Læknablaðið : fylgirit - 03.01.2017, Síða 32

Læknablaðið : fylgirit - 03.01.2017, Síða 32
32 LÆKNAblaðið/Fylgirit 91 2017/103 fæðingu án inngripa (n=44, 10.7%). Af 101 konu með lágan fæðingarótta vildi 21 kona (20.8%) fæðingu án inngripa. Af 66 konum með hátt sjálfsör- yggi varðandi eigin fæðingarþekkingu vildu 15 (22.7%) konur fæðingu án inngripa. Konur með lágan fæðingarótta voru líklegri til að vilja fæðingu án inngripa samanborið við konur með meðal fæðingarótta (RRa=2.83; 95%CI; 1.48-5.41) og háan fæðingarótta (RRa=4.86; 95%CI; 1.37-17.27). Konur með hátt sjálfsöryggi varðandi eigin fæðingarþekkingu voru lík- legri til að vilja fæðingu án inngripa samanborið við konur með meðal sjálfsöryggi (RRa=2.81; 95%CI; 1.51-5.22) og lágt sjálfsöryggi (RRa=3.42; 95%CI; 1.43-8.18). Ályktanir: Niðurstöðurnar benda til þess að ungar konur á Íslandi með lágan fæðingarótta og hátt sjálfsöryggi varðandi fæðingarþekkingu sína séu líklegri til að vilja fæðingu án inngripa en ungar konur með hærri fæðingarótta og lægra sjálfsöryggi varðandi fæðingarþekkingu sína. E 82 Fæðingarinngrip á Íslandi og tengsl við lífstílssjúkdóma barnshafandi kvenna: lýðgrunduð rannsókn (1989-2014) Emma Swift1, Helga Gottfreðsdóttir2, Helga Zoëga3 1Hjúkrunarfræðideild (Ljósmóðurfræði), Háskóli Íslands, 2Hjúkrunarfræðideild, Háskóli Íslands, 3Læknadeild, Háskóli Íslands ems23@hi.is Inngangur: Inngrip í fæðingar hafa aukist á undanförnum árum víða um heim. Einnig hefur algengi lífstílssjúkdóma, eins og sykursýki og háþrýstings, aukist. Markmið rannsóknarinnar er að lýsa breytingum á notkun algengra fæðingarinngripa á Íslandi yfir 26 ára tímabil og jafn- framt að kanna hvort sykursýkis- og háþrýstingsgreiningar móður hafi áhrif á notkun inngripa í fæðingu. Efniviður og aðferðir: Í þessari lýðgrunduðu rannsókn voru notuð gögn úr Fæðingaskrá frá árunum 1989-2014. Í Fæðingaskrá má finna upplýsingar um allar fæðingar barna á Íslandi sem fædd eru þyngri en 500 grömm eða eftir 22. viku meðgöngu. Til grundvallar lágu 114.501 fæðingar yfir 26 ára tímabil. Algengum inngripum var lýst yfir tíma en einnig eftir félagslegum og meðgöngutengdum þáttum móður. Poisson aðhvarfsgreining var notuð til að skoða tengsl greininga á sykursýki og háþrýstingi og algengi inngripa í fæðingar. Fyrstu niðurstöður: Algengi gangsetningar tvöfaldaðist á tímabilinu (frá 10,6% til 23,4%), og algengi mænurótardeyfingar fór úr 28,0% í 51,8% á sama tímabili. Algengi keisaraskurðar breyttist lítið (frá 12,1% í 15,8%). Fæðingarinngrip eru frekar nýtt hjá konum sem hafa greiningu um há- þrýsting eða sykursýki en sú mikla aukning sem orðið hefur á fæðingar- inngripum skýrist þó ekki fyllilega af fjölgun í þessum hópum. Ályktanir: Algengi keisaraskurðar var stöðug á Íslandi á árunum 1989- 2014. Á sama tíma tvöfaldaðist algengi gangsetninga og mænurótardeyf- inga. Þessa aukningu má að einhverju leyti skýra með aukningu á grein- ingum á háþrýsting og sykursýki. Frekari rannsókna er þörf til að skoða hvaða ástæður liggja að baki mikilli aukningu í notkun gangsetninga og mænurótardeyfinga í fæðingum á Íslandi. E 83 Ástæður valkeisaraskurða og nýgengi öndunarörðugleika hjá börnum sem fæddust með valkeisaraskurði á Landspítalanum 2000- 2014 Jóhanna V. Ríkharðsdóttir1, Hildur Harðardóttir2, Margrét Sigurðardóttir3, Þórður Þórkelsson3 1Háskóli Íslands, 2Kvennadeild Landspítala, Háskóli Íslands, 3Barnaspítali Hringsins johanna105@gmail.com Inngangur: Til að minnka líkur á öndunarörðugleikum hjá nýburum sem fæðast með valkeisaraskurði er mælt með að þeir séu ekki gerðir fyrr en 39 vikna meðgöngu er náð. Þrátt fyrir þau tilmæli er hluti þeirra gerður fyrir þann tíma. