Skinfaxi - 01.01.2020, Page 21
S K I N FA X I 21
„Aðstæður í samfélaginu eru mjög óeðlilegar.
Um leið og og við erum hvött til að vera sundr-
uð til að hefta útbreiðslu kórónaveirunnar verð-
um við í raun að snúa bökum saman og verða
sameinaðri en nokkru sinni fyrr. Við verðum
að huga hvert að öðru á meðan þetta ástand
varir og passa að enginn verði út undan. Það
er svo mikilvægt að hver einstaklingur finni
að hann sé hluti af hópi,“ segir Auður Inga
Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ.
Hún bendir á að aðstæðum eins
og nú eru uppi, takmörkun á skóla-
haldi, samkomubanni og engu
íþróttastarfi, geti fylgt öryggis-
leysi, áhyggjur og kvíði. Það
eigi sérstaklega við um iðk-
endur sem takast á við
áskoranir í daglegu lífi.
„Íþróttafélög og reyndar
allt æskulýðsstarf gegna
mikilvægu hlutverki í
samfélaginu. Íþróttahús
og félögin sjálf eru meira
en húsið sem fólk fer í til
að hreyfa sig. Félagslegi
Mikilvægt að einstaklingar
upplifi að þeir tilheyri hópi
Góð ráð
1. Hringdu eða skrifaðu til iðkend-
anna með vingjarnlegri kveðju
og forvitnastu um það sem þeir
eru að gera.
Fáðu viðbrögð við því hvað
þeim finnist erfitt.
2. Kannaðu sérstaklega þá iðk-
endur sem hafa ekki sýnt nein
viðbrögð við heima- eða fjar-
æfingum. Sendu skilaboð um
að þú vonist til þess að „sjá“
iðkandann á næstu æfingu.
Framkvæmdastjóri UMFÍ hvetur þjálfara til að vera í sambandi við
iðkendur. Öryggisleysi, áhyggjur og kvíði geta fylgt samkomubanni.
þátturinn er líka gríðarlega mikilvægur. Íþrótta-
iðkun snýst um nærveru og samveru og flestir
hlakka jafnmikið til að mæta á æfingu og til
að hitta aðra. Þegar hindranir eins og sam-
komubann koma í veg fyrir það geta þær
lagst með sérstaklega þungum hætti á iðk-
endur sem hlakka til æfinga og samneytis með
öðrum. Ég hvet því þjálfara til að vera í sam-
bandi við iðkendur sína,“ segir Auður Inga.
Félagslegi þátturinn
er mikilvægur
Stundum er því varpað fram að enginn
viti hvað átt hafi fyrr en misst hefur. Það
á svo sannarlega við um starfsemi
aðildarfélaganna. Við söknum íþrótt-
anna, þess að hreyfa sig, takast á við
áskoranir og keppni en einnig sökn-
um við þess að koma saman og hitt-
ast á vettvangi íþróttanna, spjalla
og spekúlera.
Einhvern tíma kemur að því að
við komumst aftur í íþróttasal-
ina og á vellina um allt land.
Á meðan eru félögin ótrúlega
lausnamiðuð og iðkendur á mörgum stöðum
fá heima- og fjaræfingar frá þjálfurum sínum,
nokkuð sem er frábært. Núna snýst þetta
samt einnig um að fylgjast með líðan iðkenda
því þau gildi sem ungmennafélagshreyfingin
stendur fyrir; gleði, samvera og þátttaka, hafa
aldrei átt jafn mikið upp á pallborðið og núna.
Þjálfarar eru á meðal helstu fyrirmynda iðkenda
sinna. Af þeim ástæðum er það góð hugmynd fyrir stjórnendur
félaga og þjálfara að huga sérstaklega að þeim hópi iðkenda
sem eiga við einhvers konar áskoranir að stríða.