN
Í UNGMENNA- OG TÓMSTUNDABÚÐIR UMFÍ
Ungmenna- og tómstundabúðir UMFÍ hafa
verið á Laugum í Sælingsdal síðan árið 2005.
Laugar voru seldar í byrjun árs. Leigusamn-
ingur UMFÍ við nýja eigendur rennur út í maí
árið 2019. Nefnd á vegum UMFÍ vinnur að því
að tryggja starfsemina til framtíðar hvort sem
reksturinn verður áfram á Laugum eða annars
staðar á landinu.