Læknablaðið : fylgirit - 03.01.2017, Síða 39
LÆKNAblaðið/Fylgirit 91 2017/103 39
X V I I I V Í S I N D A R Á Ð S T E F N A H Í
F Y L G I R I T 9 1
Mikilsvert er að niðurgreiða getnaðarvarnir til að konur hafi val um fleiri
tegundir getnaðarvarna og geti á öruggan hátt haft stjórn á barneignum.
E 105 Alvarleg gula hjá nýburum: nýgengi og áhættuþættir
Ása U. Bergmann Þorvaldsdóttir, Þórður Þórkelsson
Barnaspítali Hringsins, Háskóli Íslands
asaunnur@gmail.com
Inngangur: Nýburagula orsakast af auknu magni gallrauða (bilirubin)
í blóði. Ef þéttni blóðrauða í blóði nýbura verður mjög há er hætta á að
hann nái að fara yfir blóð-heilaþröskuld, sem getur valdið alvarlegum
heilaskemmdum.
Efni og aðferðir: Gerð var afturskyggn tilfellaviðmiðarannsókn á fullburða
nýburum (meðgöngulengd >37 vikur) sem fæddust á Landspítalanum
2008-2014 og mældust með gallrauða ≥350 µmól/L í blóði. Fyrir hvert
tilfelli var fundið eitt viðmið í þjóðskrá, parað á fæðingardegi. Nýgengi
alvarlegrar nýburagulu (gallrauði ≥350 µmól/L) var reiknað sem fjöldi
tilfella árlega miðað við heildarfjölda fullburða barna sem fæddust á
Landspítalanum.
Niðurstöður: 128 börn uppfylltu skilyrði rannsóknarinnar. Nýgengi
alvarlegrar gulu yfir allt tímabilið var 0.58%. Börn með alvarlega gulu
voru fædd eftir styttri meðgöngulengd en viðmiðin (<0,0001), voru líklegri
að vera með mar við fæðingu (p=0,0068), að hafa lést meira fyrstu fimm
dagana eftir fæðingu (p=0,0125) og að hafa útskrifast af spítalanum <36
klukkustunda gömul (p=0,0015).
Ályktanir: Styttri meðgöngulengd eykur líkur á alvarlegri gulu hjá nýbur-
um, jafnvel fullburða börnum. Börn sem útskrifast snemma heim og eru
undir eftirliti ljósmóður í heimahúsi eru líklegri til að fá alvarlega gulu en
börn sem fylgst er með á sjúkrahúsi. Mikið þyngdartap fyrstu dagana eftir
fæðingu, sem yfirleitt er vegna ónógrar fæðuinntöku, eykur einnig líkur
á alvarlegri gulu. Hugsanlegt er að hægt sé að minnka líkur á alvarlegri
gulu með því að bæta eftirlit með gulu hjá börnum í heimahúsi, til dæmis
með notkun húðmæla og að fylgjast betur með næringarinntöku þeirra, til
dæmis með því að vigta þau í heimahúsi.
E 106 Sulforaphane hindrar mæði-visnuveiru sýkingu í makrófögum
Stefán R. Jónsson, Valgerður Andrésdóttir
Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum
stefanjo@hi.is
Inngangur: Stöðugt vopnakapphlaup er milli lífvera og veira. Veirur nýta
sér mörg af próteinum hýsilsins sér til framdráttar og hafa hýsilfrumur
komið sér upp margvíslegum vörnum gegn veirusýkingum. Nokkrar
veirur nýta sér tjáningu Nrf2 sem er lykilprótein í andoxunarferl-
inu. Nýlega kom í ljós að aukning í tjáningu Nrf2 með plöntuefninu
Sulforaphane (SFN) hindraði HIV-1 sýkingu í makrófögum en ekki T
frumum. Var því athugað hvort að hægt væri að hindra mæði-visnuveiru
(MVV) sýkingu í kinda makrófögum með því að auka tjáningu Nrf2 með
SFN. Einnig var athugað hvort að munur væri á áhrifum aukinnar Nrf2
tjáningar í makrófögum og choroid plexus (SCP) frumum.
Efni og aðferðir: Kinda makrófagar og SCP frumur voru meðhöndlað-
ar með 5µM SFN og sýktar með KV1772 sólarhring síðar. Tekin voru
sýni daglega og á þriggja daga fresti var SFN og AZT bætt í ræktirnar.
Veiruframleiðsla var mæld með RT-qPCR.
Niðurstöður: Meðhöndlun með SFN hindraði MVV sýkingu í makrófög-
um. Mun minni áhrif voru af SFN í SCP frumum. SFN hafði ekki áhrif á
lífvænleika frumnanna.
Ályktanir: Niðurstöðurnar sýna að hægt er að hindra MVV sýkingu í
makrófögum, sem eru náttúrulegar markfrumur veirunnar, með með-
höndlum með SFN.
E 107 IL-10 phosphorylates STAT 3 but does not show synergistic
effects with common gamma chain cytokines
Fannar P. Theódórs, Andri L. Lemarquis, Helga K. Einarsdóttir, Björn R.
Lúðvíksson
Department of Immunology, Landspítali
fat2@hi.is
Introduction: Selective IgA deficiency (sIgAD) is characterized by the
inability of B lymphocytes to produce IgA.
It has been shown in vitro that IgAD B cells can produce IgA after
combined IL-10 and IL-4 stimulation compared to much weaker response
with IL-10 and IL-2 stimulations, even though both IL2 and 4 signal
through the common gamma chain.
Aim of this study is to profile B and T cell signaling with these cytokines
with Phospho flow, a new method of researching intracellular pathways
by measuring phosphorylation of signalling molecules.
Material and methods: Peripheral mononuclear cells (PBMCs) were
stimulated with selected cytokines for 30 minutes and then stained for
phosphorylated intracellular proteins of the JAK/STAT and MAP kinase
pathways: STAT1, STAT3, STAT5, STAT6 and ERK1/2, P38.
Results: No interplay was seen following co-stimulation of different
cytokines with IL-10. IL-21, a cytokine known to be important in the
induction of IgA production, showed signaling through STAT3 like
IL-10. Stimulation by INF- γ, a cytokine known for it´s pro-inflamatory
properties, showed phosphorylation through STAT1 and PMA through
P38 and ERK1/2.
Conclusions: Even though a synergistic augmentative effect on IgA
secretion is seen with common gamma chain cytokines in addition to IL-10
no differences in phosphorylation were observed at an early timepoint.
The differences may be seen at later timepoints and at different
maturation stages of B cells and are important to clarify since by further
understanding the signaling pathways important in IgA class switching
can provide therapeutic insights using novel drugs targeting intracellular
pathways.
E 108 The Loss of A-Type Current in the Mitf Mutant Olfactory Bulb
Projection Neurons
Hallur Reynisson1,2, Diahann A. M. Atacho2, Eiríkur Steingrímsson3, Pétur H.
Petersen2, Þór Eysteinsson1
1Department of Physiology, University of Iceland, 2Department of Neuroscience, University of
Iceland, 3Department of Biochemistry and Molecular Biology, University of Iceland
hallurlitli@gmail.com
Introduction: The Mitf transcription factor has been shown to be ex-
pressed by projection neurons of the olfactory bulb (OB). However its
putative function in neural circuits of the OB is still unknown. It has been
shown that Mitf mutant mice show hypersensitivity to novel scents after
habituation. In this study we examine the electrophysiological character-
istics of olfactory bulb projection neurons (OBPN) from wild type and Mitf
mutant mice to better understand this increase in olfactory discrimination.
Materials and methods: Olfactory bulbs were removed from C57BI/6J