Skinfaxi - 01.01.2020, Page 31
S K I N FA X I 31
Alltaf hægt að prófa
Nýliðatímar í bandýi hjá HK eru
á mánudögum í Digranesinu og geta
allir sem vilja komið til að prófa.
Nýliðatímarnir eru sem hér segir:
Krakkar og unglingar
(að 16 ára aldri)
Mánudagar kl. 18.10
Fullorðnir (frá 16 ára aldri),
bæði kk og kvk
Mánudagar kl. 19
Hvar er hægt
að æfa bandý?
Bandý er hægt að æfa víða um land.
Samherjar í Eyjafirði bjóða upp á æfingar
og hópar kvenna eru á Akureyri, Egils-
stöðum og Húsavík auk hóps iðkenda í
Setbergi í Hafnarfirði svo að nokkuð sé
nefnt.
„Við ætlum að halda æfingabúðir í Digra-
nesi í fyrsta skipti í maí (ef þáverandi
ástand leyfir) til að kanna grundvöll þess
að setja saman íslenskt kvennalandslið í
bandýi og ætlum einmitt að bjóða iðk-
endum af landinu öllu að koma sem og
þeim íslensku stelpum sem spila annars
staðar í heiminum.“ segir Anna Lea.
„Ég var þarna komin yfir þrítugt og mig
vantaði meiri hreyfingu. Fyrir um þremur árum
var ég að leita að skemmtilegri grein sem full-
orðnir gætu stundað og haft gaman af. Í leit-
inni rak ég augun í það á Facebook að HK væri
með nýliðatíma í bandýi. Ég skoðaði þetta og
sá þar að stelpa, sem var með mér í bekk í
grunnskóla, væri með í hópnum. Ég ákvað
þá að úr því að hún gæti þetta rúmlega þrítug
gæti ég það líka. Þegar ég mætti svo í Digra-
nesið var svo vel tekið á móti mér að ég ílent-
ist í bandýinu og skemmti mér alltaf jafn vel,“
segir hún og bætir við að mikill vöxtur sé í
greininni, hún sjái æ fleiri unglinga spila bandý.
Fleiri strákar og karlar spila bandý hér á landi
en konur og stelpur og það vill Anna Lea sjá
breytast.
Anna Lea segir bandý frábæra íþrótt fyrir
þá sem eru of góðir við sig í gimminu og leita
skemmtilegra hópíþrótta. „Þetta er stórkost-
leg íþrótt sem allir geta stundað á nánast
hvaða aldri sem er. Þar er líka enginn afsláttur
gefinn eins og maður getur gefið sér í rækt-
inni. Hjá HK kynntist ég nýju fólki og eignað-
ist marga nýja vini. Það gefur mér mikið.
Hópurinn er mjög blandaður en stærstur
hluti hans stundar bandý vegna hreyfingar-
innar og skemmtunarinnar þótt við keppum
bæði innanlands og utan,“ segir hún og
bíður spennt eftir Íþróttaveislunni í Kópavogi.
„Liðið mitt tók þátt í Landsmótinu á Sauðár-
króki árið 2018. Ég dró alla fjölskylduna með
og það var rosalega gaman.“