Íslensk bókatíðindi - 01.12.1993, Blaðsíða 80

Íslensk bókatíðindi - 01.12.1993, Blaðsíða 80
Bœkur almenns efnis STORMUR Á SKERI Sverrir Stormsker Það eru engin smáræði sem ganga hér á. Meistari kald- hæðninnar hefur tekið sér fyrir hendur að auðga og út- víkka íslenskt tungumál um hvorki meira né minna en 1240 málshætti og orðhengl- ur. Hugmyndaflugið og skrýtileikinn ríður ekki við einteyming og oft skorar hann mark svo lesandinn veltist um af hlátri. Sumt er að vísu óbirtandi og móðg- andi fyrir siðprútt sómafólk. Sigurður Valur myndskreytir bókina og hefur sannarlega lifað sig inn í hugmyndaheim Stormskers. Einstök og glæsileg bók sem allir vilja eiga en enginn tímir að kaupa. 192 blaðsíður. Fjölvi. ISBN 9979-58-245-6 Verð: 2.250 kr. STRANDARKIRKJA Helgistaður við haf Jón Hnefill Aðalsteinsson Strandarkirkja er ein sér- stæðasta kirkja íslands fyrir þá sök að fólk hefur lengi haft þá trú að hún sé góð til áheita. í bókinni Strandar- kirkja er rakin saga staðar og kirkju á Strönd, fjallað um uppruna helgisögunnar og um uppruna þeirrar sérstöku helgi sem kirkjan hefur notið. í bókinni er samankominn mikill fróðleikur um kirkju STRANDAR KIRKJA hAskóu Islanos • hAskóiaútgAfan sem skapar sérstakt rúm í hugum fjölda íslendinga. Bókin er prýdd fjölda mynda. 106 blaðsíður. Háskólaútgáfan. ISBN 9979-54-051-6 Verð: 1.760 kr. STRÁKARNIR OKKAR Sigmundur Ó Steinarsson Strákarnir okkar eftir Sig- mund Ó. Steinarsson blaða- mann fjallar um íslenskan handknattleik. Saga þessar- ar „þjóðaríþróttar" er rakin ít- arlega, greint er frá íslands- mótum frá upphafi, lands- leikir og þátttaka í stórmótum er tíunduð, sagt er frá fram- úrskarandi leikmönnum og eftirminnilegum atvikum. Bókin er mikið myndskreytt. 176 blaðsíður. Fróði h.f. ISBN 9979-802-64-2 Verð: 1.980 kr. 3 *»TÁKNMÁL«* TRÚARINNAR KAIU. SIGUIUtJÖRNSSON TÁKNMÁL TRÚARINNAR Sr. Karl Sigurbjörnsson Leiðsögn um tákn og mynd- mál kristinnar trúar og til- beiðslu. Tákn mæta okkur hvar sem er. Þau blasa við aug- um og kalla eftir athygli okk- ar, bera boðskap, leiðbeina, áminna, upplýsa. Ein mynd, eitt tákn ber boð og segir meira en mörg orð. Tákn er líka eitthvað sem við höfum um hönd, beitum til að gæða orð okkar lífi og áherslu, það er atferli sem við beitum þar sem orða er vant, eða engra orða er þörf. Oft er hið ó- sagða, hið orðlausa mál blæbrigðaríkara og skýrara en ótal orð. Þessari bók er ætlað að vera handbók og leiðarlýsing. Hún er kærkom- in hjálp til að auka næmi og innsýn í leyndardóma fagn- aðarerindisins um Jesú Krist, sem er ímynd hins ó- sýnilega guðs. Hún vill hjálpa okkur að verða læs á þann boðskap sem fluttur er í helgihaldi og listum kirkj- unnar að fornu og nýju. 168 blaðsíður. Skálholtsútgáfan. ISBN 9979-826-12-6 Verð: 2.890 kr. wmmammmmmmmamammmKm THE ICELANDIC COOKBOOK Athyglisverð, alíslensk mat- reiðslu- og landkynningar- bók. Nýstárlegir fisk- og kjöt- réttir auk vandaðra lands- lags- og þjóðlífsmynda prýða hverja opnu. Einnig er að finna gamla heimilismatinn og ýmsan fróðleik. Mat- reiðslumeistari er Garðar Agnarsson. Ljósmyndir eru eftir Ragnar Axelsson, Odd Sigurðsson og Pál Imsland. Bókin kemur út á ensku og þýsku. 144 blaðsíður. Bókaforlagið Njála. ISBN 9979-9081-0-6 Verð: 3.300 kr. THEICELANDIC HOMILY BOOK PH.KO. 15 4* IN THH KUYAL LIIIKAKY. YTOCKIIOLM THE ICELANDIC HOMILY BOOK Útgefandi: dr. Andrea de Leeuw van Weenen íslenska hómilíubókin var rit- uð nálægt aldamótunum 1200 og geymir safn prédik- ana á tæru máli. Hún er eitt elsta handrit sem varðveist hefur heillegt frá frumskeiði íslenskrar ritaldar og er nú geymd í Konungsbókhlöð- 80
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Íslensk bókatíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslensk bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1846

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.