Læknablaðið : fylgirit - 03.01.2017, Qupperneq 78
X V I I I V Í S I N D A R Á Ð S T E F N A H Í
F Y L G I R I T 9 1
78 LÆKNAblaðið/Fylgirit 91 2017/103
töluvert ósamræmi í svörum sjúklinga og aðstandenda. Til að hægt sé
að bæta þjónustu og meðferð þarf að öðlast skilning á áhrifum þess að
greinast með sjúkdóminn á líðan og lífsgæði fólks. Þegar tekist er á við
veikindi og aðra erfiðleika getur lífsafstaða og bjargráðastíll skipt miklu
máli. Markmið rannsóknarinnar er að kanna á heildstæðan hátt upplifun
fólks sem nýlega hefur fengið greiningu á Alzheimerssjúkdómi og meta
þær afleiðingar sem sjúkdómurinn hefur haft á líðan og lífsgæði þeirra.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin er megindleg. Sjúklingar svöruðu
spurningalistum um líðan og lífsgæði sín og aðstandendur svöruðu list-
um um sömu þætti hjá þeim.
Niðurstöður: Niðurstöður fyrir 50 þátttakendur benda til að skertu innsæi
fylgi þunglyndi og minni lífsgæði sjúklinga og meiri streita hjá aðstand-
endum. Sjúklingar mátu líðan sína betri og lífsgæði og verklega færni
meiri en aðstandendur. Forðandi bjargráðastíll, kvíði og þunglyndi höfðu
neikvæða fylgni við bjartsýni.
Ályktanir: Skert innsæi virðist hafa slæm áhrif á andlega líðan og lífs-
gæði Alzheimerssjúklinga. Lítið samræmi var í svörum hópanna og að-
standendur telja sjúklingana verr stadda en þeir gera sjálfir. Svartsýnir
sjúklingar aðhyllast frekar forðandi bjargráðastíl og eru þunglyndari og
kvíðnari en þeir sem eru bjartsýnir.
V 54 Samspil félagslegs stuðnings, áfallastreitu og notkunar
ávanabindandi efna meðal einstaklinga sem hafa fengið áfall
Anna M. Hrólfsdóttir1, Edda B. Þórðardóttir2, Bryndís B. Ásgeirsdóttir3
1Landspítala, 2Miðstöð í lýðheilsuvísindum, læknadeild Háskóla Íslands, 3sálfræðideild
Háskólans í Reykjavík
anna.margrethrolfs@gmail.com
Inngangur: Það er vel þekkt að einstaklingar með áfallastreituröskun
(ÁSR) leiti í ávanabindandi efni, líkt og áfengi eða sígarettur, til þess að
vinna bug á einkennum sínum. Það er hins vegar lítið vitað um hvaða áhrif
félagslegur stuðningur hefur á þetta samband. Markmið rannsóknarinn-
ar var að kanna samspilið á milli félagslegs stuðnings, ÁSR-einkenna og
notkunar ávanabindandi efna meðal einstaklinga sem höfðu sögu um áfall.
Efniviður og aðferðir: Spurningalistar voru póstsendir í janúar 2011 til
643 einstaklinga frá Breiðdalsvík, Flateyri, Súðavík og Raufarhöfn. Spurt
var um bakgrunn, félagslegan stuðning og einkenni áfallastreitu en þau
voru metin með The Posttraumatic Diagnostic Scale. Gagnaöflun stóð yfir
frá janúar til lok júní 2011og samanstóð úrtakið af 490 einstaklingum, 247
konur og 241 körlum á aldrinum 18 til 90 ára (meðalaldur var 43 ár). Við
greiningu gagnanna var notast við tvíþátta lógistíska aðhvarfsgreiningu.
Niðurstöður: Í ljós kom að einstaklingar sem fundu fyrir félagslegum
stuðningi í kjölfar áfalls voru ólíklegri til þess að mæta greiningu á ein-
kennum ÁSR samanborið við þá sem engan stuðning fengu. Þar að auki
voru ÁSR-einkenni forspárþáttur fyrir daglegum reykingum ásamt því að
hafa farið í meðferð vegna vímuefnavanda. Hins vegar fannst ekkert sam-
band milli félagslegs stuðnings við daglegar reykingar né áfengisnotkun.
Ályktanir: Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að félagslegur
stuðningur í kjölfar áfalls sé sérstaklega mikilvægur til þess að minnka
líkur á þróun ÁSR. Þar að auki getur ÁSR aukið líkur á að einstaklingar
leiti í ávanabindandi efni í kjölfar áfalls.
