Læknablaðið : fylgirit - 03.01.2017, Síða 92
X V I I I V Í S I N D A R Á Ð S T E F N A H Í
F Y L G I R I T 9 1
92 LÆKNAblaðið/Fylgirit 91 2017/103
V 102 Fylgikvillar skurðaðgerða vegna krabbameins í ristli og
endaþarmi
Birgir Örn Ólafsson1, Tryggvi Björn Stefánsson2, Ásta Steinunn Thoroddsen3
1Hjúkrunarfræðideild, 2skurðlækningadeild, 3gæða- og sýkingavarnadeild Landspítala
birgirol@landspitali.is
Inngangur: Krabbamein í ristli og endaþarmi er þriðja algengasta krabba-
meinið á Íslandi hjá báðum kynjum. Skurðaðgerð er mikilvægasta með-
ferðin og sú eina sem getur læknað sjúkdóminn. Tíðni fylgikvilla vegna
aðgerða á krabbameini í ristli og endaþarmi á Íslandi er ekki þekkt. Mark-
mið þessarar rannsóknar var að finna tíðni fylgikvilla eftir aðgerðir á
krabbameini í ristli og endaþarmi.
Efniviður og aðferðir: Þátttakendur í rannsókninni voru 70 sjúklingar
sem fóru í aðgerð vegna krabbameins í ristli og endaþarmi á Skurðlækn-
ingadeild Landspítala frá 15. mars 2015 til 15. september sama ár. Gerð var
framskyggn, lýsandi rannsókn á skammtíma fylgikvillum (innan 30 daga
frá aðgerð) samkvæmt flokkun Clavien-Dindo. Upplýsingum var safnað
með viðtölum við þátttakendur og úr sjúkraskrám.
Niðurstöður: Fylgikvillar voru skráðir hjá 59% (41/70) sjúklinganna.
Dánartíðni var 2,9%. Samtengingarrof var hjá 14,7% (10 /68). Þá fengu
44,3% (31/70) sýkingar. Djúpar sýkingar urðu hjá 18,6% og sárasýkingar
hjá 14,3%. Sýkingu í blóð fengu 8,6%. Þvagfærasýking varð hjá 24,5% og
8,6% útskrifuðust með þvaglegg vegna þvagteppu. Viðvarandi þarma-
lömun (í meira en þrjá daga) var hjá 20%.
Ályktanir: Tíðni fylgikvilla er hár miðað við tíðni fylgikvilla í sömu að-
gerðum í nágrannalöndum. Þessi niðurstaða undirstrikar nauðsyn þess
að hafa framskyggna skráningu á fylgikvillum aðgerða.
V 103 Kidney transplantation in Iceland: determinants of graft
function at one year
Þórður P. Pálsson1, Margrét Andrésdóttir2, Eiríkur Jónsson2, Jóhann Jónsson2, Ólafur
S. Indriðason2, Runólfur Pálsson1,2
1University of Iceland, 2Landspitali - The National University Hospital of Iceland
doddipalli@gmail.com
Background: Significant improvements in renal allograft survival have
been observed in recent years. We examined allograft function at 1 year
in Icelandic patients undergoing kidney transplantation over the past 15
years.
Methods: This retrospective study included all Icelandic kidney trans-
plant recipients from 2000 to 2014. Glomerular filtration rate (eGFR) was
estimated using serum creatinine-based equations at 7-12 months post-
-transplant. Univariable and multivariable linear regression was used to
assess relationship between recipient eGFR and other variables, including
recipient age and sex and donor age, sex, body mass index, eGFR before
nephrectomy and eGFR at steady state following donation, cold ischemia
time, delayed graft function and HLA compatibility.
Results: A total of 149 kidney transplants were carried out in 146 patients
during the study period, 97 (65%) of which were from living donors (LD)
and 52 (35%) from deceased donors (DD); 21 were re-transplants. Median
(range) age at transpantation was 43.5 (3-76) years. Five grafts (3.4%) were
lost during the first year. For the remaining grafts, the median (range)
eGFR 7-12 months post-transplant was 62 (15-115) and 60 (15-116) ml/
min/1.73 m2 in case of LD grafts and DD grafts, respectively (p=0.25). We
observed an independent relationship between recipient eGFR and donor
age (ß=-0.53; p<0.001), recipient age (ß=-0.23; p<0.001), delayed graft funct-
ion (ß=-16.7; p=0.003), and postdonation eGFR of LD (ß=0.44; p=0.007).
