Læknablaðið : fylgirit - 03.01.2017, Blaðsíða 77

Læknablaðið : fylgirit - 03.01.2017, Blaðsíða 77
X V I I I V Í S I N D A R Á Ð S T E F N A H Í F Y L G I R I T 9 1 LÆKNAblaðið/Fylgirit 91 2017/103 77 fyrir að meiri líkur séu á því að þær slíti FK er heildarfjöldi þeirra sem slíta FK að miklum meirihluta karlar. V 50 Samanburður á styrk grindarbotnsvöðva hjá keppnisíþróttakonum og óþjálfuðum konum Ingunn Lúðvíksdóttir1, Hildur Harðardóttir2,3, Þorgerður Sigurðardóttir3, Guðmundur Freyr Úlfarsson4 ¹Menntavísindasviði Háskóla Íslands, ²kvennadeild Landspítala, ³læknadeild, ⁴umhverfis- og byggingaverkfræðideild Háskóla Íslands hhard@landspitali.is Inngangur: Regluleg þjálfun hefur í för með sér heilsufarslegan ávinning en viðvarandi hátt æfingaálag getur haft neikvæðar afleiðingar. Efniviður og aðferðir: Meginmarkmið var að bera saman styrk grindar- botnsvöðva (G) meðal keppnisíþróttakvenna (K) og óþjálfaðra kvenna (Ó), skoða tíðni þvagleka og þekkingu við að spenna G rétt. Framskyggn samanburðarrannsókn þar sem borinn var saman styrkur G hjá K og Ó. Ó stunduðu enga reglubundna þjálfun en K stunduðu keppnisíþrótt (hand- bolta, fótbolta, körfubolta, fimleikum, tennis, badminton, crossfit) > 3 ár. Allar voru heilsuhraustar og höfðu ekki fætt. Styrkur G var mældur hjá þátttakendum og athugað hvort þær kynnu að spenna G rétt. Þátttakend- ur svöruðu spurningalista (hæð, þyngd, aldur, hreyfing, þekkingu á G, þvagleki). Niðurstöður hópanna voru síðan bornar saman. Niðurstöður: Þátttakendur voru 34; 18 K og 16 Ó. Þær voru sambæri- legar í aldri og hæð, en Iíkamsþyngdarstuðull (LÞS) var 22,8 og 25kg/m² (p<0,05) hjá K og Ó. K og Ó stunduðu líkamsþjálfun í 11,4 og 1,3 klst./ viku (p<0,05). Meðaltalsstyrkur G hjá K og Ó var 44,5 hPa og 42,7 hPa (p=0,721). Þvagleka fengu 61,1% K (n=11) en 12,5 % Ó(n=2). Undir miklu æfingaálagi fengu allar K þvagleka. Hjá 22% K varð þvagleki við hnerra/ hósta. Þekking á G var betri hjá K en Ó og þær voru líklegri til að gera grindarbotnsæfingar reglulega. Ályktanir: Ekki var marktækur munur á styrk G á milli K og Ó. Hátt hlut- fall K með þvagleka kom á óvart og að þær séu líklegri að fá þvagleka. Grindarbotnsvöðva þarf að þjálfa sérstaklega. V 51 Sex-related differences in knee valgus moment during a cutting maneuver by athletes aged 9-11 Haraldur B. Sigurðsson1, Þórarinn Sveinsson2, Kristín Briem2 1Faculty of Medicine, 2Department of Physical Therapy, University of Iceland harbs@hi.is Introduction: The knee valgus moment is a risk factor for future anter- ior cruciate ligament (ACL) injury, and contributes directly to ACL load. Risk of ACL injury is higher for females and under fatigue. Little is known about sex related differences in knee valgus moment in athletes aged 9-11, their limb differences, or how they are affected by fatigue. Methods: Soccer and team handball athletes (N=125) were recruited from local sports clubs, and had reflective markers placed on key anatomic locations. Athletes performed 5 repetitions on each leg of a cutting maneu- ver, then underwent a 5-min fatigue protocol before repeating the task. Data were collected using an 8 camera motion capture system (Qualisys) and two AMTI force plates, sampling at 200Hz. Statistical analysis was performed with a mixed models ANOVA for main effects and interactions of age, sex, fatigue, and side. Results: Overall, females had a significantly lower mean (SD) knee valgus moment than males (0.08 (0.24) vs. 0.15 (0.26) Nm/kg; p=0.018). A