Íslensk bókatíðindi - 01.12.1993, Blaðsíða 86
Ævisögur og endurminningar
sín í aflraunum. Hann setti
íslandsmet, Norðurlanda-
met, Evrópumet og heims-
met.
í bókinni er fjöldi mynda.
Yfir 100 blaðsíður.
ísland og umheimurinn.
ISBN 9979-9076-1-4
Verð: 3.590 kr.
ELDHRESS í HEILA ÖLD
Eiríkur Kristófersson skip-
herra segir frá ævintýrum
og atburðum, þessa
heims og annars
Gylfi Gröndal
Gylfi Gröndal hefur kynnst
mörgum góðum sögumönn-
um, en telur Eirík skipherra í
hópi þeirra bestu, enda er
hann gæddur afburða góðri
frásagnargáfu. Eiríkur er
orðinn 101 árs en hress í
bragði. Hann varð þjóðhetja í
þorskastríðinu fyrsta vegna
vasklegrar framgöngu í
viðureign við breska sjóher-
inn og segir hér f rá atburðum
þessa heims og annars því
lífssigling hans er ævintýri
líkust. Þetta er viðtalsbók
eins og þær gerast bestar.
232 blaðsíður.
Forlagið.
ISBN 9979-53-220-3
Verð: 2.980 kr.
ELDRAUNIN
Sönn saga konu sem var
dæmd saklaus til dauða í
Malasíu
Eldraunin
Béatrice
Béatrice Saubin
Þýðing: Guðrún
Finnbogadóttir
Ævintýraþráin leiddi hana á
vit Austurlanda. En ævintýrið
snerist brátt í harmleik. Án
vitundar sinnar var hún not-
uð af eiturlyfjasölum til að
bera heróín milli landa og í
tíu ár sat hún saklaus í fang-
elsi í Malasíu. Hispurslaus
frásögn, þar sem ekkert er
dregið undan. Ógleymanleg
og sönn saga, sem vakið
hefur heimsathygli, saga af
hetjulegri baráttu ungrar
konu fyrir frelsi sínu.
243 blaðsíður.
Forlagið.
ISBN 9979-53-216-5
Verð: 2.680 kr.
NóbdsskáJdiö-—
HALLDÓR '"
LAXNESS
Vaka-Hclgafcll
GRIKKLANDSÁRIÐ
Halldór Laxness
í Grikklandsárinu sem fyrst
kom út árið 1980 segir Hall-
dór Laxness frá „yndisleg-
asta ári lífsins, nítjánda ár-
inu“, eins og segir á einum
stað í sögunni. Höfundur
birtir okkur nokkur augnablik
úr lífi sínu á þessu ári og er
opinskárri en oft áður, ekki
síst þegar hann segir frá
unglingnum sem vaknar til
vitundar um samskipti kynj-
anna. Minningasögur Hall-
dórs Laxness eru góðar bók-
menntir sem sóma sér vel
meðal þess besta sem hann
hefur skrifað.
256 blaðsfður.
Vaka-Helgafell.
ISBN 9979-2-0007-3
Verð: 3.295 kr.
Nóbclsskáldirt-—
HALLDÓR '
LAXNESS
ÍTÚNINU HEIMA
Halldór Laxness
/ túninu heima er minninga-
saga Halldórs Laxness um
bernskuárin. Bókin kom fyrst
út árið 1975. Túnið er í Lax-
nesi í Mosfellsdal sem er
honum ímynd liðins tíma.
Skáldið lýsir fyrstu tólf til
þrettán mótunarárum sínum
svo að þau standa Ijóslifandi
fyrir hugskotssjónum les-
andans. Hér er ekki einungis
um að ræða persónusögu
Halldórs, menningarsögu og
aldarspegil, heldur eru þess-
ar angurværu frásagnir bók-
menntir í hæsta gæðaflokki.
249 blaðsíður.
Vaka-Helgafell.
ISBN 9979-2-0004-9
Verð: 3.295 kr.
í VIÐJUM VÍMU
OG VÆNDIS
Hafdís Pétursdóttir
Hér er sagt frá ótrúlegri lífs-
reynslu ungrar íslenskrar
konu, Matthildar Jónsdóttur
Campell. Tuttugu og eins árs
yfirgaf hún ísland og ætlaði
að höndla hamingjuna með
manninum sem hún elskaði.
En örlögin urðu önnur. Hún
leiddist út í eiturlyfjaneyslu
og vændi. Hún hefur gengið í
gegnum vítisloga í mörg ár
og meðal annars vaknað í
líkhúsi þar sem hún hafði
verið úrskurðuð látin.
Hún var tilbúin að gera allt
fyrir heróínið. Af óskýranleg-
um ástæðum tók hún sjálf þá
ákvörðun einn daginn að
reyna að hætta. Það var ekki
auðvelt og hún segir frá öll-
um martröðunum sem hún
gekk í gegn um og fær jafn-
vel enn í dag. Henni tókst
smátt og smátt að vinna sig
út úr brjálæðinu. Nú starfar
Matthildur í undirheimum
Chicago-borgar og aðstoðar
þá sem eru djúpt sokknir í
eiturlyf.
220 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
ISBN 9979-57-179-9
Verð: 2.995 kr.
JÁRNKARLINN
Matthías Bjarnason
ræðir líf sitt og viðhorf
Örnólfur Árnason
Matthías Bjarnason er harð-
86