Skinfaxi - 01.01.2020, Blaðsíða 20
20 S K I N FA X I
„Okkur finnst svo margir gera dásamlega hluti
og fannst þetta hárrétti tíminn til að snúa athygli
fólks frá kórónaveirunni og horfa á allt það
góða og fallega í samfélaginu. Það er svo mikið
hægt að gera og það getur peppari dagsins,“
segir Hildur Bergsdóttir, stjórnarmaður í
Ungmennafélaginu Þristi og fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Ungmenna- og íþróttasam-
bands Austurlands (UÍA).
Félagar Hildar í Þristi á Fljótsdalshéraði og í
Fljótsdal fengu þá flugu í höfuðið á sunnudegi
að búa til vettvang þar sem fólk getur hvatt
aðra til að fá hugmyndir að hreyfingu, benda
á staði í nágrenninu sem hægt er að nýta til úti-
vistar, stinga upp á skemmtilegum verkefnum
sem fjölskyldan getur leyst saman, setja upp
andlegar og líkamlegar æfingar, benda á hlað-
vörp og annað gagnlegt og skemmtilegt fyrir
einn eða sárafáa til að gera í samkomubanni.
En þetta var alveg korter í samkomubann sem
tók gildi á miðnætti sama kvöld, 15. mars sl.
„Þetta var alveg tíminn til að fá samfélagið í
lið með sér og benda á það hvernig hægt er
að hlúa að sér og sínum og halda áfram að
brosa. Tímasetningin hefði ekki getað verið
DÆMI UM TILLÖGU
AÐ HREYFINGU
Að faðma tré
Að telja bangsa í gluggum.
Að dansa á meðan maður bakar.
Að lesa fyrir mömmu og ömmu.
Vikulegt innlegg um jákvæða sál-
fræði þar sem m.a. eitt verkefnið er
að skrifa lista um eitthvað þrennt
sem er gott við daginn.
• Fólk sendir inn videóinnslag sem inni-
heldur hvatningu til samfélagsins um
að standa saman og heilsueflandi
hugmynd um eitthvað skemmtilegt
sem má stunda í samkomubanni.
• Vídeóunum er safnað saman og þeim
raðað á daga svo að hver vika verði
sem fjölbreyttust. Ein færsla og vídeó
eru birt á dag á Facebook-síðu Þrista
ásamt stuttri lýsingu.
betri og stjórn ungmennafélagsins setti klár-
lega brautarmet í hugmyndavinnu þetta kvöld.
En allt var klárt þegar samgöngubannið tók
gildi,“ segir Hildur.
Nýtt vídeó er birt á hverjum degi samkomu-
bannsins og er stefnt á að gera það alla daga
á meðan á banninu stendur. „Við birtum alltaf
vídeó frá einhverjum dásamlegum einstaklingi
í samfélaginu okkar, sem hvetur aðra til dáða
og kemur með hugmyndir að andlegri og/
eða líkamlegri heilsueflingu. Til að taka þátt í
Þristur blæs til leiks dembir fólk sér í að fram-
kvæma þær heilsueflingarhugmyndir sem hafa
birst í videóum frá okkur, smellir af sér mynd
við iðjuna og birtir á samfélagsmiðlum undir
#þristurblæstilleiks. Við drögum svo skemmti-
lega og heilsueflandi vinninga úr pottinum
alla miðvikudaga,“ heldur Hildur áfram.
„Þetta er mjög gaman og miklu skemmti-
legra en að sitja við tölvuna og horfa á aðra
gera eitthvað. Það er svo miklu betra að fram-
kvæma eitthvað sjálfur. Við eigum nóg af
vídeóum af fólki að gera eitthvað skemmti-
legt, og ætlum að birta eitt á dag eins lengi
og við þurfum,“ segir Hildur Bergsdóttir.
Pepparar dagsins
gefa öðrum hugmyndir
Ungmennafélagið Þristur bjó til skemmti-
legan leik á netinu sem hefur slegið í gegn
• Allir geta svo gripið hugmynd úr
videóunum á lofti, framkvæmt hana,
smellt af sér mynd við þá iðju, merkt
hana #þristurblæstilleiks og birt á
samfélagsmiðlum.
• Myndirnar fara allar í pott og á mið-
vikudögum eru dregnir út heilsu-
eflandi og skemmtilegir vinningar.
Svona er þetta gert