sex by side interaction was found for the knee valgus moment (p<0.001) due to greater inter-limb differences seen for male compared to female particip- ants. Moderate correlations were found between the valgus and internal rotation moments of the knee (r=0.53; p>0.001) and between hip and knee frontal plane moments (r=0.53; p<0.001). Conclusions: Sex dependent differences in knee valgus moment and sex-specific side asymmetries exist from an early age. This may have implications for injury prevention studies where interventions may be tar- geted towards young athletes. V 52 Árstíðabundinn munur á svefntruflunum og andlegri líðan Arndís Valgarðsdóttir1, Ingunn Hansdóttir1, Erla Björnsdóttir2, Lárus S. Guðmundsson3, Björg Þorleifsdóttir4 1Sálfræðideild, heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands, 2Landspítala, 3lyfjafræðideild Háskóla Íslands, 4Lífeðlisfræðistofnun, læknadeild Háskóla Íslands arndis@undraland.com Inngangur: Svefntruflanir eru algengt vandamál og geta dregið úr vellíð- an, lífsgæðum og starfsgetu, haft slæm áhrif á heilsufar og alvarlegar fé- lagslegar og efnahagslegar afleiðingar. Rannsóknir hafa sýnt að árstíða- bundnar birtusveiflur hafa neikvæð áhrif á svefngæði og svefntíma og á veturnasvefntruflanir. Markmið rannsóknarinnar er að kanna árstíða- bundinn mun á svefnlengd, svefntruflunum, andlegri líðan og lífsgæðum Íslendinga. Efniviður og aðferðir: Þátttakendur voru á aldrinum 18-70 ára og notast var við lagskipt slembiúrtak. Fjöldi þátttakenda var 1225 að vetri og 938 að sumri. Hlutfall kvenna var 59,1% að vetri og 59,4% að sumri. Mælitæki voru sjálfsmatskvaðinn Basic Nordic Sleep Questionnaire sem metur eðli og alvarleika svefntruflana, andleg líðan var metin með Depression Anxiety Stress Scales sem metur þunglyndi, kvíða og streitu og HL-prófið var notað til að meta heilsutengd lífsgæði. Svefnlengd og svefnvenjur voru metnar með spurningum um hátta- og fótaferðartíma á virkum dögum jafnt sem frídögum. Niðurstöður: Svefntruflanir og andleg líðan var marktækt verri að vetri en sumri. Þátttakendur áttu erfiðara með að sofna, að sofa í einum dúr og svefninn var minna endurnærandi yfir vetrartímann. Konur vöknuðu oft- ar upp, svefn þeirra var minna endurnærandi og kvíði og streita þeirra var meiri að vetri samanborið við karla. Ekki var árstíðamunur á svefnlengd eða lífsgæðum. Tengsl milli svefntruflana, andlegrar líðan og lífsgæða sýndu að því meiri sem svefntruflanir voru, því verri var andleg líðan og lífsgæði fólks. Ályktanir: Svefntruflanir eru meiri að vetri en að sumri og algengari hjá konum. Vanlíðan fólks, þunglyndi, kvíði og streita, var mest ef svefn var ekki endurnærandi. V 53 Að greinast með Alzheimerssjúkdóm: Áhrif á líðan og lífsgæði Arndís Valgarðsdóttir1, Daníel Ólason1, Erla S. Grétarsdóttir2, Kristín Hannesdóttir3, Jón Snædal4 1Sálfræðideild, heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands, 2geðsviði Landspítala, 3AstraZeneca, 4Landakoti, Landspítala arndis@undraland.com Inngangur: Skert innsæi er algengt hjá Alzheimerssjúklingum og getur valdið því að sjúklingar gera sér illa grein fyrir sjúkdómnum og ofmeti eigin getu. Í rannsóknum á Alzheimerssjúkdómnum hefur því tíðkast að afla upplýsinga frá aðstandendum og fagfólki en upplýsingar frá sjúk- lingunum sjálfum að mestu skort. Rannsóknir á lífsgæðum, þunglyndi, verkjum og getu til athafna meðal Alzheimerssjúklinga hafa leitt í ljós
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.