V 55 Áhrif þreytu á lífaflfræði hnés og búks í gabbhreyfingu hjá
stúlkum og drengjum
Hjálmar J. Sigurðsson1,2, Kristín Briem2, Þórarinn Sveinsson2
1Rannsóknarstofu í hreyfivísindum, 2Námsbraut í sjúkraþjálfun, Háskóli Íslands
thorasve@hi.is
Inngangur: Kvenkyns íþróttamenn eru mun líklegri til að slíta fremra
krossband en karlar og þreyta eykur líkur á sliti. Markmið þessarar
rannsóknar er að meta áhrif þreytu á hreyfingar hnés og búks í breið-
skurðarsniði í gabbhreyfingu hjá börnum fyrir kynþroska.
Efniviður og aðferðir: Alls voru 128 einstaklingar (76 stúlkur og 52
drengir) fengnir til þátttöku hjá íþróttaliðum á Reykjavíkursvæðinu. Eftir
upphitun gerðu þau gabbhreyfingu, þar sem stigið var á kraftplötu á með-
an 8 myndavélar voru notaðar til að taka upp hreyfingar í þrívídd. Eftir
að þátttakendur voru þreyttir á skautabretti voru mælingar endurteknar.
Fyrri helmingurinn af standfasanum er skoðaður.
Niðurstöður: Hámarks láréttur gagnkraftur hækkaði við þreytu (7,71 N/
kg og 8,18 N/kg; p<0,001). Við upphaf standfasa voru hnén í meiri frá-
færslu þegar þátttakendur voru þreyttir (0,1° og 1,0°; p=0,019) og einnig
var hún meiri hægra megin (1,0° og 0,1; p=0,008). Hreyfing í hné jókst
meira hægra megin við þreytu (p=0,018) og áhrifin af þreytu voru meiri
hjá stúlkum (p=0,025). Hámarks fráfærsla jókst einnig meira hægra megin
í þreytu (p=0,011). Hliðarsveigja á búk að stöðufæti var meiri vinstra
megin en hægra megin (10,1° m.v. 8,7°; p<0,001). Við upphaf standfasa var
hallinn á búk meiri eftir þreytu (2,1°og 3,0°; p=0,049). Hreyfing á búk í átt
að stöðufæti minkaði við þreytu (8,9° og 9,9°; p=0,006).
Ályktanir: Þreyta hefur áhrif á hreyfimunstur hjá ókynþroska einstakling-
um og eykur álag á hnéliðinn í gabbhreyfingu. Þetta bendir til þess að
það sé best að byrja forvarnaræfingar gegn krossbandaslitum um og fyrir
unglingsárin.
V 56 The effects of omega-3 PUFA on human natural
killer cells in vitro
Andrea Jóhannsdóttir1,2,3, Ingunn H. Bjarkadóttir1,2,3, Jóna Freysdóttir1,2,5, Ingibjörg
Harðardóttir4
1Department of Immunology and 2Centre for Rheumatology Research, Landspitali, 3Faculty
of Pharmaceutical Sciences, 4Biochemistry and Molecular Biology and 5Department of
Immunology, Faculty of Medicine, Biomedical Center
ih@hi.is
Introduction: Dietary omega-3 polyunsaturated fatty acids (PUFA) en-
hance resolution of inflammation and induce an early increase in natural
killer (NK) cell numbers. As depletion of NK cells hampers resolution
onset we hypothesize that NK cells may be involved in the effects of
omega-3 PUFA on resolution of inflammation. The aim of this study was
to determine the effects of the omega-3 PUFA eicosapentaenoic acid (EPA)
and docosahexaenoic acid (DHA) on human NK cell activity in vitro.
Materials and methods: Human NK cells were incubated with/wit-
hout EPA or DHA prior to their stimulation with IL-12 and IL-15. Ex-
pression of surface receptors was determined by flow cytometry and
cytokine concentration in the supernatants was measured by ELISA.
Results: EPA and/or DHA increased NK cell expression of the chemokine
receptor CCR7 and the homing receptor CD62L and decreased NK cell
secretion of the pro-inflammatory cytokines TNF-α, IL-13 and GM-
-CSF compared with that by NK cells cultured without fatty acids.
Conclusions: The omega-3 PUFA-induced increase in NK cell expression
of CCR7 and CD62L may make the NK cells better able to travel to lymph
nodes where they may have indirect effects on the inflammatory process
through Th1 cells. Furthermore, as neutrophil apoptosis and removal