Úrval - 01.02.1959, Page 66

Úrval - 01.02.1959, Page 66
ÚRVAL mátti hann ekki reyna mikið á sig, því að enda þótt hann væri ekki nema fjörutíu og niu ára gamall, var hann orðinn eitthvað veill fyrir hjarta, og þó að hann teldi þessa veilu fremur óþægilega en alvarlega, hristi Bard læknir höfuðið. En hann hafði ánægju af garðinum sínum og litla gróðurhúsinu, og hann hafði ákaflega gaman að fara niður að sjónum, einkum til Sleedon, sem var eina fiskiþorpið á norðausturströnd- inni, sem var nokkurn veginn ó- snortið af áhrifum nútímans. Þar lifði hluti af gamla Englandi enn góðu lífi. Þetta var ástríða Henrys og trú: gamla England, sem hlaut að rísa upp á ný einn góðan veðurdag. Hann unni landi sinu, mold þess, jafnvel salti sjávarins, sem gnúði strendur þess. Honum var vel ljós upplausnin, sem hafði einkennt allt þjóðlífið eftir stríðið, en var í aug- um hans aðeins timabundið fyrir- brigði, afleiðing hinna hrikalegu á- taka. England hlaut að rísa upp aftur. Nú blasti Sleedon við honum. Brimið braut á hafnargarðinum, þegar hann ók framhjá fiskibátunum, sem lágu við festar og framhjá net- unum, sem breidd höfðu verið til þerris. Húsið, sem Davíð bjó i, stóð uppi í brekkunni. Cora beið við hliðið. Hún var ber- höfðuð, svart hárið ýfðist í vindin- um og dökkrauður kjóllinn féll þétt að spengilegum likama hennar. Hún virtist geisla frá sér þeirri hlýju og blíðu, sem hafði haft svo góð áhrif á heilsu sonar hans. Hún tók NORÐURLJÖSIÐ hönd hans i báðar sínar, og hann vissi, að hún var fegin komu hans. „Hvernig' líður honum?" spurði hann. „Honum hefur liðið vel þessa viku. Hann er uppi á lofti núna að skrifa." Um leið og þau gengu inn, leit hún upp í loftgluggann, en þaðan bár- ust lágir tónar úr verki eftir Bartok. „Ég skal ná í hann.“ En Henry var illa við að trufla Davið. Bók hans um fornarabiskan skáldskap var erfitt viðfangsefni. Siðasta misserið hafði hann lært þrjár arabiskar mállýzkur hjálpar- laust, og nú var hann að þýða Kital ál Aghani, Söngvabókin. — Það var skynsamlegra að raska ekki ró hans. Cora sá, að hann hikaði. Hún brosti. „Maturinn verður hvort sem er tilbúinn eftir hálftíma." Þau gengu bak við húsið og hún sýndi honum nýjan, snyrtilegan mat- jurtagarð, sem skýlt var fyrir næð- ingunum með grjótgarði. „Hver stakk þennan garð upp?" „Ég, auðvitað." Hún hló ánægju- lega. „Er þetta ekki of mikið erfiði fyrir þig, auk húsverkanna og umstangs- ins út af Davíð?" „Sei, sei, nei. Ég er sterk. Og mér þykir gaman að garðinum." Hún leit feimnislega til hans. „Ég hef aldrei fengið tækifæri til að gera svona áður." Grammófónplatan uppi á loftinu þagnaði og andartaki siðar kom Davíð niður. Henry sá strax að það lá vel á honum. Hann var myndar- legur piltur, hár vexti, en of magur, 60
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.