Bókatíðindi - 01.12.2018, Blaðsíða 41
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
E F
Þrír dagar og eitt líf
Pierre Lemaitre
Þýð.: Friðrik Rafnsson
Ungur drengur verður vini sínum að bana fyrir slysni en
felur líkið og það finnst ekki. Meira en áratug síðar þarf
hann að snúa aftur á heimaslóðir og um hann læsist
hrollkaldur ótti við að upp um hann komist og ham-
ingjuríkt líf hans breytist í martröð. Spennusagnahöf-
undurinn Pierre Lemaitre hefur þrisvar hlotið glæpa-
sagnaverðlaunin Alþjóðlega rýtinginn fyrir verk sín.
264 bls.
Forlagið – JPV útgáfa
D
Þurrviðri
Peter Robinsson
Þýð.: Dagný Baldvinsdóttir
Þurrkasumarið mikla stendur lögreglufulltrúinn Banks
frammi fyrir skelfilegu verkefni. Thornfield lónið hafði
gufað upp í brakandi þurrkinum. Þá komu í ljós rústir
litla Yorkshireþorpsins, Hobb’s End, sem geymdi bein
ungrar konu sem augljóslega hafði verið myrt. Nú
þarf Banks að afhjúpa morðingja sem í hálfa öld hafði
komist upp með grimmilegt morð. Ljót leyndarmál
Hobb’s End koma fram í dagsljósið hvert af öðru þrátt
fyrir að fyrrum íbúar hafi flutt burt eða jafnvel kvatt
þennan heim.
425 bls.
Óðinsauga útgáfa
E F
Þú og ég og allt hitt
Catherine Isaac
Þýð.: Halla Sverrisdóttir
Fyrir tíu árum sleit Jessica sambandi við Adam og
hefur alið son þeirra upp ein. En móðir hennar sann-
færir hana um að drengurinn þurfi á föður að halda
og mæðginin fara til Frakklands, þar sem Adam rekur
hótel. Þar þarf Jessica að horfast í augu við fortíð og
framtíð og meta lífið upp á nýtt. Saga um ást og fjöl-
skyldubönd, harmleik, kvíða og von.
412 bls.
Forlagið – JPV útgáfa
E F
Þyrluránið
Jonas Bonnier
Þýð.: Eyrún Edda Hjörleifsdóttir
Stokkhólmur, 2009: Bíræfnir þjófar rændu þyrlu, lentu
henni á þaki peningageymslu, brutust inn og komust
undan með einn stærsta ránsfeng í sögu Svíþjóðar – og
lögreglan horfði á en gat ekkert gert ... Jonas Bonnier
tók ítarleg viðtöl við ræningjana og hefur unnið úr þeim
hörkuspennandi og vel fléttaða sögu.
453 bls.
Forlagið – JPV útgáfa
G
Þar sem áin streymir
Norman Maclean
Þýð.: Skúli Björn Gunnarsson
Áhrifamikil og einstök saga eftir einn af meisturum
smásögunnar. Vatnsföll mynda ramma um verkið og
höfundur beitir tungutaki fluguveiðimanna við að lýsa
lífinu. Ljóðræn og falleg frásögn sem hreyfir við les-
endum, ekki síst þeim sem hafa fengist við fluguveiðar.
163 bls.
Dimma
G
Þetta er Alla
Jon Fosse
Þýð.: Hjalti Rögnvaldsson
Signý hugsar til baka og sér sjálfa sig á yngri árum. Hún
var ástfangin af Alla, en hann fór á sjóinn og kom ekki
til baka. Stutt en stór saga um ástina og sambúðina við
sjóinn sem hefur valdið straumhvörfum í lífi fólks kyn-
slóð eftir kynslóð.
87 bls.
Dimma
E
Þetta var bróðir minn ...
Théo og Vincent van Gogh
Judith Perrignon
Þýð.: Rut Ingólfsdóttir
Théo lifði Vincent einungis sex mánuði. Lok sumars,
haust, byrjun vetrar …
Franski rithöfundurinn Judith Perrignon fékk að láni
rödd og minningar yngri bróðurins Théo til að skrifa
sögu sem bregður upp mögnuðum myndum úr örlaga-
ríku lífi hins heimsfræga listmálara, Vincent van Gogh,
og sambandi þeirra bræðra.
Listilega vel skrifuð bók.
160 bls.
Ugla
E F
Þitt annað líf hefst þegar þú
uppgötvar að þú átt bara eitt
Raphaëlle Giordano
Þýð.: Ólöf Pétursdóttir
Camille býr í París með manni og syni, fertugsafmælið
nálgast og henni leiðist. Allt hjakkar í sama fari ár eftir
ár. En þá birtist Claude, heillandi og uppátækjasamur,
og býðst til að hjálpa henni að umbylta lífi sínu. Hvert
skyldi það leiða hana? Gamansöm og óvenjuleg saga;
sannkölluð sjálfshjálparbók sem vísar veginn til lífs-
gleðinnar!
233 bls.
Forlagið – Vaka-Helgafell
E F
Þorsti
Jo Nesbø
Þýð.: Halla Kjartansdóttir
Kona finnst látin í íbúð sinni í Osló eftir Tinderstefnu-
mót. Líkið er blóðlaust og brátt fylgja fleiri morð í kjöl-
farið. Lögreglan er ráðþrota og aðeins einn maður getur
hjálpað, Harry Hole! Hann er sestur í helgan stein en
tekur slaginn þegar ástvinum hans er ógnað. Þetta er
ellefta sagan um kappann og margir telja hana þá bestu.
583 bls.
Forlagið – JPV útgáfa
41
Skáldverk ÞÝDD