Skinfaxi - 01.01.2018, Síða 34
34 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
B jartur Aðalbjörnsson skrifar nú
sögu Ungmennafélagsins Einherja
á Vopnafirði. Hann segir söguna
teygja anga sína víðar en hann
grunaði áður og hann brýnir fyrir
forsvarsmönnum ungmennafélaga að
tryggja að heimildir um félögin fari ekki í
glatkistuna.
„Það hefur komið mér helst á óvart hve
lítið Vopnfirðingar hafa hirt um að skrá sögu
félagsins,“ segir Bjartur Aðalbjörnsson. Hann
byrjaði á síðasta ári að safna heimildum og
ljósmyndum og skrá sögu Ungmennafélag-
ins Einherja á Vopnafirði. Að auki er hann að
grafast fyrir um starfsemi annarra ungmenna-
og íþróttafélaga á Vopnafirði fyrir stofnun
Einherja árið 1929. Fyrirhugað er að minnast
félagsins á einhvern hátt þegar félagið fagnar
90 ára afmæli á næsta ári.
Bjartur hefur leitað heimilda víða við sögu-
ritunina.
„Ég hef verið að grúska í gömlum tímarit -
um í meira en ár og grafið upp margt áhuga-
vert í gömlum tölublöðum af Skinfaxa. Ég
vonast til að geta skrifað sögu Einherja í ein-
hverri mynd á afmælisárinu. Gerðabækur
félagsins frá árunum 1936–1985
hafa varðveist og veita góða innsýn
í starf félagsins á því tímabili. Í þeim
komst ég m.a. að því að félagið var
stofnað 1929 en ekki 1925 eins og
hingað til hefur verið talið. Mig
vantar þó fundargerðabók frá árunum
1929–1936 en ég held í vonina um að hana
sé einhvers staðar að finna,“ segir Bjartur.
Honum hefur líka áskotnast mikið magn
ljósmynda sem hann skannar inn í tölvu.
Einnig hefur hann fengið gömul bréf, í hend-
ur og lesið bækur og tímarit bæði UMFÍ og
UÍA sem fjalla á einn eða annan hátt um
sögu Ungmennafélagsins Einherja. Bjartur
hefur líka grúskað í Héraðsskjalasafni Aust-
firðinga og tekið viðtöl við gamla félags-
menn og margt fleira.
En hefur eitthvað komið á óvart?
„Það sem hefur helst komið mér á óvart er
hvað margir komu að starfi Ungmennafélags-
ins Einherja fyrstu áratugina, fólk sem ég
hafði aldrei heyrt um. Ég hef því eytt miklum
tíma á Íslendingabók og í lestur minningar-
greina um gamla stjórnarmenn og félags-
menn í ungmennafélaginu. Næsta verkefni
er að hafa samband við afkomendur gamalla
Brýnir fyrir ungmennafélögum
að passa upp á söguna
Lumi fólk á efni úr sögu Ungmenna-
félagsins Einherja eða á góðri frásögn
úr sögu félagsins er best að hafa
samband við Bjart á netfanginu
bjartur@einherji.net eða hringja í
hann í síma 843-9759.
formanna til að nálgast ljósmyndir af þeim.
Þá hafa vinir mínir á elliheimilinu hérna á
staðnum getað hjálpað mér við að fylla í ein-
hverjar eyður en ég vildi óska þess að sú
grunnvinna sem ég er að vinna núna hefði
verið unnin 20–30 árum fyrr þegar kynslóðin,
sem kom að stofnun og starfsemi á fyrstu
árum félagsins, var á lífi,“ segir Bjartur.
Bjartur mælist til þess að þau ungmenna-
félög sem hafa ekki látið skrá ágrip af sögu
sinni komi á laggirnar sögunefndum innan
félaganna sem sjái um öflun heimilda og
skrásetningu.
„Ég ætla að leggja það til á næsta aðal-
fundi Einherja að slík nefnd verði stofnuð
hér. Það er mikið verk að vinna að svona
sagnaritun einn, í fullri vinnu og vera einnig
leikmaður með félaginu,“ segir Bjartur Aðal-
björnsson.