Úrval - 01.02.1959, Qupperneq 18
■ÚRVAL
RAFEINDATÆKNIN 1 ÞJÖNUSTU LÆKNAVÍSINDANNA
gæti meinsemdin fundizt fljót-
ara en ella og lækning hafizt
fyrr, svo að jafnvel tugþús-
undum mannslífa mætti bjarga
á ári hverju.
Læknarnir fara næmum
fingrum um yfirborð líkamans
til að komast eftir því, sem
hrjáir sjúklinginn —• ofstór lif-
ur, bólgnir kirtlar, bólgið milta,
til dæmis. En rafeindafingur,
ótrúlega miklu næmari og nær-
göngulli geta nú fundið smáæxli
í leyndustu afkimum höfuðsins.
Það hefur alltaf verið mikið
vandamál að staðsetja nákvæm-
lega slík æxli. Ef skurðlæknir-
inn sker ekki nógu nákvæmt
í aðgerð sinni, á hann á hættu
að valda skemmdum á heilan-
um. En rafeindatækin geta
svo að segja stungið títuprjóni
1 staðinn. Geislavirku arseniki
er sprautað í æð, það berst
með blóðstraumnum og safnast
1 æxlið á minna en einni klukku-
stund. Síðan er rafeindateljur-
um beint að höfðinu, og þeir
skrifa niðurstöður sínar sem
svarta depla á blað. Þar sem
deplarnir eru þéttastir, þar er
æxlið. Bór hefur líka reynzt vel
á þessu sviði. Við inngjöf á
geislavirku bóri sendir bórið
frá sér alfa-agnir, sem fara að-
eins örstutta leið. Þannig mynd-
ast geislun innan í æxlinu, sem
er banvæn krabbameinsfrum-
unum, án þess að heilbrigðu vef-
irnir i kring skaðist til muna.
Rafeindahiti hefur reynzt
mesta þarfaþing við skurðlækn-
ingar. Með örlítilli snertingu
brennir oddur rafbrunajárnsins
fyrir blæðandi háræðar, sem
gera skurðlækninum erfiðara
fyrir. ,,Rafeindahnífurinn“, sem
sker hárfínan brunaskurð og
lokar blóðæðum í leiðinni, er
sérstaklega nytsamur við að-
gerðir í æðaríkum vefjum, svo
sem í heila og lifur.
Þá má geta um aðra sérstæða
notkun rafeindahita. Fyrir
nokkru komust skurðlæknar að
því, að Parkinson-sjúkdómur
(riða) læknaðist oft með undra-
verðum hætti, ef lítið heila-
svæði var eyðilagt. Alkohol-
sprautur komu stundum að
gagni, en nýja aðferðin er mun
áhrifameiri. Örlítið gat er bor-
að á höfuðkúpuna og í gegnum
það leiddir tveir hármjóir vír-
ar inn að heilanum. Þegar
straumnum er hleypt á, brenn-
ist viðkomandi svæði og eyði-
leggst, og árangurinn gengur
oft kraftaverki næst.
Áður leiddi losnun á net-
himnu augans næstum alltaf til
blindu. En nú eru 75 prósent
líkur fyrir lækningu, ef í tíma
er tekið, og er það að þakka
nýju tæki, sem kalla mætti raf-
eindalogsjóðara. Örlitlir raf-
boltar brenna nethimnuna fasta
á ný.
Við frumurannsóknir hafa
rafeindatækin reynzt hreinustu
galdraverkfæri. Það hefur ver-
ið frumufræðingum mjög til
trafala, að þessar litlu agnir,
lífseindirnar, skuli vera gagn-
16