Bókatíðindi - 01.12.2011, Page 230
228
Fræði og bækur almenns efnis B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 1
Þræðir valdsins
JóhannHauksson
Í þessari afhjúpandi bók
er rýnt í íslenskt samfélag
og sýnt hvernig viðskipti
og stjórnmál hafa verið
gegnsýrð af valda og hags
munatengslum, spilltum
embættisfærslum, póli
tískum stöðuveitingum og
„vel heppnuðum“ tilraunum
til þess að gera almannafé að
uppsprettu auðs hjá einkaað
ilum. Tekin eru sláandi dæmi
frá undanförnum árum en
þagnarhjúpur hefur verið um
sum þeirra.
198 bls.
Veröld
ISBN 9789979789963
Leiðb.verð: 3.990 kr.
Þúsund myndir…
milljón minningar
Þormóðursímonarson
Mótorhjól og gítar eru þrosk
andi ferðafélagar fyrir þann
sem eltir gamlan draum.
Höfundur fléttar hér lipurlega
saman gamansögur, náttúru
lýsingar og hugleiðingar
sínar um sumar af þyngri
spurningum lífsins. Myndir
úr ferðinni má sjá á slóðinni
www.1000myndir.info
96 bls.
Tvíoddi útgáfa
ISBN 9789979709398
Leiðb.verð: 1.999 kr. Kilja
ODDI EHF.
HIÐ ÍSLENZKA BÓKMENNTAFÉLAG
LÆRDÓMSRIT BÓKMENNTAFÉLAGSINS
Hins vegar skyldi maður setja sér fyrir sjónir „óvininn“
eins og maður öfundarhatursins hugsar sér hann – og
þar er einmitt verknaður hans, sköpun hans: hann hefur
hugsað upp „hinn illa óvin“, „hinn illa“, og raunar sem
grunnhugtak, en út frá því hugsar hann sér einnig annan
„góðan“ sem viðbragð og andstæðu – sjálfan sig!
Æskuverk
F
R
IE
D
R
Ic
H
N
IE
T
Z
Sc
H
E
A
F
SIF
jA
F
R
Æ
Ð
I SIÐ
F
E
R
Ð
ISIN
S
Karl Marx
978-9979-66-265-5
Lærdómsrit
Bókmenntafélagsins
Æskuverk
KarlMarx
Þýð.:OttóMásson
Hér birtast þrjár ritgerðir sem
Marx skrifaði hálfþrítugur.
Með fylgir ítarlegur inngang
ur þýðandans, Ottós Más
sonar, þar sem hann beinir
m.a. sjónum að hugmyndum
Marx um róttækt lýðræði. Sjá
hib.is
236 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
ISBN 9789979662969
Leiðb.verð: 3.490 kr.
Ætt og saga
Um frásagnarfræði Sturlungu
eða Íslendinga sögu hinnar
miklu
ÚlfarBragason
Sturlunga saga er samsteypa
veraldlegra samtíðarsagna
sem fjalla um sögulega at
burði hér á landi á 12. og 13.
öld. Sturlunga hefur einkum
verið notuð sem heimild
í sagnfræðirannsóknum. Í
þessari bók er hins vegar
lögð áhersla á tjáningarform
veraldlegra samtíðarsagna
og sögurnar og samsteypuna
í heild sem skoðanaskipti um
atburðina, sem fjallað er um,
án þess að tekin sé afstaða
til sanninda frásagnarinnar.
Þeirri skoðun er haldið fram
að nauðsynlegt sé að athuga
frásagnarfræði Sturlungu
áður en hún er notuð sem
söguleg heimild. Heimildar
gildi hennar liggur ekki síður
í hvernig hún er sögð en hvað
er sagt.
321 bls.
Háskólaútgáfan
ISBN 9789979548928
Leiðb.verð: 4.900 kr. Kilja
Ættfeður og spámenn
ellenG.White
Þýð.:BogiArnarFinnbogason
Í þessu sígilda verki er að
finna heildstæða og hrífandi
sögu úr frásögn Biblíunnar
um upphaf, fall og áform
Guðs um að endurskapa hina
glötuðu paradís. Hvaðan kom
mannkynið? Hver er orsök
alls ills? Ef Guð er góður og al
máttugur hvers vegna kemur
hann þá ekki í veg fyrir allt
það illa sem gerist í heim
inum? Hvað tekur við þegar
tilvist okkar lýkur á þessari
jörð? Tekist er á við áleitnar
spurningar sem þessar af
mikilli þekkingu og innsæi í
þessari einstöku bók.
557 bls.
Frækornið
ISBN 9789979873365
Leiðb.verð: 2.990 kr.