Læknablaðið : fylgirit - 03.01.2017, Síða 27

Læknablaðið : fylgirit - 03.01.2017, Síða 27
X V I I I V Í S I N D A R Á Ð S T E F N A H Í F Y L G I R I T 9 1 LÆKNAblaðið/Fylgirit 91 2017/103 27 starfi sjúkraþjálfara með íþróttaliðum og íþróttafólki á Íslandi sem gefur vísbendingar um starf sjúkraþjálfara á þessu sviði. E 65 Algengi álagseinkenna hjá CrossFit-iðkendum á Íslandi: spurningalistakönnun Sigrún Agnarsdóttir Johnson1, Silja Rós Thedórsdóttir2 1Eirberg, 2Atlas endurhæfing saj33@hi.is Inngangur: CrossFit er ung og sívaxandi íþrótt, bæði á Íslandi og um heim allan. Fáar rannsóknir eru til um íþróttina og höfundar vita ekki til þess að nein rannsókn hafi verið gerð um meiðsli eða álagseinkenni í CrossFit á Íslandi. Tilgangur rannsóknarinnar var að: 1) kanna algengi álagseinkenna í hnjám, mjóbaki og öxlum hjá CrossFit-iðkendum á Íslandi yfir sjö daga tímabil, 2) kanna tengsl álagseinkenna við magn æfinga og verkjaupplifun, 3) kanna möguleg tengsl núverandi álagseinkenna og fyrri einkenna. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var þversniðsrannsókn yfir 7 daga tímabil. Spurningalisti var sendur út á hópinn “CROSSFIT á ÍSLANDI” á Facebook og svöruðu 253 (8,9%) einstaklingar honum. Spurningalistinn fól í sér fjóra hluta: (1) grunnupplýsingar, (2) álagseinkenni í hnjám, (3) mjóbaki og (4) öxlum síðustu sjö daga. Niðurstöður: 147 (58,1%) þátttakendur höfðu fundið fyrir álagseinkenn- um í hné, mjóbaki eða öxl. Algengast var að fólk fyndi álagseinkenni í öxl (36,1%), því næst í mjóbaki (28,4%) og hné (22,0%). Álagseinkenni sem byrjuðu eftir að CrossFit-iðkun hófst voru einnig algengust í öxl (20%). Engin marktæk tengsl fundust á milli fjölda æfinga á viku og tíðni álagseinkenna. Fyrri álagseinkenni reyndust áhættuþáttur fyrir álagsein- kennum í öxl (RR=2,3, 95%CI=1,6-3,2), mjóbaki (RR=3,3, 95%CI=2,0-5,4) og hné (RR=3,1, 95%CI=1,9-5,1). Ályktun: Algengt var að þátttakendur í CrossFit fyndu fyrir álagsein- kennum þá viku sem rannsóknin stóð yfir, sérstaklega í öxl. Saga um álagseinkenni var áhættuþáttur fyrir endurtekin álagseinkenni. Frekari rannsókna er þörf til að meta magn og alvarleika álagseinkenna í CrossFit yfir lengri tíma. E 66 Regluleg hreyfing í borgarnáttúru skilar heilsusamlegri útkomu en sama hreyfing í manngerðu umhverfi Gunnþóra Ólafsdottir1, Paul Cloke2, Elissa Epel3, Jue Lin4, Zoé Van Dyck5, Björg Þorleifsdóttir3, Þór Eysteinsson3, Marta Guðjónsdóttir3, Hans Beck6, Arna E. Karlsdóttir6, André Schulz5, Elizabeth Cook7, Joshua Cheon4, Claus Vögele5 1Rannsóknamiðstöð Ferðamála, Háskóli Íslands, 2Landfræðideild, Háskólinn í Exeter, 3Læknadeild, Háskólinn í Kaliforníu (UCSF), 4Efna- og eðlisfræðideild, Háskólinn í Kaliforníu (UCSF), 5Rannsóknastofnun um heilsu og lífsstíl, Háskólinn í Lúxemborg, 6Hjarta- og lungnarannsóknastofa, Reykjalundur, 7Rannsóknakjarni klínískrar lífefnafræði, Landspítali gunnthora@hi.is Inngangur: Rannsóknir sýna að regluleg hreyfing lengir litningaenda (telomere) og við það dregur úr hrörnun, minnkar áhætta á sjúkdómum og lífslíkur aukast. Rannsóknir hafa einnig sýnt að hreyfing í nátt- úruríku umhverfi getur haft góð áhrif á líkamlega og andlega heilsu. