Bókatíðindi - 01.12.2018, Blaðsíða 28
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I EndurútgáfaB Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
D F
Lifandilífslækur
Bergsveinn Birgisson
Árið er 1784 og Skaftáreldar hafa geisað á Íslandi í
heilt ár. Í Kaupmannahöfn hittast ráðamenn til þess
að ákveða hvað gera eigi við innbyggjara þessarar eyju
arfakóngsins.
Bergsveinn Birgisson er höfundur hinna vinsælu
bóka Leitin að svarta víkingnum og Svar við bréfi Helgu.
295 bls.
Bjartur
D F
Listamannalaun
Minningaskáldsaga
Ólafur Gunnarsson
Ólafur Gunnarsson var góðvinur Alfreðs Flóka, Dags
Sigurðarsonar og Steinars Sigurjónssonar, umdeildra
snillinga á jöðrum samfélagsins. Hann lýsir hér af hrein-
skilni og óborganlegum húmor kynnum sínum af þeim
og fjölmörgum öðrum ógleymanlegum einstaklingum.
„Lesandinn grætur hlæjandi, þyrstur í næstu blaðsíðu.
Mögnuð!“ Auður Jónsdóttir rithöfundur
221 bls.
Forlagið – JPV útgáfa
D F
Læknishúsið
Bjarni M. Bjarnason
Læknishúsið á Eyrarbakka á sér dularfulla og myrka
sögu. Rithöfundurinn Steinar flytur í húsið ásamt óléttri
eiginkonu sinni en hún er ráðherra í ríkisstjórn Íslands.
Af stað fer spennandi og dulúðug atburðarás þar sem
leyndir atburðir úr sögu hússins blandast saman við
átök eftirhrunsáranna.
159 bls.
Veröld
D F
Manneskjusaga
Steinunn Ásmundsdóttir
Manneskjusaga er skáldævisaga sem er byggð á raun-
verulegum atburðum um lífshlaup konu sem elst upp
við ást og umhyggju en finnur aldrei sinn samastað í
lífinu. Ellefu ára gömul kemst hún að því að hún er ætt-
leidd og í kjölfarið vill hún fá að kynnast blóðforeldrum
sínum en það verður henni afdrifaríkt.
160 bls.
Björt bókaútgáfa – Bókabeitan
E F
Marrið í stiganum
Eva Björg Ægisdóttir
Ung kona finnst myrt í fjörunni við Akranes. Lögreglu-
konan Elma rannsakar málið ásamt samstarfsmönnum
sínum. Upp á yfirborðið koma ýmis skuggaleg mál úr
fortíðinni en Elma þarf líka að takast á við atburði í
eigin lífi.
Bókin hlaut glæpasagnaverðlaunin Svartfuglinn.
384 bls.
Veröld
D
Kláði
Fríða Ísberg
Sögurnar í þessu fyrsta smásagnasafni Fríðu Ísberg eru
í senn djarfar, sposkar og ríkar af innsæi. Fríða smeygir
sér af lipurð milli hugarheima ýmissa einstaklinga sem
á einn eða annan hátt klæjar undan væntingum sam-
tíma síns.
200 bls.
Partus forlag
D F
Kópavogskrónika
Kamilla Einarsdóttir
Móðir skrifar skrautlega sögu sína til dóttur sinnar.
Sögusviðið er Kópavogur, bærinn sem er slys og átti
aldrei að verða til. Þetta er sannkölluð nútímasaga,
skrifuð af algjöru hispursleysi. Hér svífur kaldhæðni yfir
vötnum en um leið miklar og djúpar tilfinningar.
126 bls.
Veröld
D
Krossfiskar
Jónas Reynir Gunnarsson
Daníel býr einn í íbúð sem móðir hans á. Hann er
hættur í háskólanum og hefur hvorki efni á mat né elds-
neyti. Dag einn fær hann tvö símtöl, eitt frá fyrrverandi
skólafélaga og annað frá lögreglunni, sem hrinda af stað
dularfullri atburðarás. Krossfiskar er spennuþrungin
skáldsaga um átök sálarinnar – um mörk góðs og ills,
vonar og vonleysis.
192 bls.
Partus forlag
D C
Hljóðbók frá Storytel
Krýsuvík
Stefán Máni
Höfuðlaust lík finnst í hraungjótu við Krýsuvík. Lög-
reglumaðurinn Hörður Grímsson er kallaður til. Fyrr
en varir er hann kominn á kaf í skuggaveröld þar sem
erlendir verkamenn eru hafðir að leiksoppi og morðingi
gengur laus. Hörður hefur sinn hátt á að leysa erfið
sakamál í spennutryllum Stefáns Mána. Hér tekur hann
á öllu sínu til að leysa ráðgátur sem fléttast saman á
ófyrirséðan hátt.
Bókin fæst einnig sem hljóðbók. Lesari Baldur
Trausti Hreinsson.
428 bls. / H
Sögur útgáfa
G
Lespúsl
Eins og vax
Landnámur
Sonnettur
Ævintýri
Þórarinn Eldjárn
Ný ritröð handhægra og lesvænna kvera með úrvali
úr verkum Þórarins Eldjárns. Hér birtast ýmsar eftir-
minnilegustu sögur þessa sívinsæla höfundar og valin
ljóð úr eldri bókum sem margar eru ófáanlegar. Fallegir
prentgripir hannaðir af Sigurði Oddssyni sem henta vel
til upprifjunar og gjafa handa lesfúsum og leslausum.
39/69/53/61 bls.
Gullbringa
28
Skáldverk ÍSLENSK