Úrval - 01.02.1959, Síða 105

Úrval - 01.02.1959, Síða 105
NORÐURLJÓSIÐ ÚRVAL „Þú sagðir okkur að skera niður öll útgjöld og kaupa aldrei meira af neinu en til þriggja vikna.“ Það var rétt. Henry beit á vörina og leitaði ráða í huga sér. Hann varð sjálfur að fara til Spencer. „Hvenær fer næsta lest til Manchester ?" „Þú getur ekki farið, talsmaður prentarafélagsins kemur á eftir til að tala við þig um vanskil á laun- um prentaranna." „Fáðu hann góðan einhvern veg- inn. Segðu honum að ég skuli tala við hann á mánudaginn." „Og hvað verður svo á mánu- daginn ?" Henry stillti sig með erfiðismun- um. „Réttu mér áætlunina." Hann kom til Manchester klukkan hálftvö og fór rakleitt til verksmiðj- unnar. Þar var honum venjulega vísað beint inn til framkvæmdastjór- ans, en nú var hann beðinn að biða í sýnishornaherberginu. Þar beið hann í fimmtán mínútur áður en Spencer kom. „Ég hafði vonað að þú kæmir ekki, Henry." „Hvað á þetta að þýða?" „Við skulum reyna að æsa okkur ekki. Setztu." Hann dró fram stól handa Henry. „Ég hef reynt að kom- ast hjá að tala við þig, Henry." „Hvers vegna?" „Það er erfitt fyrir mig að segja það. Þarf ég þess?" „Ég veit ég er svolítið á eftir, sagði Henry og roðnaði. „En nafn mitt er þó einhvers virði. Þú hefur oft látið mig hafa sex mánaða greiðslufrest." „Ástandið er breytt." „Hvernig þá? Þú veizt þú færð peningana." „Er það víst?" Henry fann auðmýkingarroða fær- ast yfir andlit sér. „Ég viðurkenni að við eigum í erfiðleikum sem stendur, en við erum á uppleið aftur. Þú verður að gefa okkur svolítinn frest. Við erum með elztu viðskipta- vinum þínum." „Við vitum það. Okkur finnst þetta ekki skemmtilegt frekar en ykkur. En verzlun er verzlun. Og reglur eru reglur. Það er gagnstætt reglum okkar að lána stórskuldug- um viðskiptavinum. Það eru fyrir- mæli frá stjórninni og ég get ekki brotið þau. Það er ekki til neins að ræða þetta frekar, Henry." „Ég verð að fá pappír," sagði Henry. „Nóg tii þess að fleyta mér áfram þangað til ég get borgað ykk- ur. Hvar fæ ég hann?" Spencer hugsaði sig um andartak, svo sagði hann: „Það eru nokkrir pappírsheildsalar hér í borginni sem þú getur reynt við." Hann skrifaði tvö heimilisföng á blað. „Mér þykir leitt að þetta skyldi þurfa að koma fyrir. Ég vona að þú berir ekki kala til mín.“ Hann reis á fætur, rétti frani höndina og Henry kvaddi og fór. Og nú fór i hönd dagstund því lík sem Henry hefði aldrei getað ímyndað sér að hann ætti eftir að lifa. Samtalið við Spencer hafði kom- ið af stað í honum einhverju tauga- óþoli, sem jókst er á daginn leið. Hann fór á þá staði sem Spencer hafði vísað honum á. Hin fyrri var ' mikilsmetin heildverzlun i austur-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.