Bókatíðindi - 01.12.2018, Blaðsíða 38
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I EndurútgáfaB Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
E
Okkar á milli
Sally Rooney
Þýð.: Bjarni Jónsson
Þessi fyrsta skáldsaga höfundar vakti gífurlega athygli
og hefur hlotið mikið hrós; hún var kosin ein besta bók
ársins 2017 af stórblöðunum Sunday Times, Observer
og Telegraph, og tískutímaritinu Vogue. „Ótrúlega
frumleg saga um framhjáhald,“ NYT. Bókaklúbburinn
Sólin gefur út vandaðar þýðingar á eftirtektarverðum
bókum heimsins.
302 bls.
Benedikt bókaútgáfa
E F
Óboðinn gestur
Shari Lapena
Þýð.: Ingunn Snædal
Glænýr og hörkuspennandi sálfræðitryllir eftir höfund
metsölubókarinnar Hjónin við hliðina.
„★★★★ Ágæt spennusaga með óvæntum vendingum
og ísköldum húmor.“ Kolbrún Bergþórsdóttir/Frbl.
301 bls.
Bjartur
E
Óttinn
C.L. Taylor
Þýð.: Ingunn Snædal
Þegar Lou Wandsworth hljópst á brott til Frakklands
ásamt kennaranum sínum Mike Hughes, hélt hún að
hann væri stóra ástin í lífinu. En annað kom á daginn.
Nú er Lou orðin 32 ára og hún uppgötvar að Mike
er enn á ný að gera hosur sínar grænar fyrir unglings-
stúlku. Ákveðin í að koma í veg fyrir að Mike endurtaki
leikinn, snýr hún aftur til heimabæjar síns til þess að
láta hann horfast í augu við þann skaða sem hann olli.
Óttinn heldur lesandanum í heljargreipum frá fyrstu
blaðsíðu.
336 bls.
Drápa
E F
Óþægileg ást
Elena Ferrante
Þýð.: Brynja Cortes Andrésdóttir
Móðir Deliu finnst liðið lík í sjónum við baðstað þar
sem fjölskyldan hafði stundum farið í sumarfrí. Í kjöl-
farið þarf Delia að svara knýjandi spurningu: Hver var
eiginlega móðir hennar?
Fyrsta skáldsaga Elenu Ferrante sem hlotið hefur
heimsfrægð fyrir Napólí-fjórleik sinn.
190 bls.
Bjartur
E F
Rauða minnisbókin
Sofia Lundberg
Þýð.: Sigurður Þór Salvarsson
Níutíu og sex ára gömul, nánast vina- og fjölskyldulaus,
ákveður Doris að skrifa sögu sína í rauða minnisbók.
Saga hennar er einstök örlagasaga konu sem þurfti að
þola eymd og ósigra en náði einnig að njóta frægðar og
frama. Og yfir og allt um kring er átakasaga Evrópu á
öldinni sem leið.
334 bls.
Veröld
G E
Metsölubækur Jennyar Colgan
Jól í Litla bakaríinu við Strandgötu
Sumar í Litla bakaríinu við Strandgötu
Jenny Colgan
Þýð.: Ingunn Snædal
Jenny Colgan hefur heillað lesendur um allan heim með
notalegum, fyndnum og lystaukandi bókum sínum.
Nýjasta bókin, Jól í Litla bakaríinu við Strandgötu, er
lokabókin í þríleiknum um Litla bakaríið.
Polly Waterford sér fyrir sér róleg og huggu leg jól í
faðmi unnustans, hunangsbóndans Huckles, og lundans
Neils í gamla vitanum sem þau hafa gert að heimili sínu
en hlutirnir fara ekki alltaf á þann veg sem ætlað er.
Verður jólunum bjargað?
Angústúra
E F
Mín sök
Clare Machintosh
Þýð.: Eyrún Edda Hjörleifsdóttir
Lítill drengur sleppir hendi móður sinnar og skýst út á
götu – beint í veg fyrir bíl. Eftir dauðaslysið og martröð-
ina á eftir flýr Emma Gray í afskekkt þorp þar sem hún
reynir að koma lífi sínu á réttan kjöl. En óttinn, sorgin
og minningarnar um það sem gerðist þennan örlagaríka
dag halda henni í heljargreipum. Þessi hörkuspennandi
bók hefur selst í milljónum eintaka víða um heim og
hlaut ein virtustu glæpasagnaverðlaun Bretlands árið
2016.
425 bls.
Forlagið – JPV útgáfa
E
Myrkrið bíður
Angela Marsons
Þýð.: Ingunn Snædal
Hin framliðnu segja ekki frá leyndarmálum … nema þú
leggir við hlustir.
Illa útleikið andlitið starði ósjáandi upp í bláan
himininn, munnurinn var fullur af mold. Morðingi
virðist hafa fundið hina fullkomnu leið til að breiða yfir
glæpi sína. Önnur stúlka verður fyrir árás og er skilin
eftir í blóði sínu, líkaminn fullur af sljóvgandi lyfjum og
munnurinn af mold. Kim Stone virðist augljóst að rað-
morðingi sé að verki – en hve mörg lík munu finnast?
Og hver er næst?
400 bls.
Drápa
E F
Njósnarinn
Paulo Coelho
Þýð.: Kristín Svava Tómasdóttir
Þegar Mata Hari kom til Parísar var hún allslaus en ekki
leið á löngu þar til hún var lofsungin sem helsta glæsi-
kvendi borgarinnar. Hún bæði heillaði og hneykslaði,
átti aðdáendur á æðstu stigum samfélagsins. Ógleyman-
leg saga af konu sem þorði að brjóta siðalögmál sam-
tímans og þurfti að gjalda fyrir það. Paulo Coelho hefur
hlotið fjölmörg verðlaun og viðurkenningar fyrir verk
sín.
173 bls.
Forlagið – JPV útgáfa
38
Skáldverk ÞÝDD
24. OG 25. NÓVEMBER Í HÖRPU