Bókatíðindi - 01.12.2018, Blaðsíða 22
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I EndurútgáfaB Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
E C
Vertu ósýnilegur
Flóttasaga Ishmaels
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Lesari: Kristín Helga Gunnarsdóttir
Einu sinni bjó Ishmael í litríkri ævintýraveröld en núna
er borgin hans vígvöllur. Þegar heimilið er rústir einar
neyðist hann til að leita skjóls þar sem friður ríkir. En
flóttaleiðin er lífshættuleg. Vertu ósýnilegur er spenn-
andi og átakanleg saga sem byggist á viðtölum, fréttum
og heimildum um örlög sýrlenskra flóttamanna. Frá-
sögn sem lætur engan ósnortinn.
239 bls. / H 6:05 klst.
Forlagið – Mál og menning
E I
Vetrarfrí
Hildur Knútsdóttir
Vetrarfrí og Vetrarhörkur eru meðal vinsælustu ung-
mennabóka sem íslenskur höfundur hefur sent frá
sér og hér kemur fyrri bókin út í kilju. Sagan hefst í
vetrarfríinu þegar systkinin Bergljót og Bragi fara með
pabba sínum í sumarbústað. En allt fer á versta veg
þegar furðuleg plága brýst út og enginn hugsar um neitt
annað en að bjarga lífi sínu. Hildur Knútsdóttir var til-
nefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir báðar
bækurnar og hlaut þau fyrir þá síðari.
264 bls.
Forlagið – JPV útgáfa
D F
Bækur duftsins
Villimærin fagra
Philip Pullman
Þýð.: Guðni Kolbeinsson
Villimærin fagra er fyrsta bókin í nýjum þríleik eftir
hinn afar vinsæla höfund Philip Pullman. Hér segir
frá Malcolm Polstead sem býr með foreldrum sínum á
gamalli krá ásamt fylgjunni sinni, henni Ástu. Saman
skemmta þau sér á bátnum sínum, Villimeynni fögru. En
dag einn kemst Malcolm að því að lítil stúlka sem heitir
Lýra dvelur í klaustri í nágrenninu, og þegar skelfilegt
flóð skellur yfir nokkru síðar bjargar hann lífi hennar,
grunlaus um þau æsilegu ævintýri sem bíða þeirra.
505 bls.
Forlagið – Mál og menning
E
Vítisvélar
Philip Reeve
Þýð.: Herdís M Hubner
Í fjarlægri framtið berjast borgir á hjólum hver um aðra
um lífsafkomu. Vítisvélar er margverðlaunuð bók eftir
enska rithöfundinn Philip Reeve, enda einhver magn-
aðasti fantasíuheimur sem skapaður hefur verið.
Peter Jackson, leikstjóri Hringadróttinssögu og
Hobbitanna, hefur gert kvikmynd eftir sögunni (Mortal
Engines) og fer Hera Hilmarsdóttir með aðalhlutverkið.
334 bls.
Bókafélagið
D
Ætíðarþjófurinn
Clive Barker
Þýð.: Jón Frosti Kárason
Í húsi þúsund óska verður allt, sem Harvey hefur látið
sig dreyma um, að veruleika. Líka martraðirnar hans ...
Ætíðarþjófurinn eftir Clive Barker er ein frægasta
fantasíubók síðari ára. Mögnuð og skemmtileg hroll-
vekja fyrir börn og unglinga á öllum aldri.
Bókin er skreytt frábærum teikningum höfundarins.
240 bls.
Ugla
D
Sjúklega súr saga
Sif Sigmarsdóttir
Myndir: Halldór Baldursson
Sjúklega súr saga segir Íslandssöguna á alveg nýjan
hátt. Í þessari meinfyndnu, fróðlegu og ríkulega mynd-
skreyttu bók fyrir ungt fólk á öllum aldri leika þau Sif
og Halldór á als oddi og svara knýjandi spurningum um
fortíð okkar. Hvort var betra að vera hálshöggvinn eða
brenndur á báli? Hvað í ósköpunum eiga Sturlungar
sameiginlegt með bavíönum? Geta sagnfræðingar
stundað tímaflakk? Og getur verið að ekki hafi allt verið
betra í gamla daga?
80 bls.
Forlagið – Mál og menning
E F
Skjaldbökur alla leiðina niður
John Green
Þýð.: Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir
Aza reynir. Hún reynir að vera góð dóttir, góður vinur,
góður námsmaður og kannski meira að segja góður
spæjari en það er erfitt þegar óboðnar hugsanirnar
þrengja sífellt að.
Þetta er nýjasta bók John Green, sem er einn vinsæl-
asti ungmennabókahöfundur samtímans og jafnframt
sú fyrsta sem hann sendir frá sér í sex ár!
308 bls.
Björt bókaútgáfa – Bókabeitan
D F
Stormsker
Fólkið sem fangaði vindinn
Birkir Blær
Þessi stórskemmtilega og hörkuspennandi saga hlaut
Íslensku barnabókaverðlaunin 2018. Ópus er bara
venjulegur strákur en einn daginn fær hann skilaboð
frá sjálfum vindinum. Ríkasti maður í heimi er sestur
að á eyjunni hans og farinn að reisa siglutré í þúsunda-
tali. Hann ætlar sér að beisla vindinn. Innan skamms
er framtíð plánetunnar í húfi og Ópus og Fífa vinkona
hans þurfa að taka til sinna ráða.
257 bls.
Forlagið – Vaka-Helgafell
D
Svartidauði
Kim M. Kimselius
Theo og Ramóna lenda í tímaflakki í Flórens árið
1348 þegar svartidauði geisaði og lagði nærri helming
íbúanna af velli.
216 bls.
Urður bókafélag
D C
Hljóðbók frá Storytel
Sölvasaga Daníelssonar
Arnar Már Arngrímsson
Sölvasaga unglings fékk Bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs 2016. En hvað varð svo um Sölva? Hann er á
góðri leið með að verða starfsmaður aldarinnar í Bónus.
Jafnaldrar hans raða saman flugferðum í heimsreisum.
Hann raðar saman orðum. En orðin láta ekki að stjórn.
Þetta er saga af útlaga í leit að bandamönnum, þjóð í
leit að betri tilboðum og tungumáli sem fæst á 100-kall
í Hertex.
Bókin fæst einnig sem hljóðbók. Lesari Árni
Beinteinn Árnason.
264 bls. / H
Sögur útgáfa
22
Ungmennabækur