Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.2006, Side 3

Heima er bezt - 01.03.2006, Side 3
56. árg. 2006 HEIMA ER Cþj6^t^imiíisrií Stofnað árið 1951 Utgefandi: Umgerð ehf., Ritstjóri/áb.maður: Guðjón Baldvinsson. Heimilisfang: Tunguhálsi 19 110 Reykjavík Sími: 553-8200 Tölvupóstur: heimaerbezt@simnet.is Heimasíða: www.simnet.is/heimaerbezt Áskriftargjald: Kr. 4.560á ári, m/vsk., auk póstburðargjalds kr. 740 fyrir 12 blöð. Kemur út mánaðarlega. Tveir gjalddagar, f júní og desember, kr. 2.650 í hvort skipti með póstburðargjaldi. Verð stakra hefta í áskrift kr. 442, lausasölu kr. 650. ISSN 1562-3289 Utlit og umbrot: Sig.Sig. Prentvinnsla: Litlaprent Eldri árgangar af Heima er bezt: Árgangar 1997, 1998, 1999,2000, 2001 og 2002, 2003 eru fáanlegir í stökum heftum og kostar hvert hefti kr. 388 til áskrifenda, kr. 600 í lausasölu. Öll blöð, sem til eru fyrir 1997 fást einungis í heilum árgöngum og kostar hver árgangur kr. 1200. Efnisyfírlit Guðjón Baldvinsson: Úr hlaðvarpanum - Kamrarnir 100 Freyja Jónsdóttir: Alltaf gaman að vinna í útvarpi Rætt við Ragnheiði Ástu Pétursdóttur, þul hjá Ríkisútvarpinu. 101 Sigrim Hjálmarsdóttir: Heiðasvanurinn Það var fyrir um 20 árum að hausti til, að verið var að smala fram á Hálsum, á heimslóðum höfundar, seinni smölun, er sonur hennar sá dálítinn kindahóp og þegar hann fór að reka þær, reyndist vera með þeim álftarungi sem var meira en hálfvaxinn, en algerlega ófleygur. Var hann fluttur heim í hús og segir hér nánar af framgangi hans hjá heimiiisfólki. 110 Örnólfur Thorlacius: Úr sögu skriffæra Fyrir meira en 6000 árum fóru Egyptar að skrifa á papýrus, með holum leggjum af grasstráum eða bambus, sem þeir fylltu bleki og kreistu leggina til þess að fá úr þeim blekið. Rómverjar endurbættu þessi skriffæri með því að skera enda bambusleggja til, svo úr varð penni. Svona strápennar af ýmsu tagi voru víða notaðir, en á sjöundu öld fóru menn að sníða penna úr fuglsfjöðrum. Fjaðurpennar urðu síðan útbreidd skriffæri, enda er nafnið penni dregið af latneska orðinu penna, sem þýðir fjöður. Höfundur rifjar hér upp ýmislegt fróðlegt úr sögu skrififæranna. 112 Anna Maria Þórisdóttir Gestir í garðinum Á hverjum degi koma gestir i garð höfundar. Þegar hún stendur við eldhúsgluggann og þvær upp eftir hádegismatinn, flykkjast þeir að með vængjaslætti og kvikum hreyfingum, skógarþrestir og starrar, sem keppast við að ná sér í brauðmola sem við höfum kastað út á snjóinn. 116 Gunnþór Guðmundsson: Áfriðsælli stund Minning úr lítilli ferð fyrir 67 árum síðan. 117 Auðunn Bragi Sveinsson: Vetrardvöl í Lambanesi og Haganesvík Fyrri hluti Eftir áramótin 1935, var höfundi komið fyrir í Haganesvík og skyldi hann stunda þar nám annan hvern mánuð. Segir hér nokkuð frá þeirri námsdvöl hans þar. 118 HEBfyrirSOárum Upprifjun fróðlegra greina úr Heima er bezt. Henni varð að ósk sinni Símon Dalaskáld mun hafa lagt leið sína um Suðurland seinast nokkru eftir aldamót. Þá var vinnukona í Selvogi ung stúlka, lngveldur að nafni. Var hún vel kunnug rímum og öðrum kveðskap Símonar og óskaði þess oft, að hún mætti sjá með eigin augum þetta kostulega skáld. Hér segir frá því þegar henni varð að þeirri ósk sinni. 122 Egill Guðmundsson frá Þvottá: Þinghald við Styrmishöfn Þegar höfundur var að alast upp á Austfjörðum heyrði hann gamla fólkið tala um að hrafnamir héldu þing á haustin. Kæmu saman og röðuðu sér niður á bæina i sveitinni, tveir og tveir á hvern bæ. Ef einn yrði afgangs væri honum fargað. Hann lagði nú ekki mikinn trúnað á þetta en það átti eftir að breytast. 125 uglan Kostuleg ritgerð, eftir stúlku í fimmta bekk. 125 Hjalti Pálsson: Stund og staðir í Skagafirði Nýr þáttur á síðum Heima er bezt, um staði og atburði sem gerst hafa í Skagafirði. í þessum fyrsta þætti er fjallað um reglulega lagaðan, melkoll, hringlaga og um 25-30 metra í þvermál, svokallaðan Hjaltahaug, sem þekktur er og vel sýnilegur enn í dag, um 70-80 metra norður af íbúðarhúsinu á Hofí II. 126 Gamlir leikir Riijaðar upp lýsingar á leikjum, sem fólk lék sér í áður fyrr á árunum. Samantekt Ragnar Jóhannesson. 128 Örnólfur Thorlacius: Frú Carlill fær sín hundrað pund Húsmóðir í Lundúnum, frú Louise Carlill, las auglýsingu frá framleiðanda árið 1893, um lyf sem átti að sótthreinsa slímhúðina og bægja hvers kyns sjúkdómum ffá öndunarfærunum. Framleiðandinn ábyrgðist einnig í auglýsingunni, að meðferðin læknaði kvef, astma, hósta, berkju- bólgu, hæsi, inflúensu, bamaveiki, kíghósta, svo fátt eitt sé talið. Konan keypti í snatri reykjar- kúlu, sem lyfið var í, fyrir tíu skildinga og hafði brúkað lyfið samviskusamlega þrisvar á dag í rúman mánuð, þegar hún veiktist af inflúensunni. Eiginmaður hennar, sem var lögmaður, krafði fyrirtækið um hundrað pundin og lagði fram vottorð læknis um veikindi konunnar. 130 Myndbrot Kviðlingar og kvœðamál Dægurljóð og vísur af ýmsu tagi. Umsjón: Auðunn Bragi Sveinsson. 131 Jón R. Hjálmarsson: úrfróðleiksbrunni Prentlistin og Gutenberg Á fyrri öldum voru aðeins til skrifaðar bækur og er þá átt við að þær voru handskrifaðar. Af þeim sökum voru bækur fágætari og einnig miklu dýrari en síðar varð. Prentlistin kom ekki til sögunnar í Evrópu fyrr en undir lok miðalda. Það gerðist þegar Jóhann Gutenberg fann upp að prenta með lausum stöfum, sem raða mátti upp á nýtt fyrir hverja nýja blaðsíðu. 130 Ingibjörg Sigurðardóttir: Sigrún í Nesi Framhaldssaga, I2. hluti. 138

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.