Bókatíðindi - 01.12.2018, Blaðsíða 39

Bókatíðindi - 01.12.2018, Blaðsíða 39
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8 E F Smásögur heimsins: Asía og Eyjaálfa Ritstj.: Jón Karl Helgason, Kristín Guðrún Jónsdóttir og Rúnar Helgi Vignisson Í Smásögum heimsins birtast íslenskar þýðingar á snjöllum smásögum úr öllum heimsins hornum. Í þessu þriðja bindi er að finna smásögur eftir ýmsa fremstu smásagnahöfunda Asíu og Eyjaálfu síðustu hundrað árin, til dæmis Katherine Mansfield, Peter Carey, Mo Yan, Bandi, Amos Oz og fleiri. 312 bls. Bjartur D Soralegi Havanaþríleikurinn Pedro Juan Gutiérrez Þýð.: Kristinn R. Ólafsson Bók í anda soraraunsæis þar sem ekkert er dregið undan – bönnuð bók í heimalandi höfundar. Sögusviðið er Kúba fyrst eftir fall Sovétríkjanna þegar eina glætan er kynlíf, romm og marijúana. Harðneskjuleg lýsing á karlrembu og hörmungum, fellibyljum og flótta en yfir og undir öllu er Castro-stjórnin. 420 bls. Bókaútgáfan Sæmundur E I Spámennirnir í Botnleysufirði Kim Leine Þýð.: Jón Hallur Stefánsson Sögusviðið eru nýlendubyggðir Grænlands á 18. öld, Kaupmannahöfn, Noregur og háskalegt sjómannslíf. Bókin hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs og frábærar viðtökur. Önnur endurprentun kilju kom út sumarið 2018. 500 bls. Bókaútgáfan Sæmundur D I Sunnan við mærin, vestur af sól Haruki Murakami Þýð.: Uggi Jónsson Hajime elst upp sem einbirni og honum virðist sem allir í kringum hann eigi bræður og systur. Nánasti vinur hans er stúlka á hans reki, Shimamoto, líka einbirni. Þau missa samband og árin líða. Hajime rekur stefnulaust áfram uns hann finnur hamingju með eiginkonu og tveimur börnum. Þá birtist Shimamoto. Þetta er endur- útgáfa á þessari klassísku bók Murakamis. 272 bls. Benedikt bókaútgáfa E F Syndaflóð Kristina Ohlsson Þýð.: Nanna B. Þórsdóttir Maður finnst myrtur á heimili sínu í Stokkhólmi. Á litlafingri hefur hann giftingarhring látinnar dóttur sinnar. Einhvers staðar er örvæntingarfull kona inni- lokuð með börnum sínum og eiginmanni sem færist sífellt nær brjálseminni ... Sjötta bók Kristinu Ohlsson um lögreglumennina Fredriku Bergman og Alex Recht er æsispennandi saga um duldar misgjörðir og hefnd. 447 bls. Forlagið – JPV útgáfa E F Ráðuneyti æðstu hamingju Arundhati Roy Þýð.: Árni Óskarsson Eftir tveggja áratuga bið kemur loks ný og mögnuð skáldsaga frá höfundi metsölubókarinnar Guð hins smáa. Hér er sagt frá fólki í felum, hundeltu fólki og útskúfuðu, og söguþráðurinn vindur sig frá öngstrætum Gömlu-Delhi til fjallanna og dalanna í hinu stríðshrjáða Kasmír. Ágeng, gáskafull og átakanleg saga þar sem mannlífið sjálft er undir smásjá. 480 bls. Forlagið – Mál og menning D Saga tveggja borga Charles Dickens Þýð.: Þórdís Bachmann „Þetta voru bestu tímar, þetta voru verstu tímar ...“ Í Sögu tveggja borga lýsir Dickens af einstöku innsæi þeim vonum sem margir báru í brjósti við upphaf frönsku byltingarinnar og þeim hryllingi sem hún leiddi til. Magnaðar mannlífslýsingar gera bókina að yndis- lestri. Eitt af meistaraverkum heimsbókmenntanna sem á ekki síður erindi við lesendur nú á tímum. 592 bls. Ugla C Sagan um Ísfólkið Margit Sandemo Þýð.: Snjólaug Bragadóttir Sagan um Ísfólkið hefur selst í um 40 milljónum eintaka um allan heim og hafa bækurnar lengi verið ófáan- legar á Íslandi. Núna mun allur sagnabálkurinn verða aðgengilegur aftur, að þessu sinni sem hljóðbækur og í glæsilegum lestri úrvalsliðs ungra íslenskra leikkvenna. Bækurnar segja söguna um ætt Ísfólksins. Það hvílir bölvun á ættinni vegna þess að ættfaðirinn seldi Satani sál sína. Í hverri kynslóð fæðist einn einstaklingur sem skal vera í þjónustu Satans. Sagan um Ísfólkið hefst svo á 16. öld þegar maður fæðist í ættinni sem reynir að snúa hinu illa til góðs. Hann er kallaður Þengill hinn góði. Storytel D Sagnaseiður Sally Magnusson Þýð.: Urður Snædal Árið 1627 fóru sjóræningjar ránshendi um strendur Íslands og rændu yfir 400 Íslendingum. Meðal þeirra voru annar presturinn í Heimaey, kona hans og börn. Í þessari mögnuðu, sögulegu skáldsögu fyllir Sally Magnusson í eyðurnar og dregur upp lifandi og litríka sögu af örlögum prestfrúarinnar Ástu Þorsteinsdóttur, sem seld var í ánauð í Alsír. Sally Magnusson er þekkt sjónvarpskona hjá BBC í Skotlandi, dóttir Magnúsar Magnússonar, sjónvarps- mannsins kunna. 310 bls. Tindur E Sakfelling Forboðnar sögur frá Norður-Kóreu Bandi Þýð.: Ingunn Ásdísardóttir Sjö sögur frá Norður-Kóreu sem lýsa lífi fólks í landi einræðis og einangrunar í stjórnartíð Kim Jong-Il. Höfundi sagnanna, sem gengur undir dulnefninu Bandi, tókst að smygla þeim úr landi og hafa þær verið þýddar á 20 tungumál. Einstaklega fallega skrifaðar sögur, samdar af næmni fyrir mannlegri tilveru. 304 bls. Angústúra 39 Skáldverk ÞÝDD
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Bókatíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.