Læknablaðið : fylgirit - 03.01.2017, Side 12
X V I I I V Í S I N D A R Á Ð S T E F N A H Í
F Y L G I R I T 9 1
12 LÆKNAblaðið/Fylgirit 91 2017/103
E 14 Prevalence and diversity of emotional abuse in childhood in
Iceland
Jónína Einarsdóttir, Geir Gunnlaugsson
Faculty of Social and Human Sciences, University of Iceland
je@hi.is
Introduction: Parenting styles that include abuse can harm the develop-
ment of the child’s brain with short- and long-term impact on his/her
health and behavior. The aim of the study is to examine prevalence and
diversity of emotional abuse of children in Iceland, and evaluate how
such experience influences felt quality of upbringing as an adult.
Materials and methods: A random sample of 1500 Icelandic citizens
(18 years and older) was drawn from Registers Iceland. Telephone
interviews were conducted in October and November 2010 by the Social
Research Institute of University of Iceland. Participants were invited
to express their perception of their upbringing, and answer questions
regarding their experience of eight specific forms of emotional abuse in
childhood.
Results: Of 966, 663 (69%) had experienced one or more of the eight forms
of emotional abuse. Those younger than 30 years were 2.9 times more
likely to have such experience compared to those who were older (95%
CI 1.9 to 4.3), and males were more likely than females to report such
experience (OR 1.5, 95% CI 1.2-2.0). The perception of upbringing to have
been bad or acceptable compared to good was significantly related to the
number of forms of emotional abuse applied (p <0.0001) and the scope of
its application (p<0.0001).
Conclusions: More than 2/3 of Icelandic adults report emotional abuse
as children, and both scope and diversity of forms impact negatively on
felt quality of upbringing. Parenting styles can be changed, e.g. with ed-
ucation, social support, and legislation.
E 15 Ónæmisstjórnun ofnæmis í hrossum Cornell - Keldur sumarex-
emsrannsókn
Sigurbjörg Þorsteinsdóttir1, Vilhjálmur Svansson1, Sigríður Jónsdóttir1, Lilja
Þorsteinsdóttir1, Sigríður Björnsdóttir2, Bettina Wagner3
1Veiru- og sameindadeild, Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum, 2Matvælastofnun, 3Dýra-
sjúkdómadeild, Cornell Háskóla
sibbath@hi.is
Inngangur: Sumarexem er ofnæmi í hestum, orsakað af ofnæmisvökum
úr biti smámýs, (Culicoides spp.) sem lifir ekki á Íslandi. Tíðni sjúkdómsins
er mun hærri í útfluttum hestum en íslenskum hestum fæddum erlendis
og því kjörið til að bera saman dýr af sama erfðauppruna, útsett fyrir of-
næmisvökum á mismunandi þroskaskeiðum. Rannsaka átti hvort sérvirk
mótefni í broddmjólk mera sem bitnar hafa verið af smámýi veiti folöld-
um þeirra vörn gegn exemimu.
Efniviður og aðferðir: Bornir voru saman þrír árgangar af folöldum
undan 15 hryssum og einum stóðhesti. Hryssurnar köstuðu á Íslandi
2011, voru fluttar til Cornell fylfullar ásamt stóðhestinum og köstuðu þar
2012 og 2013. Folöldin frá 2011 voru flutt út tveggja vetra. Hestunum er
fylgt eftir með sýnatöku og reglulegri klínískri skoðun í a.m.k. þrjú ár frá
útsetningu fyrir flugunni.
Niðurstöður: Átta af útfluttu hryssunum (53%) höfðu fengið sumarexem
eftir annað sumarið. Fimm af folöldunum sem flutt voru út tveggja vetra
sýndu mild einkenni annað sumarið en einungis eitt (7%) var með sum-
arexem á þriðja sumri. Folöldin sem fædd voru 2012 í Cornell sýndu engin
einkenni fyrstu tvö sumrin en sex voru með mild einkenni þriðja sumarið
og tvö af þessum aftur fjórða sumarið en einnig önnur fjögur. Niðurstöður
úr þriðja árgangnum eru í vinnslu.
Ályktanir: Niðurstöður benda til að hross sem útsett eru fyrir smámýi
tveggja vetra séu í lítilli áhættu að fá sumarexem óháð útsetningu frá
fæðingu. Mild einkenni sem sjást í eitt eða tvö sumur ætti ekki að greina
sem sumarexem en gætu verið merki um ónæmisstjórnun.
