Læknablaðið : fylgirit - 03.01.2017, Qupperneq 61

Læknablaðið : fylgirit - 03.01.2017, Qupperneq 61
X V I I I V Í S I N D A R Á Ð S T E F N A H Í F Y L G I R I T 9 1 LÆKNAblaðið/Fylgirit 91 2017/103 61 eríur í nefkoki barna en geta valdið alvarlegum sýkingum. Í lok síðustu aldar fjölgaði sýkingum af völdum fjölónæmra pneumókokka. Því þurfti að nota breiðvirk sýklalyf, oftast ceftriaxone, gegn alvarlegum sýkingum og eyrnabólgu sem mögulega orsökuðust af fjölónæmum pneumókokk- um. Í kjölfarið jókst notkun ceftriaxone mikið. Árið 2011 hófust bólusetningar með 10-gildu próteintengdu pneumó- kokkabóluefni á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar var að meta mögulega breytingu á notkun ceftriaxone á bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins eftir upphaf bólusetninga gegn pneumókokkum. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var afturskyggn. Borin voru saman tímabilin fyrir (2008-2010) og eftir (2011-2015) upphaf bólusetninganna. Upplýsingar fengust úr tveimur gagnasöfnum, annars vegar var leitað eftir hjúkrunarmeðferð með ceftriaxone, hins vegar var leitað eftir öllum útskriftargreiningum fyrir eyrnabólgu. Gagnasöfnin voru sameinuð og flokkuð eftir aldri, kyni, greiningum og meðferð. Tölfræðiútreikningar voru gerðir með R og var notast við t-próf og lógistíska aðhvarfsgreiningu með innifalinni poisson greiningu. Niðurstöður: Komum vegna eyrnabólgu fækkaði ómarktækt um 47,2/ ári úr 614 í 566,8/ári (95%ÖB -45,9-140,3, p=0,1944). Hlutfallsleg áhætta á ceftriaxone meðferð var minni á seinna tímabilinu (RR=0,589, 95%ÖB 0,56- 0,66, p<0,001), óháð útskriftargreiningu og leiðrétt fyrir aldri. Hlutfallsleg áhætta á ceftriaxone meðferð fyrir sjúklinga með eyrnabólgu var einnig minni (RR=0,35 (95%ÖB 0,297-0,416, p<2 x 10-16), einnig leiðrétt fyrir aldri. Umræður: Lítil og ómarktæk fækkun varð á komum vegna eyrnabólgu milli tímabila. Notkun ceftriaxone á Bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins minnkaði marktækt, bæði heildarnotkun og notkun við eyrnabólgu. Niðurstöðurnar sýna að verulega dró úr notkun ceftriaxone eftir upphaf bólusetninga. M 8 Faraldsfræði Haemophilus influenzae fyrir og eftir bólusetningu á Íslandi Hildigunnur Sveinsdóttir1,2, Jana B. Björnsdóttir2, Helga Erlendsdóttir2, Martha Á. Hjálmarsdóttir2, Ásgeir Haraldsson2, Karl G. Kristinsson2, Gunnsteinn Haraldsson2 1Sýklafræðideild LSH, 2Læknadeild Háskóla Íslands, Lífvísindasetur Háskóla Íslands his37@hi.is Árið 2011 var próteintengda pneumókokkabóluefnið Synflorix® tekið inn í almenna bólusetningu barna á Íslandi. Burðarprótein bóluefnisins er prótein D (PD) úr H.influenzae. Genið hpd sem skráir fyrir PD er vel varð- veitt, en er þó ekki til staðar í öllum stofnum. Markmiðið var að kanna far- aldsfræði H.influenzae í heilbrigðum leikskólabörnum og eyrnasýkingum. Einnig að kanna hlutfall hpd neikvæðra stofna og hvaða áhrif bólusetning með PD burðarpróteini hefur. H.influenzae stofnar voru einangraðir úr nefkokssýnum sem var safnað úr heilbrigðum leikskólabörnum (2009, 2012-2016) og sýnum úr miðeyra sem bárust á sýklafræðideild Landspítala (2012-2015). Leitað var að hpd með PCR með sértækum prímerum, til að staðfesta hpd neikvæða stofna var leitað að fuculose-kínasa geninu. Leitað var að hjúpuðum stofnum með bexA prímerum og þeir hjúpgreindir með hjúpgerðarsértækum prímerum. Frá 3097 leikskólabörnum og fengust 2271 H.influenzae stofnar (heildarberatíðni 73,3%). Beratíðni sveiflaðist frá 61,5-86,9% milli ára en lækkaði ekki í kjölfar bólusetningar. Hlutfall hpd neikvæðra stofna var 6,1% (4,6-7,4%). Hlutfall hjúpaðra stofna