Skinfaxi - 01.01.2020, Page 14
14 S K I N FA X I
Frumvarpi um sérstakt tímabundið fjárfestingarátak til að
vinna gegn samdrætti í hagkerfinu útbýtt á Alþingi. Í frumvarp-
inu eru 750 milljónir króna eyrnamerktar m.a. íþróttastarfi.
Vinnuhópur íþróttahreyfingarinnar settur á laggirnar.
COVID-19
og áhrifin á
íþróttastarfið
Faraldur COVID-19 af völdum nýrrar kórónaveiru hefur breiðst hratt
út um heimsbyggðina frá því um áramót. Hún hefur haft áhrif um allan
heim og raskað lífi margra. Hér má sjá í mjög grófum dráttum tímalínu
þróunarinnar frá upphafi, með áherslu á Ísland og íþróttastarfið.
Yfirvöld í Kína greina
Alþjóðaheilbrigðis-
stofnuninni (WHO) frá
tilvikum öndunarfæra-
sýkingar í Wuhan.
Fyrsta tilfelli
kórónavíruss-
ins greinist í
Bandaríkj-
unum.
Áhrifin
Jónas Halldór Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Völsungs á Húsavík:
„Við fellum niður 100 skipulagðar
æfingar í hverri viku. Það hefur áhrif
á 600 iðkendur í skipulögðu starfi
félagsins. Mikilvægasta hlutverk
okkar er að halda iðkendum við efn-
ið og í starfinu. Við getum nýtt tím-
ann til að skipuleggja starfið svo að
það gangi áfallalaust þegar við kom-
umst aftur í gang. En öllu skiptir að
halda iðkendum virkum. Um leið og
fólk tekur sér hlé frá íþróttum tökum
við skref aftur á bak. Og þá fyrst lendum við í vanda. Það er mikil-
vægt að íþróttafélögin gleymist ekki þegar samfélagið fer aftur í
gang.“
Við eigum öll að hlýða Víði!
UMFÍ fékk vísbendingar um að
íþróttafólk í félögum væri að
stunda íþróttaæfingar úti þrátt
fyrir strangt samkomubann.
Fjölmiðlar ræddu við Auði
Ingu Þorsteinsdóttur, fram-
kvæmdastjóra UMFÍ, sem
sagði þetta ekki til fyrirmyndar.
Allt íþróttastarf ætti að liggja
niðri, bæði barna og fullorð-
inna, boltaíþróttir, hestaíþrótt-
ir, dans og aðrar greinar.
Sektir fyrir
brot gegn
sóttvarna-
lögum
31. des.
2019
21. jan.
2020
COVID-19
greint í Noregi.26. feb.
2020
Fyrsta smit
COVID-19
staðfest á
Íslandi.
Neyðarstigi
lýst yfir á
Íslandi.
6. mars
2020
Alþingi samþykkir frumvarp félags- og barnamála-
ráðherra um rétt til greiðslu hlutagreiðslna vegna
minnkaðs starfshlutfalls. Það gerir starfsmönnum
og verktökum íþróttafélaga, þjálfurum og öðrum á
launaskrá kleift að sækja um hlutagreiðslur vegna
skerts starfshlutfalls. Gert er
ráð fyrir að þær geti numið
20−75% skerðingu.
„Íþrótta- og ungmenna-
félög gegna veigamiklu hlut-
verki í íslensku samfélagi.
Í ljósi mikilla áhrifa
COVID-19 á starfsemi
þeirra var í mínum
huga nauðsynlegt
að þessi lög næðu
til þeirra,“ segir
Ásmundur Einar
Daðason, félags-
og barnamála-
ráðherra.
20. mars
2020
Ríkið styrkir íþróttahreyfinguna
Mennta- og menningarmálaráðherra bætir
750 milljónum króna við fjárveitingar 2020
í menningarverkefni og stuðning við íþrótta-
starf. Til viðbótar er 400 milljónum bætt
við sem verja á í rann-
sóknartengd verkefni.
„Mikilvægt að
þessir fjármunir kom-
ist í umferð sem allra
fyrst, svo að afkoma
fólks og félaga,
sem starfa á
þessum sviðum,
verði betur
tryggð,“ segir
Lilja Alfreðsdóttir,
mennta- og menn-
ingarmálaráðherra.
21. mars
2020
Hertar
takmarkanir
á samkomum
– mörkin sett
við 20 manns
í stað 100.
22. mars
2020
25. mars
2020
26. mars
2020
27. mars
2020
27. mars
2020