E 16 Þróun aðferðar til að meðhöndla hross um munn gegn sum-
arexemi með byggi sem tjáir ofnæmisvaka
Sigríður Jónsdóttir1, Fahad Raza2, Sara B. Stefánsdóttir1, Vilhjálmur Svansson1,
Eliane Marti3, Bettina Wagner2, Einar Mäntylä4, Jón M. Björnsson4, Sigurbjörg
Þorsteinsdóttir1
1Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, 2Dýrasjúkdómadeild Cornell háskóla,
3Dýrasjúkdómadeild Háskólans í Bern, 4ORF Líftækni
sij9@hi.is
Inngangur: Sumarexem er IgE miðlað húðofnæmi í hestum orsakað
af biti smámýs sem lifir ekki á Íslandi. Tíðni sjúkdómsins er mjög há í
útfluttum hestum. Ofnæmisvakarnir sem valda exeminu hafa verið ein-
angraðir. Ójafnvægi milli Th1, Th2, og T-stýrifruma er orsök exemsins
og því ætti að vera hægt að þróa ónæmismeðferð með örvun á Th1 og
T-stýrifrumum. Markmið verkefnisins er að þróa aðferð til að meðhöndla
hross um munn með byggi sem tjáir ofnæmisvaka.
Efni og aðferðir: Aðferðin var prófuð á hestum á Keldum og sumarexems-
hestum í Cornell. Ofnæmisvakarnir Culn2 og Culn4 voru tjáðir í byggi.
Sérhönnuð holmél voru notuð til að meðhöndla hesta á Keldum með
möluðu Culn2 byggi (n=4) eða óbreyttu byggi (n=3). Sumarexemshestar í
Cornell fengu Culn4 bygg (n=3) eða óbreytt bygg (n=3). Tekin voru blóð-
og munnvatnssýni, mótefnasvar prófað í elísuprófi og lumminex, húðpróf
og klínísk skoðun var gerð á hestunum í Cornell.
Niðurstöður: Meðhöndlun á heilbrigðum hestum örvaði Culn2 sértækt
mótefnasvar, í blóði og munnvatni, aðallega IgG1 og IgG4/7. Hægt var að
efla svarið átta mánuðum síðar. Mótefnin hindruðu að hluta bindingu IgE
úr sumarexemshesti við Culn2. Meðhöndlun með Culn4 byggi í einungis
þrjá mánuði sýndi minnkaða næmni sumarexemshesta í húðprófi gegn
Culicoides extrakti og hliðrun á mótefnasvari frá IgE, IgG3, IgG5 í IgG1 og
IgG4/7. Ekki var munur á hópunum í klínískri skoðun.
Ályktanir: Aðferðin virðist vænlegur kostur til að meðhöndla hesta með
sumarexem en framkvæma þarf rannsóknir á fleiri sumarexemshestum,
með fleiri ofnæmisvökum í lengri tíma svo hægt sé að fullyrða um ár-
angur.
E 17 Þróun baculoveiruferja til bólusetninga gegn sumarexemi
í hestum. Tilraunabólusetningar í folöldum
Lilja Þorsteinsdóttir, Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, Vilhjálmur Svansson
Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum
liljatho@hi.is
Inngangur: Sumarexem er húðofnæmi í hestum sem orsakast af biti
smámýs sem lifir ekki á Íslandi. Tíðni sjúkdómsins er há í útfluttum
hestum. Baculoveirur eru skordýraveirur sem er notaðar til að tjá endur-
röðuð prótein en einnig sem genaferjur. Markmið verkefnisins er að
hanna baculoveiruferjur fyrir bólusetningu gegn sumarexemi.
Efniviður og aðferðir: Framleiddar voru fjórar veiruferjur, þrjár fyrir
bólusetningatilraunir og ein fyrir in vitro tilraunir. Veiruferjan, rBac-gB-
-CMV.Culn2 notar glýkóprótein B (gB) úr equine herpesveiru 2 (EHV-2)
undir stjórn polyhederin stýrils og CMV tjáningarkasettu með Culn2
ofnæmisvakageni. Hinar bólusetningaveiruferjurnar höfðu annaðhvort