Bókatíðindi - 01.12.2018, Blaðsíða 24
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I EndurútgáfaB Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
D
Eitraða barnið
Guðmundur S. Brynjólfsson
Skelfilegur glæpur skekur Eyrarbakka sumarið 1899.
Reynslulaus sýslumaður sest í embætti skömmu síðar
og við tekur æsileg atburðarás í spilltu brennivínssam-
félagi. Inn í söguna dragast frægðarmennirnir Einar
Benediktsson og Eggert í Vogsósum en það er sýslu-
mannsfrúin Anna sem stendur uppúr og styður sinn
breyska eiginmann í lausn málsins.
200 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
C
Ekki vera sár
Kristín Steinsdóttir
Lesari: Kristín Steinsdóttir
Allt sitt líf hefur Imba verið á þönum innan og utan
heimilis, en nú er hún komin á eftirlaun, frí og frjáls.
Loksins gefst tími til að láta draumana rætast. En eru
ekki alltaf einhver ljón á veginum? Er hún reiðubúin
að gera upp fortíðina og standa á sínu? Raunsönn og
grípandi saga um konu á krossgötum eftir verðlauna-
höfundinn Kristínu Steinsdóttur.
H 5:11 klst.
Forlagið – Vaka-Helgafell
E C
Elín, ýmislegt
Kristín Eiríksdóttir
Lesari: Kristín Eiríksdóttir
Þegar Elín fer að vinna við sýningu á nýju leikriti
eftir unga vonarstjörnu, Ellen Álfsdóttur, vitjar for-
tíðin hennar. Leiðir þeirra hafa áður legið saman þótt
önnur muni ekki eftir því og hin sé í þann veginn að
gleyma því. Áhrifamikil saga um ofbeldi og áföll, vald
og gleymsku. Fyrir hana fékk Kristín Eiríksdóttir bæði
Fjöruverðlaunin og Íslensku bókmenntaverðlaunin.
182 bls. / H 4:36 klst.
Forlagið – JPV útgáfa
G
Erfðaskráin
Guðrún Guðlaugsdóttir
Alma blaðamaður fær þær fréttir að gamall maður að
Bjargarlæk í Árnessýslu hafi dáið. Dóttir Ölmu hafði
ráðið sig í vist til að annast manninn og tvær aldraðar
systur hans. Þegar Alma fer á staðinn áttar hún sig á
að dauði gamla mannsins er grunsamlegur. Spennandi
saga um glötuð lífstækifæri og óuppgerð glæpaverk.
283 bls.
GPA
C
Eyland
Sigríður Hagalín Björnsdóttir
Lesari: Sigríður Hagalín Björnsdóttir
Manstu hvar þú varst þegar það gerðist? Stundum
gerast svo stórir atburðir að þeir sameina allt mannkyn,
eina örskotsstund, eins og slinkur hafi komið á þyngd-
araflið og þjappað öllum heiminum saman.
Hrollvekjandi ástar- og spennusaga, þar sem Íslands-
sagan tekur óvænta stefnu.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir er fréttamaður á
Ríkisútvarpinu. Í fyrstu skáldsögu sinni tekst hún á við
spurningar um hvað sé að tilheyra fjölskyldu og vera
Íslendingur, hvað sameini okkur og sundri.
H 5:39 klst.
Storytel
E F
Blóðengill
Óskar Guðmundsson
Á frosthörðum vetrardegi hringir kornung stúlka í
Neyðarlínuna og tilkynnir að móðir hennar sé látin.
Þegar rannsóknarlögreglukonan Hilma kemur á staðinn
er þar ekkert að finna nema blóðbletti.
HILMA, fyrsta bók Óskars Guðmundssonar, hlaut
Blóðdropann árið 2016 sem besta glæpasagan.
363 bls.
Bjartur
D F
Bókasafn föður míns
– sálumessa -
Ragnar Helgi Ólafsson
Að föður sínum látnum þarf Ragnar Helgi að fara í
gegnum stórt bókasafn hans. Við starfann kvikna minn-
ingar, hugleiðingar um fallvelti hluta, – en ekki síður
um samband föður og sonar.
Falleg, kímin, angurvær og íhugul frásögn um verð-
mætamat og tilfinningalíf.
200 bls.
Bjartur
D F
Brúðan
Yrsa Sigurðardóttor
Gömul brúða þakin hrúðurköllum en með nisti
um hálsinn er dregin úr sjó með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum. Forstöðumaður vistheimilis er sakaður
um alvarlegan glæp. Útigangsmaður finnst myrtur. Og
ferðamenn hverfa sporlaust. Mögnuð glæpasaga með
lögreglumanninum Huldari og sálfræðingnum Freyju!
360 bls.
Veröld
G
Drottningin á Júpíter
Absúrdleikhús Lilla Löve
Júlía Margrét Einarsdóttir
Drottningin á Júpíter segir frá Elenóru Margréti og
helstu áhrifavöldum í lífi hennar: móðurinni Lísu,
sirkússtjóranum Lilla Löve, hinni dularfullu Mónu og
lækninum Benedikt Schneider.
Í ljóðrænni frásögn á milli draums og veruleika
ferðast Elenóra um landið með sirkúsnum sínum.
239 bls.
Bókaútgáfan Deus
D
Eftirbátur
Rúnar Helgi Vignisson
Ægir leitar að sjómanninum föður sínum eftir að
bátur hans finnst mannlaus út af Vestfjörðum. Leitar-
leiðangrar Ægis vekja spurningar um faðernið sjálft í
þessum harðbýla heimshluta. Hver er hinn raunverulegi
faðir og hvað mótaði hann? Er nauðsynlegt að þekkja
söguna til að vita hver maður er?
Rúnar Helgi Vignisson hefur sent frá sér skáldsögur
og smásagnasöfn sem hlotið hafa afbragðs viðtökur og
viðurkenningar. Fyrir síðustu bók sína, Ást í meinum,
hlaut hann Menningarverðlaun DV.
226 bls.
Dimma
24
Skáldverk ÍSLENSK