Úrval - 01.02.1959, Side 78

Úrval - 01.02.1959, Side 78
ÚRVAL Hérna eru nokkrar fyrirsagnir: Gleðikonur á Montmartre tcela ein- mana ferðalanga. Brúður reynist vera gift tveimur í senn. Striplingur gengur í lclaustur. Stúlka segir barn sitt eingetið. ,j2g hef aldrei átt elsk- liuga“, segir ungfrú Thompkins. „Ég les ekki meira af þessu við- bjóðslega bulli. Ég ætla aðeins að segja ykkur það skírt og skorinort, að þó að ég væri nauðbeygður að selja blað mitt, mundi ég aldrei selja Morgunblaðinu það“. „Sjáið þér nú til, herra Page.“ Smith var i öngum sínum, þetta leit sannarlega ekki vel úr. „Við skulum ekki rasa að neinu. Þér skuluð hugsa yður um i nokkra daga.“ „Nei, ,þetta er endanleg ákvörð- un mín." ,,Jæja,“ sagði Nye, ,,þá verðum við víst að láta 'ySur fá dálitla sam- keppni. Og trúið mér, hún verður enginn barnaleikur." „Ég er smeykur við að þetta séu alvarleg mistök hjá yður, herra Page,“ sagði Smith. „Við höfum ákveðið að koma okkur hér fyrir á heiðarlegan og lögmætan hátt. Við höfum gert yður mjög rausnarlegt tilboð. Þér hafnið þvi. Þess vegna erum við neyddir til að stofna annað blað, sem mun keppa við yður." „Það mun aldrei takast," sagði Henry. „1 fyrsta lagi er lesendahóp- urinn hér of lítill fyrir tvö blöð. 1 öðru lagi stendur Norðurljósið svo föstum fótum, að ekkert getur hagg- að því. Það er stofnað árið 1769 af Davíð Page, sem barðist ásamt Wilkes fyrir prentfrelsinu og réttin- um til að birta þingtíðindi. Og James NORÐURLJÓSIÐ Page, langa-langafi minn, hafði for- ustuna i baráttunni fyrir afnámi blaðaskattsins illræmda. Nei, nei, ykkur mun aldrei takast það.“ „Ef þér viljið veðja," sagði Nye, „skal ég veðja tveimur móti einum, að þér verðið hættur blaðaútgáfu innan átján mánaða." „Ég veðja aldrei. Og þér getið ekki hrætt mig. Þið getið aldrei stofnað hér blað frá grunni". „Við höfum ýmis ráð, sem ég er smeykur við að yður sé ekki kunn- ugt um,“ sagði Smith. „Ég sárbæni yður að breyta ákvörðun yðar." Henry hristi höfuðið. Smith varpaði öndinni og stóð upp. „Mig tekur það mjög sárt, að við skyldum ekki geta komizt að sam- komulagi og verðum þvi neyddir til að hefja bairáttuna, því að mér fellur vel við yður og ég virði yður. Og ég ætla að lofa yður einu — við munum berjast heiðarlega og fyrir opnum tjöldum. Má ég taka í hönd yðar upp á það?" Smith rétti fram höndina og tók þétt í hönd Pages. Nye kveikti í sígarettu og gekk út úr skrifstof- unni á undan Smith. Þegar þeir voru setz’tir í bílinn, sagði hann: „Ég var búinn að segja þér, að hann mundi ekki selja." „Ekki hjálpaðir þú til,“ sagði Smith snöggt. „Þú gerðir hann bara erfiðari viðureignar." „Hann selur hvort sem er aldrei. Hann er gamall þverhaus, sem aldrei lætur sig. Við verðum að beygja hann. Mjúkmáll hræsnari, sem þyk- ist bera velferð almennings fyrir 72
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.