Bókatíðindi - 01.12.2018, Blaðsíða 15

Bókatíðindi - 01.12.2018, Blaðsíða 15
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8 D Ljósaserían Pétur og Halla við hliðina: Útilegan Ingibjörg Valsdóttir Myndskr.: Auður Ýr Nágrannarnir Pétur og Halla eru góðir vinir þótt Höllu finnist best að vera á fleygiferð en Pétur vilji heldur vera í rólegheitum. Þau fá leyfi til að fara ein í útilegu og þar gerast fyndnir, óvæntir og líka ægilegir atburðir. 56 bls. Bókabeitan E Óvættaför 30 Pöddudrottningin Amiktus Adam Blade Þýð.: Árni Árnason Í síðustu bókinni í flokknum Óvættaför liggur leið Toms um frumskóg þar sem hann þarf að sigrast á slóttugum óvætti, Amiktusi. En hvaða möguleika á Tom gegn snerpu óvættarins? Og hvert er leyndarmálið sem faðir hans og Aduro töframaður hafa haldið leyndu fyrir honum? 120 bls. IÐNÚ útgáfa D Rípa Sigríður Ólafsdóttir Myndskr.: Freydís Kristjánsdóttir Tröllastelpan Rípa býr í helli uppi í fjöllum ásamt foreldrum sínum, afa, ömmu og mörgum bræðrum. Í dalnum er lítið afskekkt þorp og þar býr mannsbarnið Lóa. Dag einn þegar Rípa hefur farið lengra niður í fjallið en hún á að gera hittir hún Lóu, sem hefur farið ofar í fjallið en hún má. Segir sagan frá því hvernig vinátta þróast með þessum ólíku telpum. 64 bls. Óðinsauga útgáfa D F Nærbuxnaverksmiðjan Arndís Þórarinsdóttir Myndir: Sigmundur Breiðfjörð Þorgeirsson Nærbuxnaverksmiðjan hefur gnæft yfir hverfinu Brókarenda svo lengi sem elstu börn muna og þess vegna fer allt á hliðina daginn sem henni er lokað. Gutti og Ólína fara saman á stúfana þennan örlagaríka dag – Gutti til að komast að því hvað orðið hefur um ömmu hans en Ólína vegna þess að hún stenst aldrei það sem er hættulegt og bannað. Sprenghlægileg saga fyrir krakka sem vilja lesa og hlæja. 90 bls. Forlagið – Mál og menning E F Bernskubrek Ævars vísindamanns Ofurhetjuvíddin Ævar Þór Benediktsson Myndir: Rán Flygenring Ofurhetjuvíddin er fjórða bókin í bókaflokknum um bernskubrek Ævars vísindamanns. Þegar hinn 12 ára gamli Ævar sogast yfir í annan heim þar sem allir eru ofurhetjur þarf hann að taka á honum stóra sínum ef hann ætlar að komast aftur til baka. En langar hann aftur heim til sín? Og hvers vegna eru hetjur byrjaðar að hverfa? Æsispennandi og ofurfyndin ævintýrabók fyrir alla krakka. 221 bls. Forlagið – Mál og menning D Orri óstöðvandi Bjarni Fritzson Hæ, ég heiti Orri, glaðlyndur og hugmyndaríkur 11 ára íþróttastrákur. Orri óstöðvandi er ofurhetjuútgáfan af sjálfum mér. Eini munurinn á honum og mér, er sá að hann er hug- rakkari og með meiri trú á sér. Í þessari fyrstu bók um mig og vinkonu mína hana Möggu Messi, sem er sko geggjuð í fótbolta og uppá- tækjasöm með eindæmum, ætla ég að segja þér frá BESTA ÁRI LÍFS MÍNS. 240 bls. Út fyrir kassann D Ótrúleg ævintýri Brjálínu Hansen Kóngsríkið mitt fallna Finn-Ole Heinrich Teikningar: Rán Flygenring Pálína Klara Lind Hansen, stundum kölluð Brjálína, er í senn meistaraspæjari, ofurfimleikastúlka og heims- meistari í brjáli. Hún skilur ekki hvers vegna foreldrar hennar eru að skilja og hún að flytja í plasthús í hinum enda bæjarins, burt frá vinunum og skólanum og sínu fullkomna heimili, kóngsríkinu Brjálivíu. Pálína vill fá sitt gamla líf til baka og hún skal sko ná sínu fram! Fyrsta bókin í þriggja bóka flokki. 176 bls. Angústúra D PAX – Níðstöngin Asa Larsson og Ingella Korsell Þýð.: Sigurður Þór Salvarsson Myndskr.: Henrik Jonsson TÍMINN TIFAR OG MYRKRIÐ SKELLUR Á Yfirnáttúrulegar verur vakna til lífs. Bræðurnir Viggó og Alríkur hafa valist til að vernda leynilega bókasafnið undir kirkjuhólnum. Gömlu gæslumönnum bókasafns- ins finnst bræðurnir heldur ungir til að vera stríðsmenn og vilja láta á þá reyna. Brátt stefnir í voða og Alríkur og Viggó verða að sýna af sér hugrekki og kænsku til að lifa af. Níðstöngin er fyrsta bókin í PAX-seríunni. 144 bls. Drápa 15 Barnabækur SK ÁLDVERK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Bókatíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.