Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2020, Blaðsíða 41

Skinfaxi - 01.01.2020, Blaðsíða 41
 S K I N FA X I 41 Góðir skór Stundir þú heilsurækt, sem krefst þess að þú sért í skóm, er mjög mikilvægt að vera í góðum skóm. Skóm sem henta tilefninu, að þeir passi þér vel og að þú finnir ekki til eymsla í þeim. Góðir skór auka líkurnar á því að þú upplifir vellíðan af hreyfingu þinni. Jákvætt hugarfar Það getur enginn valhoppað í fýlu – það er ekki hægt! Ég skora á þig að prófa það! Að stunda heilsurækt með jákvæðu hugarfari, að brosa til þeirra sem verða á vegi þínum og hrósa öðrum, eykur líkurnar á því að þú finnir til vellíðanar af heilsurækt þinni. Líkamleg, andleg og félagsleg heilsa haldast í hendur. Mikilvægt er að njóta þess að hreyfa sig Til að njóta heilsuræktar og finna til vellíðunar verður þú að stunda heilsurækt sem þér finnst skemmtileg. Þú þarft að stunda eitthvað sem fær þig til að hlakka til, sem þú nýtur að taka þátt í og þar sem þú upplifir vellíðun eftir á. Þátttaka Við eigum val. Margir kjósa að njóta heilsuræktar einir og óstuddir, upplifa vellíðan og þeim er gefinn drifkrafturinn til að fara aftur og aftur. Sumir vilja stunda heilsurækt í hópi og það er líka frábært. Þeir þurfa hóp til að njóta og hafa gaman. Að hitta vini og félaga og stunda heilsurækt hefur nefnilega líka jákvæð áhrif á andlega og félagslega heilsu. Magn, tími og ákefð Hvað langar þig að gera? Lítið er betra en ekkert. Smávegis hvern dag eykur líkurnar á því að þú lengir 10 mínútur í dag í 20 mínútur á morgun og hlakkir til að gera það. Að ná púlsinum hátt upp er hvað mikilvægast – að láta hjartadæluna pumpa duglega hvort sem þú ákveður að gera það í 30 mínútur eða þrjár styttri lotur yfir daginn. Takk fyrir stuðninginn

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.