Skinfaxi - 01.01.2020, Qupperneq 38
38 S K I N FA X I
Þorvaldsdalsskokkið, þar sem hlaupið er eftir endi-
löngum Þorvaldsdal í Eyjafirði, er elsta skipulagða
óbyggðahlaup á Íslandi. Hlaupið verður haldið í
27. sinn þann 4. júlí næstkomandi. Að þessu sinni
verða þrjú hlaup (Landvættur, Hálfvættur og
Ungvættur 12–18 ára) og eru þau í samstarfi við
Landvættaverkefni FÍ.
H ugmyndin að Þorvaldsdalsskokkinu kviknaði hjá Bjarna E.
Guðleifssyni, náttúrufræðingi og fjallgöngugarpi, eftir að
hann varð vitni að skosku fjallahlaupi upp á hæsta fjall Skot-
lands, Ben Nevis. Skokkið var fyrst haldið árið 1994 og hefur farið
fram árlega síðan. Þátttakendur hafa oftast verið á bilinu 20 til 50 en í
ár stefnir í metþátttöku. Bjarni sá um skokkið fram á þessa öld í sam-
starfi við ungmennafélögin á svæðinu, Reyni á Árskógsströnd og
Smárann í Hörgárdal, auk þess sem Ferðafélagið Hörgur og Björgun-
arsveitin á Árskógsströnd hjálpuðu til. Það var síðan árið 2006 sem
Bjarni lét hlaupið í hendur Ungmennasambandi Eyjafjarðar sem hefur
síðan staðið fyrir hlaupinu í samstarfi við ungmennafélögin tvö sem
hafa komið að hlaupinu frá upphafi.
Þorvaldsdalur er opinn í báða enda, opnast suður í Hörgárdal og
norður á Árskógsströnd. Þorvaldsdalsskokkið hefst við réttina sunnan
við Fornhaga og er hlaupið norður yfir brúna á Ytri-Tunguá og síðan
upp með gilinu og er áin höfð á vinstri hönd. Um 300 m ofan vegar er
fjallsgirðing og er þar opið hlið sem menn fara í gegnum. Síðan er
fjárgötum og dalbotninum fylgt og þess gætt að hafa ána ætíð á
vinstri hönd og fjallshlíðina á hægri hönd. Fyrst rennur áin á móti
hlaupurum, en á vatnaskilum (í Kytrunni sem er um 500 m yfir sjávar-
máli) hverfur hún en rennur síðan með hlaupastefnunni. Hlauparar
þurfa gæta þess að fara ekki vestur yfir dalbotninn á vatnaskilunum
sem eru í námunda við fyrstu drykkjarstöð, en þetta er helsti mögu-
leikinn á því að villast. Fjórar drykkjarstöðvar eru á leiðinni og þar eru
björgunarsveitarmenn til taks. Hrafnagilsá, eina verulega þveráin sem
er síðla á hlaupaleiðinni, var nýlega brúuð með göngubrú en áður var
jeppi þar til taks til að ferja menn yfir. Nú hlaupa menn yfir á brúnni.
Þaðan er skokkað eftir jeppavegi (um 5 km) að endamarki við Árskógs-
skóla.
Þátttakendur geta skilið ökutæki og búnað eftir í grennd við markið
en þaðan er þeim ekið að rásmarkinu við Fornhaga. Þorvaldsdals-
skokkið er ætlað öllum, bæði konum og körlum, sem telja sig komast
þessa leið hlaupandi eða skokkandi á innan við fimm klukkustundum.
Sá sem hraðast hefur hlaupið var 1 klukkutíma, 47 mínútur og 12 sek-
úndur og elsti þátttakandinn hingað til var 79 ára. Götuskokkarar,
göngumenn og aðrir eru hvattir til að fara á sínum hraða um þennan
fallega dal. Þetta skokk er gjörólíkt öllum götuhlaupunum sem nú eru
í boði.
Framkvæmdaaðilar Þorvaldsdalsskokksins eru: Ungmennasam-
band Eyjafjarðar, Ungmennafélagið Reynir, Árskógsströnd, og Ung-
mennafélagið Smárinn, Hörgárbyggð. Upplýsingar um hlaupið má
finna á heimasíðu þess: thorvaldsdalur.umse.is.
Methafinn, Þorbergur Ingi Jónsson, nálgast síðustu drykkjarstöð í Þorvaldsdalsskokkinu 2015.
Þorvaldsdalsskokkið
– óbyggðahlaup um Þorvaldsdal í Eyjafirði