Íslensk bókatíðindi - 01.12.1993, Blaðsíða 48
Þýdd skáldverk
219 blaðsíður.
Frjáls fjölmiðlun hf.
- Úrvalsbækur.
ISBN 9979-840-05-6
Verð: 895 kr.
(’ jaSjmuuan .
Erik Ncrlöe
Koma tímar
koma ráð
KOMA TÍMAR KOMA RÁÐ
Erik Nerlöe
Þýðing: Edda Ársælsdóttir
Það er mikið áfall þegar ný-
fæddi ríkisarfinn í litla eyði-
merkurríkinu er stúlka.
Þessu er haldið leyndu og
stúlkan er alin upp sem
drengur. En þegar Anna hef-
ur vaxið úr grasi, er ekki
lengur hægt að leyna sann-
leikanum, og vandamálin
verða nánast óyfirstíganleg
þegar Anna verður hrifin af
ungum manni...
176 blaðsíður.
Skuggsjá.
ISBN 9979-829-11-7
Verð: 1.984 kr.
LEIGUMORÐINGINN
Jack Higgins
Þýðing: Gissur Ó.
Erlingsson
í þessari nýjustu spennubók
Jack Higgins segir frá leigu-
morðingja sem er útsendari
Saddams Hussein. Hann er
sérfræðingur í að dulbúast
og með skammbyssuna í
skotstöðu er hann ósigrandi.
Lesandinn skynjar persónur
sem ýmist fylla hann andúð
eða hrifningu. Higgins er
sannkallaður meistari
spennusagna.
219 blaðsíður.
Hörpuútgáfan.
ISBN 9979-50-032-8
Verð: 1.990 kr.
LESIÐ í SNJÓINN
Peter Höeg
Þýðing: Eygló
Guðmundsdóttir
Smilla Jaspersen er 37 ára,
hálfgrænlensk og hálfdönsk.
í henni togast á tvenns konar
gerólík menning, hin vest-
ræna sem byggist á kúgun
manna, dýra og náttúruafla
og hin þrautseiga, auðmjúka
menning inúíta. Hæfileiki
hennar til að lesa í snjóinn
leiðir hana út í leit að lausn
gátunnar um dauða 6 ára
grænlensks vinar síns, Esa-
jasar. Bókin er full af fræði-
legri þekkingu og heimspeki-
legu innsæi. Heillandi og ein-
staklega spennandi skáld-
saga. Frásagnarlist í sér-
flokki.
Bókin kom út í Danmörku
á síðasta ári og hlaut ótrúlegt
lof gagnrýnenda sem töldu
höfundinn besta danska höf-
und sem fram hefur komið á
þessari öld. Bókin hefur selst
í metupplagi og útgefendur
um víða veröld slást um út-
gáfuréttinn. Kvikmyndun
sögunnar er þegar í undir-
búningi.
430 blaðsíður.
ísafold.
ISBN 9979-809-54-X
Verð: 2.980 kr.
LEYNDARMÁL
HERTOGANS
Charlotte M. Braeme
Herbert hertogi af Castlemay
var látinn og sonur hans
Bertrand hafði tekið við
erfðagóssinu. Áhyggjur móð-
ur Bertrands voru miklar þar
sem hann virtist ekki hafa
minnstu löngun til að kvæn-
ast. Og árin liðu og Bertrand
kvæntist ekki en það átti sín-
ar orsakir. Hann átti sér
leyndarmál sem hafði þjakað
hann og kvalið í tíu löng ár.
En nú var hann ákveðinn í að
komast til botns í máli þessu
með aðstoð góðra manna.
Og loksins finnur hann þá
konu sem hann hefur þráð
alla ævi. Þetta er spennandi
og viðburðarík saga um ástir
og örlög.
184 blaðsíður.
Sögusafn heimilanna.
ISBN 9979-9051-7-4
Verð: 1.890 kr.
OÐALSINS
LEYNDARMÁL ÓÐALSINS
Victoria Holt
Victoria Holt sem hefur verið
kölluð drottning ástarsagn-
anna bregst ekki aðdáend-
um sínum frekar en fyrri dag-
inn í þessari spennandi og
rómantísku sögu þar sem at-
burðarásin heldur lesandan-
um föngnum frá upphafi til
enda. Ung stúlka þráir að
höndla hamingjuna með
manninum sem hún elskar
en áður en það getur orðið
verður hún að finna svar við
gátunni sem skyggir á annað
ílífi hennar, upplýsa leyndar-
málið sem falið var í húsinu
er hún kennir við krákurnar
sjö.
250 blaðsíður.
Vaka-Helgafell.
ISBN 9979-2-0175-4
Verð: 1.990 kr.
LÍTILL HEIMUR
David Lodge
48