Conclusions: Our findings suggest that in addition to traditional risk fact-
ors for reduced graft function, postdonation eGFR of LD may associate
with graft function in the first post-transplant year.
V 104 Áhættumat á bráðu kransæðaheilkenni
Erla Þórisdóttir1, Karl Andersen2
Læknadeild Háskóla Íslands, 2hjartadeild Landspítala
eth107@hi.is
Inngangur: Tilgangur þessarar rannsóknar var að meta hvort áhættu-
stigun með GRACE-skori komi að gagni við að spá fyrir um dauðsföll og
endurtekin hjartaáföll hjá íslenskum sjúklingum sem greinast með brátt
kransæðaheilkenni.
Efni og aðferðir: Rannsóknin tók til allra þeirra sem lögðust inn á
Landspítalann með brátt kransæðaheilkenni frá 1. janúar 2013 til 31. des-
ember 2013. GRACE-skor og áhættumat fyrir 30 daga lifun, eins árs lifun
og eins árs lifun án hjartaáfalla var reiknað út fyrir alla þátttakendur. Af-
drif sjúklinga með tilliti til endurtekinna hjartaáfalla og dauða voru að
lokum könnuð. Útreiknað GRACE-áhættumat og raunveruleg áhætta
þýðisins voru borin saman og ROC-kúrfur teiknaðar til að meta næmni
og sértækni áhættumatsins.
Niðurstöður: Þátttakendur voru 666, 189 konur og 477 karlar. 30 daga lif-
un þýðisins var 94,7%, eins árs lifun 89,8% og eins árs lifun án hjartaáfalla
78,5%. Þegar útreiknað GRACE-áhættumat var borið saman við hlutfall
raunverulegra dauðsfalla og endurtekinna hjartaáfalla lentu raunveru-
legu gildin í flestum tilfellum innan marka. Þegar næmni og sértækni
GRACE-áhættureiknisins var athuguð var AUC=0.915 (0.878-0.952) fyrir
30 daga lifunarmat, AUC=0,892 (0.861-0.923) fyrir eins árs lifunarmat og
AUC=0,708 (0.655-0.761) fyrir eins árs lifunarmat án hjartaáfalla.
Ályktanir: Niðurstöður gefa til kynna að áhættumat GRACE-skorsins
sé almennt gott á íslensku þýði. Áhættureiknirinn reyndist sannspár um
áhættumat á horfum sjúklinga með tilliti til dauða innan 30 daga og eins
ár. Hins vegar vanmetur áhættureiknirinn að hluta áhættu á dauða eða
endurteknu hjartaáfalli innan eins árs.
V105 Kidney transplantation in Iceland: patient and allograft survival
Þórður P. Pálsson1, Margrét Andrésdóttir2, Eiríkur Jónsson2, Ólafur S. Indriðason2,
Runólfur Pálsson1,2, Jóhann Jónsson3
1University of Iceland, 2Landspitali - The National University Hospital of Iceland
doddipalli@gmail.com
Background: In Iceland, a small number of kidney transplants from liv-
ing donors (LD) are performed locally, while deceased donor (DD) trans-
plants are carried out in collaborating institutions in Scandinavia. In this
study, we evaluated the outcome of kidney transplantation in Icelandic
patients.
Methods: This retrospective study included all Icelandic kidney trans-
plant recipients from 2000 to 2014. We used data from Scandiatransplant
and the University Hospital in Reykjavik. Patient and allograft survival
were estimated using the Kaplan-Meier method and the log-rank test
employed for group comparisons.
Results: A total of 149 kidney transplants were performed in 146 patients
during the study period, of which 97 were LD (65%) and 52 DD (35%)
grafts. The median (range) recipient age was 44 (3-76) years and 58%
were males. During a median follow-up of 5.7 (0.2-14.6) years, 11 patients
(7.5%) died, 10 had of whom had a functioning graft. Eleven patients ex-
perienced graft loss. One-year patient survival was 98.6% (CI, 96.7-1.00),
5-year survival 94.7% (CI, 90.5-99.0) and 10-year survival 90.6% (CI, 84.0-