Bókatíðindi - 01.12.2018, Blaðsíða 20
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I EndurútgáfaB Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
Ungmennabækur
G I
Aftur til Pompei
Kim M. Kimselius
Fyrsta bókin um Ramónu og Theo og gerist í eldgosinu
þegar Pompei grófst undir ösku árið 79 e. Kr.
174 bls.
Urður bókafélag
E F
Þriggja heima saga
Draugsól
Kjartan Yngvi Björnsson og Snæbjörn Brynjarsson
Draugsól er fjórða bókin í bókaflokknum Þriggja heima
saga en fyrri bækurnar, Hrafnsauga, Draumsverð og
Ormstunga, hafa allar hlotið frábærar viðtökur. Hér er á
ferðinni fantasíubókaflokkur sem á engan sinn líka hér
á landi. „… fullvaxin fantasía fyrir allan aldur … Miðað
við endi þessarar sögu er augljóst að það mun draga til
verulegra tíðinda í næstu bók. Við bíðum í ofvæni.“ FB /
Fbl. (um Ormstungu)
624 bls.
Forlagið – Vaka-Helgafell
E F
Ég gef þér sólina
Jandy Nelson
Þýð.: Marta Hlín Magnadóttir
Tvíburarnir Noah og Jude eru náin en gjörólík – annað
kýs einveruna en hitt er umkringt vinum og kunn-
ingjum. Harmleikur leggur líf þeirra í rúst og stíar þeim
í sundur. Til að komast yfir sorgina og verða heil á ný
þurfa þau að styrkja böndin sín á milli og raða saman
brotunum.
338 bls.
Björt bókaútgáfa – Bókabeitan
G
Feigðarflan til Íslands
Kim M. Kimselius
Ramónu hafði alltaf langað til Íslands. Hún notfærir
sér hæfileika sinn til að ferðast í tíma og fer í tímaflakk
ásamt Theó, Róbert frænda sínum og Úlriku vinkonu
sinni. Á Íslandi lenda þau í ótal ævintýrum.
264 bls.
Urður bókafélag
D
Star Wars: Síðasti Jedi-riddarinn
í máli og myndum
Disney/Lucas Film
Hér finnur þú allt sem þú vilt vita um persónur, vél-
menni, skepnur, staði og tæki í myndinni Star Wars:
Síðasti Jedi-riddarinn.
80 bls.
Edda útgáfa
D
Star Wars: Tilraunir
Disney/Lucas Film
Virkjaðu vísindin, verkvitið og listina innra með þér í
þessum ofurskemmtilegu Star Wars tilraunum.
128 bls.
Edda útgáfa
D
Svarthol
Hvað gerist ef ég dett ofan í?
Sævar Helgi Bragason
Svarthol eru einhver furðulegustu fyrirbæri alheimsins:
ofboðslega stór og ótrúlega sterk, en samt ósýnileg! Í
þessari skemmtilegu og fróðlegu myndskreyttu bók eru
flókin vísindi og dularfull fyrirbæri útskýrð þannig að
allir skilji. Sævar Helgi er landsþekktur stjörnuskoðari
og einstaklega ötull við að fræða börn og fullorðna um
heillandi undraheima vísindanna.
116 bls.
Forlagið – JPV útgáfa
D
Vísindabók Villa
Truflaðar tilraunir
Vilhelm Anton Jónsson
Fimmta bókin í vísindabókaflokknum hans Villa, sem
hefur glatt ótal krakka með tilraunum, brellum og
skemmtilegum uppátækjum undanfarin ár og skapað
fjörugar samverustundir fyrir fjölskylduna – því að oft
er gott að fá svolitla aðstoð. Þessi bók er stútfull af glæ-
nýjum og spennandi tilraunum sem vekja spurningar
– og svara þeim.
77 bls.
Forlagið – JPV útgáfa
G
Töfralitabók
Vatnslitabursti fylgir bókinni
Þýð.: Baldur Snær Ólafsson
Dýfðu pennanum í vatn, litaðu með honum yfir auðu
fletina á svarthvítu myndunum og töfrum líkast breyt-
ast þær í fallegar litmyndir. Góð afþreying fyrir allan
aldur.
15 bls.
Setberg bókaútgáfa
20
Barnabækur FR ÆÐI OG BÆKUR ALMENNS EFNIS