Skinfaxi - 01.01.2020, Blaðsíða 22
22 S K I N FA X I
1. Búið til skemmtilegt blað þar sem sjálfboðaliðar geta merkt við hvað þeir
vilji gera. Textinn á blaðinu getur verið eitthvað á þessum nótum:
„Ég er frábær bakari“ eða „Ég er grillmeistarinn.“
2. Gott er að nota ýmis tækifæri til að ná til fólks sem getur hugsað sér að vera
sjálfboðaliðar á viðburðum íþróttafélagsins. Þetta má gera á íþróttaleikjum,
á hátíðarsamkomum og víðar þar sem tækifæri gefst.
3. Fáið fólk til að ræða við aðra og laða aðra í sjálfboðaliðastörf. Best er að fá
fólk til þess sem er ekki framarlega í íþróttahreyfingunni eða sem situr í
stjórn félagsins.
4. Afhendið sjálfboðaliðum boli eða treyjur svo að aðrir sjái greinilega að við-
komandi er sjálfboðaliði. Ástæðan fyrir þessu er sú að fólk er tilbúið að taka
þátt í verkefnum sem sjálfboðaliðar ef það hefur fyrirmynd eða þekkir ein-
hvern sem er sjálfboðaliði. Sjálfboðaliðar á vegum íþróttafélagsins Genner
í Danmörku fengu gula boli sem á stóð: Ég er sjálfboðaliði, hvenær ætlarðu
að bætast í hópinn?
5. Sýnið að þið metið starf sjálfboðaliðanna. Það er hægt að gera með ýmsu
móti, til dæmis þegar færi gefst á íþróttaleikjum og þakka þeim eða velja
sjálfboðaliða ársins.
5
RÁÐ
til að fjölga
sjálfboðaliðum
Á vefsíðu DGI er haft eftir Evu Johannsen, formanni Genner, að það hafi komið sér á óvart
að þegar þessum ráðum var fylgt hafi margir boðið fram krafta sína sem sjálfboðaliðar.
224
sjálfboðaliðar unnu í samtals
1.446
klukkustundir á Landsmótinu
á Sauðárkróki 2018.
Að meðaltali
1,6
klukkustundir á dag.
4–7
sjálfboðaliða þarf í hverja grein á móti.
Sjálfboðaliðar eru...
allir sem starfa í nefndum UMFÍ.
Sjálfboðaliðastjórar eru...
þeir sem stjórna sjálfboðaliðum og fá þá í öll þau störf sem
þarf að sinna á viðburðum.
Sjálfboðaliðastjóri...
heldur utan um tímafjölda sjálfboðaliða eins og kostur er.