Úrval - 01.02.1959, Side 80
■QRVAL,
„Það er fullt af þessu allsstaðar,"
sagði Horace Balmer, auglýsinga-
stjórinn.
„Hvað skyldu þeir hafa borgað
Rickaby mikið?“ sagði Poole, og
þegar enginn svaraði, bætti hann
við: „Ég býst ekki við að það hafi
verið há upphæð. Karlinn var ólmur
í að selja.“
„En hvað geta þeir gert við prent-
smiðjuna?" Balmer yppti öxlum.
„Hún er bæði gamaldags og afkasta-
lítil. Blaðið kom aldrei út í hærra
upplagi en sex þúsund eintökum."
„Þeir finna einhver ráð, hafðu
engar áhyggjur af því,“ sagði Mait-
land. „Og ef þú heldur að þeir ætli
að halda áfram að birta verðlag á
búpeningi, veðurfréttir úr sveitinni
og uppskeruhorfur, þá skjátlast þér
hrapalega."
„Ég er á sama máli og Malcolm,"
sagði Henry. „Við eigum langa og
erfiða samkeppni fyrir höndum. Þeir
munu beita öllum brögðum til að
afla sér lesenda. En ég held að til-
raunin muni mistakast. Við megum
samt ekki slaka á klónni. Ef ein-
hver hefur einhverja uppástungu, er
ég fús til að hlusta á hann."
Poole, íþróttaritstjórinn sagði: „Ég
held að við ættum að berjast við þá
með þeirra eigin vopnum. Við skul-
um gera blaðið skemmtilegra og
læsilegra -— hafa meira púður í frétt-
unum."
„Ekki er ég samþykkur þvi," sagði
Henry. „Norðurljósið verður að
koma til dyranna eins og það er
klætt. Við stöndum eða föllum með
því að vera sjálfum okkur trúir."
Hinir létu í Ijós samþykki sitt.
NORÐURLJÓSIÐ
„En þið verðið þó að viðurkenna,
að lesendurnir hafa mikinn áhuga
á íþróttum. Við skulum birta ná-
kvæmari frásagnir af knattspyrn-
unni og hnefaleikunum í Tynecastle.
Og fleiri kappakstursgreinar."
„Ef við leggjumst eins lágt og
þeir," sagði Maitland, „erum við
búnir að vera."
„Hvernig væri að láta mynd-
skreytt aukablað koma út um helg-
ar,“ sagði Láwrence Hadley, lávax-
inn maður um fimmtugt, sem sá
um myndirnar i blaðið.
Maitland rak upp hlátur. „Ef við
litum allir á þetta svona, hver frá
sínu sjónarmiði, þá komumst við
ekkert áfram." Hann beit á vörina.
„Málið liggur þannig fyrir í mínum
augum: Somerville fékk þá snjöllu
hugmynd að ná Norðurljósinu und-
ir sig. 1 þessum voldugu samsteypum
er allt skipulagt og reiknað út með
tilliti til fjárhagshliðarinnar. Áætl-
anir eru gerðar, timatakmörk sett,
menn valdir og ákveðin fjárhæð
vei'tt til verksins. Það má eyða þess-
ari fjárhæð til síðasta eyris, en takið
nú eftir orðum mínum: þegar hún
er uppausin, fæst ekki skildingur í
viðbót, það er hætt við fyrirætlun-
ina og mennirnir reknir. Við þurf-
um aðeins að sitja sem fastast og
halda áfram að gefa út blaðið. Það
getur orðið erfitt fyrir okkur, en það
verður líka dýrt spaug fyrir þá.
Enhverntíma kemur að því, eftir ár
eða hálft annað ár, að peningarnir
eru þrotnir, og þá munu vinir okkar
gefast upp og fara."
Henry likaði vel að heyra svo raun-
sæja og gagnorða lýsingu á ástand-
74