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna fjölda og ástæður valkeisaraskurða sem gerðir voru fyrir 39 vikna meðgöngu og skoða hvort hægt hefði verið að fresta hluta þeirra þar til 39 vikna meðgöngu var náð. Jafnframt var kannað nýgengi öndunarörðugleika hjá börnum sem fæddust með valkeisaraskurði. Efniviður og aðferðir: Klínískra upplýsinga var aflað úr mæðraskrám og sjúkraskrám barna sem fæddust með valkeisarskurði á Landspítala eftir ≥370 vikna meðgöngu árin 2000-2014. Fjölburar voru útilokaðir frá rannsókninni. Niðurstöður: Á rannsóknartímabilinu fæddust 2574 börn með valkeisara- skurði á Landspítalanum eftir ≥37 vikna meðgöngu, þar af 608 eftir 370- 386 vikna meðgöngu. Læknisfræðilegar ábendingar voru til staðar í 207 tilfellum en ekki hjá 401, sem hefði mögulega verið hægt að fresta til ≥390 vikna meðgöngu. Nýgengi öndunarörðugleika hjá börnum sem fæddust eftir 370-386 vikna meðgöngu var 5,9% en 2,7% eftir >390 vikna meðgöngu (p<0,001). Ályktanir: Rannsóknin staðfestir mikilvægi þess að bíða með að gera val- keisaraskurði þar til 39 vikna meðgöngulengd er náð, til að minnka líkur á öndunarörðugleikum hjá börnunum. Á Landspítala eru rúmlega 15% valkeisaraskurða gerðir fyrir 39 vikna meðgöngu án læknisfræðilegrar ástæðu. Þeim ætti að vera hægt að fresta þar til 39 vikna meðgöngu er náð og með því minnka nýgengi öndunarörðugleika hjá nýburum, sem fæðast með valkeisaraskurði, frá því sem nú er. E 84 Tengsl fæðingastellinga við útkomu spangar eftir innleiðingu breytts vinnulags á öðru stigi fæðingar á Landspítala Edda Sveinsdóttir, Helga Gottfreðsdóttir Hjúkrunarfræðideild, Háskóli Íslands eddasveins@simnet.is Inngangur: Mikilvægt er að kona í fæðingu hafi val um fæðingarstellingu en það hefur bæði áhrif á framgang fæðingar og fæðingarreynslu konunn- ar. Rannsóknir eru misvísandi varðandi stellingar í fæðingu og spangar- áverka. Um síðustu aldamót jókst tíðni 3° og 4°spangarrifa á Íslandi og náði 5,6% árið 2008. Ýmsar aðferðir hafa verið notaðar í fæðingarhjálp til að draga úr áverkum á spöng en líklegt er að sumar þeirra hafi áhrif á þá stellingu sem konan fæðir barn sitt í. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var hálfstöðluð íhlutunarrannsókn. Fæðingarstellingar voru skoðaðar í tengslum við nýtt vinnulag sem var innleitt 2011 til að draga úr tíðni alvarlegra spangaráverka á öðru stigi fæðingar. Allar konur sem fæddu um leggöng frá 2012-2014 (n=7242) voru þátttakendur. Horft var til ýmissa þátta varðandi fæðinguna og útkomu hennar, s.s. fæðingarstærðar, tímalengdar fæðingar, notkunar oxytósíns auk fæðingarstellingar. Gögnum frá tímabilinu fyrir íhlutun var safnað afturskyggnt. Niðurstöður: Fæðingarstelling var eingöngu skráð með markvissum hætti eftir innleiðingu á breyttu vinnulagi. Algengasta fæðingastellingin var hálfsitjandi staða (n=4207) með 3% tíðni alvarlegra spangaráverka. Hæsta tíðnin m.t.t. stellingar var 6% meðal kvenna sem fæddu á fæðingar- kolli (n=18), í stoðum (n=640) eða annarri óskilgreindri stellingu (n=55). Eftir innleiðingu dró úr vatnsfæðingum. Ályktanir: Vinnulagið virðist hafa áhrif á fæðingarstellingar og ljósmæð- ur gætu haft tilhneigingu til að stýra konunum meira eftir að nýtt vinnu- X V I I I V Í S I N D A R Á Ð S T E F N A H Í F Y L G I R I T 9 1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.