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort umhverfið þar sem hreyfingin fer fram hafi áhrif á viðhald litningaenda og geti þannig skipt sköpum fyrir heilsuna. Efniviður og aðferðir: 60 Íslendingar (50% konur, meðalaldur 25,9 ±3,4 ár) tóku þátt í 5 mánaða lífsstílsbreytingu (vetur-sumar) sem fól í sér að stunda reglulega þolþjálfun úti í borgarnáttúrunni (n=20), eða inni í heilsuræktarstöð (n=20) eða breyta ekki lífsstíl sínum (n=20). Mælingar voru gerðar á lengd litningaenda, magni á litningaendaensími (telomer- ase) og hvatbera DNA (mtDNA) fyrir og eftir lífsstílsbreytinguna, sem og aðrar lífeðlisfræðilegar og sálfræðilegar breytur sem mældar voru mánaðarlega. Niðurstöður: Litningaendar lengdust marktækt í öllum hópum (p< .001), sem mögulega tengist árstíðasveiflum, en tilhneigingin var meiri hjá þolþjálfunarhópunum. Eftir lífsstílsbreytinguna mældist litningaendaensímið hjá innihópnum marktækt minna en hjá nátt- úru- og viðmiðunarhópnum sem bendir til minni getu til viðhalds og/ eða áframhaldandi lengingar litningaenda. Einnig fundust veikar vís- bendingar um að lengingin væri mest hjá þeim einstaklingum í inni- og viðmiðunarhópi, sem höfðu langa litningaenda fyrir. Því var öfugt farið hjá náttúruhópnum. Ályktanir: Umhverfið þar sem regluleg hreyfing fer fram virðist skipta máli fyrir viðhald litningaenda. Náttúruríkt umhverfi hefur í þessu sam- hengi jákvæðari áhrif en manngert. Niðurstöðurnar gefa til kynna að útivist og náttúruupplifun samhliða reglulegri hreyfingu sé mikilvægur þáttur til að tryggja góða (lýð)heilsu. E 67 Rare functional variant in TM2D3 is associated with late-onset Alzheimer's disease Jóhanna Jakobsdóttir Icelandic Heart Association jjakobsdottir@gmail.com Introduction: We performed an exome-wide association analysis in 1393 late-onset Alzheimer’s disease (LOAD) cases and 8141 controls from the CHARGE consortium. Results: We found that a rare variant (P155L) in TM2D3 was enriched in Icelanders (~0.5% versus <0.05% in other European populations). In 433 LOAD cases and 3903 controls from the Icelandic AGES sub-study, P155L was associated with increased risk and earlier onset of LOAD [odds ratio (95% CI) = 7.5 (3.5-15.9), p =6.6x10-9]. Mutation in the Drosophila TM2D3 homolog, almondex, causes a phenotype similar to loss of Notch/Presenilin signaling. Human TM2D3 is capable of rescuing these phenotypes, but this activity is abolished by P155L, establishing it as a functionally damaging allele. Conclusions: Our results establish a rare TM2D3 variant in association with LOAD susceptibility, and together with prior work suggests possible links to the β-amyloid cascade. E 68 Cancer genetic counselling based on electronic mega- pedigrees incorporating Cancer Registry information 2007-2015 Vigdís Stefánsdóttir1, Óskar Jóhannsson2, Heather Skirton3, Laufey Tryggvadóttir1, Jón J. Jónsson1 1Biochemistry and Molecular Biology, Faculty of Medicine, University of Iceland, 2Medical Oncology, Landspitali - University Hospital, 3Plymouth University vigdiss@hi.is Introduction: Cancer genetic risk assessment uses pedigrees. We describe the experience with mega-pedigrees using information from the population-based genealogy database of the Genetical Committee and Icelandic Cancer Registry. Until recently, only two BRCA pathogenic variations (PV) were known in the Icelandic population i.e. the BRCA2:c.771_775del5 with carrier frequency 0.6- 0.8% and the BRCA1:5193G->A, with unknown but low frequency. Materials and Methods: The study was based on 1981 individuals seen in our clinic for familial breast and ovarian cancer in the years 2007-2015.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.