Læknablaðið : fylgirit - 03.01.2017, Page 3

Læknablaðið : fylgirit - 03.01.2017, Page 3
LÆKNAblaðið/Fylgirit 91 2017/103 3 Læknablaðið THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL www.laeknabladid.is Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi 564 4104 – 564 4106 Útgefandi Læknafélag Íslands Læknafélag Reykjavíkur Ritstjórn Magnús Gottfreðsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Elsa Valsdóttir Gerður Gröndal Hannes Hrafnkelsson Magnús Haraldsson Sigurbergur Kárason Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir Inga Þórsdóttir er ábyrgðar maður efnis í þessu fylgiriti Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Blaðamaður og ljósmyndari Hávar Sigurjónsson havar@lis.is Auglýsingastjóri og ritari Esther Ingólfsdóttir esther@lis.is Umbrot Sævar Guðbjörnsson saevar@lis.is Upplag fylgirits 91 500 Áskrift 14.900,- m. vsk. Lausasala 1490,- m. vsk. Prentun og bókband Prenttækni ehf. Vesturvör 11 200 Kópavogi © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild, án leyfis. Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna: Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Science Edition og Scopus. The scientific contents of the Icelandic Medical Journal are indexed and abstracted in Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/ Science Edition and Scopus. ISSN: 0254-1394 Átjánda ráðstefnan um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum í Háskóla Íslands Verið innilega velkomin á 18. ráðstefnu Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum. Ráðstefnan er haldin á Háskólatorgi 3.-4. janúar 2017. Markmið ráðstefnunnar er að kynna og hvetja til samtals um vísindi, auka skilning milli fræði- greina og möguleika á þverfræðilegu samstarfi sem getur orðið kveikja að nýjum rannsóknum. Á dagskrá ráðstefnunnar er kynning á tæplega 300 verkefnum í formi fyrirlestra og veggspjalda, þar af eru tveir fyrirlestrar sérstaklega ætlaðir almenningi. Boðið verður upp á málstofur sem fara að öllu leyti fram á ensku en það er gert til þess að koma til móts við vaxandi fjölda enskumælandi starfsfólks og nemenda. Þá verða einnig tvær spennandi gestamálstofur á dagskrá. Umsjón með rýni ágripa og dagskrá ráðstefnunnar var í höndum undirbúningsnefndar sem naut aðstoðar rannsóknastjóra og kynningarstjóra á sviðsskrifstofunni. Störf þeirra og fundarstjóra á málstofum og veggspjaldasýningum eru einnig mikilvæg svo markmið ráðstefnunnar megi nást. Lykilhlutverk Heilbrigðisvísindasviðs er að mennta hæft fólk til starfa í heilbrigðisþjónustu og taka þátt í uppbyggingu og rekstri heilbrigðiskerfis sem þjóðin treystir á. Markmiðið er að sinna þessu hlutverki í hæsta gæðaflokki. Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands býður upp á 18 námslínur í 6 deildum, auk meistara- og doktorsnáms í helstu grunngreinum sviðsins og sérhæft framhaldsnám. Rúmlega 2000 manns leggja stund á nám við sviðið, þar af tæplega 70% í BS-námi, um 15% í kandídats- eða diplómanámi og 15% í rannsóknatengdu meistara- eða doktorsnámi. Stefna Háskóla Íslands 2012-2016 um að efla rannsóknir hefur skilað sér í miklum árangri starfs- manna og auknu fé til rannsókna, fleiri hágæða vísindagreinum og fleiri doktorsvörnum. Röskur fjórðungur starfsmanna sviðsins er nú ráðinn fyrir sjálfsaflafé. Stefnan 2016-2021 er að halda áfram öflugu rannsóknastarfi og að stórauka gæði náms og kennslu. Þó rannsóknavirkni hafi aukist eru heilbrigðisvísindagreinar sem telja sig hafa mjög litla möguleika á styrkjum hefðarinnar vegna. Það er því mikilvægt að koma á fót heilbrigðisvísindasjóði sem hefði að markmiði að breikka og fjölga rannsókna- og nýsköpunarverkefnum í heilbrigðisvísindum. Stuðningur við rannsóknarinnviði Heilbrigðisvísindasviðs hefur verið aukinn og auk rann- sóknastjóra er nú boðið upp á tölfræðiráðgjöf. Sviðið tekur einnig drjúgan þátt í rekstri heilbrigð- isvísindabókasafns og klínísks rannsóknaseturs sem eru starfrækt innan Landspítala. Auk þessa hefur Lífvísindasetur verið eflt og Heilsubrunnur er í uppbyggingu í samstarfi við stofnanir í heil- brigðisþjónustu. Í apríl 2016 hlaut Heilbrigðisvísindasvið alþjóðlega Orpheus-gæðavottun á dokt- orsnámið. Háskóli Íslands varð þar með 7. háskólinn í Evrópu til að hljóta vottunina. Orpheus eru alþjóðleg samtök sem meta gæði doktorsnáms í líf- og heilbrigðisvísindum við evrópska háskóla. Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Ísland stendur þannig á tímamótum þar sem öflugt vísinda- starf og áframhaldandi uppbygging innviða stuðlar að því að sviðið skipi sér í fremstu röð í alþjóðlegum samanburði. Velkomin á 18. ráðstefnuna um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum í Háskóla Íslands. Inga Þórsdóttir prófessor og forseti Heilbrigðisvísindasviðs Karl Andersen prófessor við Læknadeild og formaður undirbúningsnefndar

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.