Skinfaxi - 01.01.2020, Síða 41
S K I N FA X I 41
Góðir skór
Stundir þú heilsurækt, sem krefst þess að þú sért í skóm, er mjög
mikilvægt að vera í góðum skóm. Skóm sem henta tilefninu, að þeir
passi þér vel og að þú finnir ekki til eymsla í þeim. Góðir skór auka
líkurnar á því að þú upplifir vellíðan af hreyfingu þinni.
Jákvætt hugarfar
Það getur enginn valhoppað í fýlu – það er ekki hægt! Ég skora á þig
að prófa það! Að stunda heilsurækt með jákvæðu hugarfari, að brosa
til þeirra sem verða á vegi þínum og hrósa öðrum, eykur líkurnar á
því að þú finnir til vellíðanar af heilsurækt þinni. Líkamleg, andleg og
félagsleg heilsa haldast í hendur.
Mikilvægt er að njóta
þess að hreyfa sig
Til að njóta heilsuræktar og finna til vellíðunar verður þú að stunda heilsurækt
sem þér finnst skemmtileg. Þú þarft að stunda eitthvað sem fær þig til að hlakka til,
sem þú nýtur að taka þátt í og þar sem þú upplifir vellíðun eftir á.
Þátttaka
Við eigum val. Margir kjósa að njóta heilsuræktar einir og óstuddir,
upplifa vellíðan og þeim er gefinn drifkrafturinn til að fara aftur og
aftur. Sumir vilja stunda heilsurækt í hópi og það er líka frábært.
Þeir þurfa hóp til að njóta og hafa gaman. Að hitta vini og félaga og
stunda heilsurækt hefur nefnilega líka jákvæð áhrif á andlega og
félagslega heilsu.
Magn, tími og ákefð
Hvað langar þig að gera? Lítið er betra en ekkert. Smávegis hvern
dag eykur líkurnar á því að þú lengir 10 mínútur í dag í 20 mínútur á
morgun og hlakkir til að gera það. Að ná púlsinum hátt upp er hvað
mikilvægast – að láta hjartadæluna pumpa duglega hvort sem þú
ákveður að gera það í 30 mínútur eða þrjár styttri lotur yfir daginn.
Takk fyrir stuðninginn