Íslensk bókatíðindi - 01.12.1993, Síða 88
Ævisögur og endurminningar
Mrrppwiuagalinokkinn varð að manni..!
Lœkur tifar létt
V K />)%
arfirðinum en þegar hann var
á unga aldri dó faðirinn frá
stórri fjölskyldu og varð að
dreifa börnunum. En Sigurð-
ur lenti í góðu fóstri í Dufans-
dal. Hann kemur víða við,
fyrst í Arnarfirði og Bíldudal.
Síðan liggur leiðin til náms
að Laugarvatni og Hvann-
syri. Sagt frá dvöl í Dan-
mörku undir hernámi Þjóð-
verja, frá uppbyggingu til-
raunastöðvarinnar á Reyk-
nólum og afskiptum af skóla-
málum og uppreisnarhreyf-
ingu í Framsóknarflokknum.
Alltaf er það gleðin og bjart-
sýnin sem einkennir líf Sig-
urðar og frá öllu er sagt í hýr-
um og glaðlegum tón með ó-
teljandi skemmtisögum og
vísum.
240 blaðsíður.
Fjölvi.
ISBN 9979-58-242-1
Verð: 2.980 kr.
mtmmmmwmmmmammmsmsasm
ÓBREYTT
VERÐÁ
JÓLA-
BÓKUM
Bókaútgefendur
MANGA MEÐ
SVARTA VANGA
Ómar Þ. Ragnarsson
Ómar Ragnarsson er þjóð-
kunnur fyrir viðtöl sín og
þætti um fólk sem ekki hefur
bundið bagga sína nákvæm-
lega sömu hnútum og sam-
ferðamennirnir og hann hef-
ur sýnt næman skilning á
högum þessa fólks og á með
því ríka og einlæga samúð.
Bókin er um Margréti Sigurð-
ardóttur frá Hvammi í Langa-
dal sem þekkt var undir nafn-
inu „Manga með svarta
vanga.“ Þegar Ómar var
drengur í sveit í Hvammi tók
Margrét loforð af honum um
að láta nafn hennar ekki
gleymast og Ómar er nú að
uppfylla það loforð. Frásögn
hans um þessa sérstæðu
konu sem flestir álitu skrýtna
er þannig að hún mun ekki
láta neinn ósnortinn og er
kannski gott dæmi um það
að fyrr á tímum völdu ein-
staklingarnir sér ekki hlut-
verk í lífinu, heldur var þeim
skipað í það.
224 blaðsíður.
Fróði h.f.
ISBN 9979-802-77-4
Verð: 2.980 kr.
MEÐAL GRÍMSEYINGA
Skin og skúrir
við nyrsta haf
Aðalheiður Karlsdóttir
frá Garði
Aðalheiður Karlsdóttir hefur
skrifað allmargar bækur.
Hún sendir nú frá sér bók þar
sem segir frá dvöl hennar
meðal Grímseyinga frá 1937
og fram undir miðja öldina.
Hún segir frá reynslu úr
sínu eigin lífi, frá samferða-
fólki og atburðum sem gerð-
ust í Grímsey bæði áður en
hún kom þangað og á með-
an hún dvaldist þar.
Efni bókarinnar er gott
framlag til sögu þessa lands,
þar sem sagt er frá li'fi al-
múgafólks sem bjó oft við
þröngar aðstæður en
þraukaði samt.
248 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
ISBN 9979-57-171-3
Verð: 2.995 kr.
NEW YORK NEW YORK
Ameríkuannáll Kristins
Jóns Guðmundssonar
Stefán Jón Hafstein
Kristinn Jón Guðmundsson
hélttil höfuðborgar heimsins,
New York, til að lenda í æv-
intýrum. Hann lýsti síðan
ferðum sínum í stuttum ann-
áli fyrir Stefáni Jóni Hafstein
og þá gat Stefán ekki setið
heima, heldur vitjaði sögu-
slóðanna og sótti heim þjóf-
ana, dópistana, næturdrottn-
ingarnar, snillingana, spá-
mennina, guðsbörnin og
geðsjúklingana, sem höfðu
orðið á vegi íslendingsins
grandvara og greiðvikna. Af-
raksturinn er þessi spenn-
andi og ótrúlega saga sem
er þó umfram allt sönn.
216 blaðsíður.
Mál og menning.
ISBN 9979-3-0527-4/-0576-2
Verð: 2.490 kr. kilja. 3.490
kr. ib.
PERLUR OG STEINAR
Árin með Jökli
Jóhanna Kristjónsdóttir
Rigningardag í lok ágúst árið
1957 giftist hin 17 ára Jó-
hanna Kristjónsdóttir Jökli
Jakobssyni, 24 ára sjarmer-
andi og umtöluðum rithöf-
undi. Framundan reyndist
vera 11 ára stormasamt
hjónaband þar sem skiptust
á sorgir og gleði, mögnuð
skáldverk og raunveruleiki,
stundum fagur, oft nöturleg-
ur. í Pertum og steinum leit-
ast Jóhanna við að gefa sem
sannasta mynd af árum sín-
um með Jökli og þeim per-
sónum sem þar koma við
sögu. Á þessum árum skrif-
88