var 0-2,2%, hjúpgerð f var al- gengust. Sýnum frá sýkingum í miðeyra af völdum H.influenzae fækkaði í kjölfar bólusetninga úr 235 árið 2012 í 85 árið 2015. Hlutfall hpd neikvæðra stofna var 7,2% (5,9-8,6%) og breyttist ekki marktækt eftir bólusetningu. Hlutfall hjúpaðra stofna var 0-2,4%, algengasta hjúpgerðin var e. Bólusetning með Synflorix hefur lítil áhrif á beratíðni H.influenzae hjá heilbrigðum leikskólabörnum á Íslandi en sýkingum í miðeyra af völdum H.influenzae fækkaði. Hlutfall hjúpaðra stofna var svipað milli ára. Hlutfall hpd neikvæðra stofna breyttist ekki eftir að bólusetningar hófust. M 9 Líkamsþyngd og algengi sykursýki hjá fólki 50 til 70 ára 1967- 2012 í rannsóknum Hjartaverndar á almennu þýði Thor Aspelund, Elías F. Guðmundsson, Bolli Þórsson, Vilmundur Guðnason Hjartavernd thor@hi.is Inngangur: Aukin líkamsþyngd og vaxandi algengi sykursýki er alþjóð- legt vandamál og er jafnvel talað um heimsfaraldur. Efniviður og aðferðir: Hóprannsóknir Hjartaverndar hafa byggst á slembivali af íbúum höfuðborgarsvæðisins. Þátttaka karla og kvenna hefur verið góð eða 70% til 80%. Til eru þverskurðar gögn frá 1967 til 2012, með nokkurra ára bili, um líkamsþyngd og algengi sykursýki (af tegund 2) hjá fólki 50 til 70 ára. Hér er gerð grein fyrir þróun líkams- þyngdar og algengi sykursýki karla og kvenna 50-70 ára 1967-2012. Aldursleiðréttar niðurstöður eftir kyni voru birtar. Niðurstöður: Meðallíkamsþyngdarstuðull karla jókst úr 25,9 í 28,7 og kvenna frá 25,2 til 27,2. Aldursstöðluð meðalþyngd karla fór úr 78,6 kg í 92,8 kg. Aukning í meðalþyngd karla leiðrétt fyrir aldri og hæð var 11,1 kg á tímabilinu. Meðalþyngd kvenna fór úr 65,3 kg í 75,4 kg. Aukning í með- alþyngd kvenna leiðrétt fyrir aldri og hæð var 8,8 kg. (Aldursstöðluð með- alhæð karla og kvenna jókst um 5,5 cm á tímabilinu.) Algengi sykursýki jókst frá 5,8% hjá körlum í 12,0% og hjá konum úr 2,7% í 4,1%. Hækkun var marktækt meiri hjá körlum bæði fyrir þyngd og sykursýki. Ályktanir: Meðallíkamsþyngdarstuðull hefur stöðugt aukist undanfarna áratugi, einkum eftir 1980, og marktækt meira hjá körlum en konum. Sykursýki eykst í hlutfalli við vaxandi ofþyngd. M 10 Þróun sykurneyslu á Íslandi - mögulegir áhrifa- og skýringaþættir Laufey Steingrímsdóttir1, Hólmfríður Þorgeirsdóttir2, Daði Már Kristófersson3 1Matvæla- og næringarfræðideild, Háskóli Íslands, 2Embætti Landlæknis, 3Háskóli Íslands, Hagfræðideild laufey@hi.is Rannsóknir benda eindregið til þess að áhrif óhóflegs sykurs á heilsu og líkamsþyngd séu alvarlegri en lengi var talið. Hér verður greint frá þróun í neyslu sykurs á Íslandi undanfarna áratugi, og leitast við að greina mögu- lega skýringaþætti á þróuninni. Notuð voru gögn um fæðuframboð af vef Embættis landlæknis, ásamt niðurstöðum landskannanna á mataræði frá 1990, 2002 og 2012. Samkvæmt tölum um fæðuframboð var neysla á sykri nánast óbreytt í fjölda áratuga allt til síðustu aldamóta, eða um 53 kg/mann/ár, en hefur lækkað jafnt og þétt síðan. Á árunum 2001-2005 var neyslan 50,3 kg/mann/ ár, 47,1 kg árið 2008, 45,4 kg árið 2011 og 41,8 kg árið 2014. Neysla gosdrykkja samkvæmt fæðuframboði náði hámarki á árunum 2001 til 2005, 154 lítrar/mann/ár, og var frá 152 til 146 lítrar á mann til ársins 2013. Árið 2014 hafði neyslan lækkað í 133 lítra á mann. Samkvæmt landskönnun á mataræði1990 var meðalneyslan á viðbætt- um sykri, reiknuð sem hlutfall orku (E%), 8,4E%. Árið 2002 hafði sykur- neyslan hækkað í 10,6E%, en lækkað aftur í 8,9E% árið 2011. Verðlag, aðgengi og fræðsla,hafa áhrif á neyslu gosdrykkja og annarra
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.